Síða 1 af 1

[TS] Fartölva | C2D 2.2Ghz | 15" GF8400m | 30k

Sent: Lau 21. Des 2013 12:16
af hvislarinn
Jæja,

Ég er að spá í að reyna að selja þessa fartölvu:

Packard Bell MB65
Örri: Intel Core2Duo T7500 2.2GHz 4MB Cache
Minni: 3GB 667Mhz 5-5-5-15
HDD: 320GB WD Scorpio Blue
Skjákort: GeForce 8400m GS 256MB, Turbocache 1536MB, DX10, SM4

Mynd

ATH búið að uppfæra örrann úr T7300 í T7500 og netkort úr standard ABG í 4965AGN (draft-N)

Batterýið endist í 70 mínútur í W7, "balanced" rafnotkun, tveir browserar í gangi með fullt af flipum og vídeóstraumur í gangi allann tímann.

Gasalega fín tölvutaska fylgir.

Er að prófa batterýin, uppfæri þennan póst á næstu klukkutímum með niðurstöðunum og mynd af eintakinu og töskunni.

Var að hugsa um 30kéll fyrir þetta... Tölvan hefur gengið eins og klukka frá fyrsta degi og verið nákvæmlega núll vandamál með hana. Hef verið að spila FIFA14 á henni, annars efast ég um að hún keyri nýjustu leiki vel almennt.

Re: [TS] Fartölva | C2D 2.2Ghz | 15" GF8400m | 30k

Sent: Lau 21. Des 2013 13:25
af hvislarinn
Búið að tékka batterýið, það keyrir í 70 mínútur í notkun með "balanced" rafnotkun (sjá upphafspóst).

Re: [TS] Fartölva | C2D 2.2Ghz | 15" GF8400m | 30k

Sent: Lau 21. Des 2013 14:26
af Titanium
Hvað er hún gömul og hvað er upplausnin í skjánum ?

Re: [TS] Fartölva | C2D 2.2Ghz | 15" GF8400m | 30k

Sent: Lau 21. Des 2013 14:47
af hvislarinn
Titanium skrifaði:Hvað er hún gömul og hvað er upplausnin í skjánum ?


Góður punktur... skjárinn er 1280x800, ég hef ekki hugmynd um hvað hún er gömul, áreiðanlega ekki yngri en 5 ára, minnir að þær hafi verið komnar rétt fyrir hrun en þær voru seldar lengi eftir það í TT. Hún er allavega nógu gömul til þess að framleiðslugallar væru löngu komnir í ljós ef einhverjir væru...

Re: [TS] Fartölva | C2D 2.2Ghz | 15" GF8400m | 30k

Sent: Lau 21. Des 2013 20:15
af hvislarinn
Mynd af tölvunni og töskunni.... biðst afsökunnar á gæðunum, það virðist vera þokuslæðingur hérna heima.

Mynd