Síða 1 af 1

[TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13

Sent: Lau 09. Nóv 2013 18:00
af KermitTheFrog
[u]ATH - Hætt við sölu í bili[u]

Er með til sölu rúmlega árs gamla Asus Zenbook Prime UX31A 13" ultrabook. Tölvan er keypt í lok ágúst 2012 hjá Tölvutek og er í ábyrgð þar.

Þetta er massíf græja. Búin að standa sig algerlega síðasta ár. Örþunn tölva með i5 örgjörva, baklýstu lyklaborði og gullfallegum 1080p S-IPS skjá.

- Intel Core i5 3317U Ivy Bridge CPU með 4xHT @1.7GHz (2.6GHz turbo)
- 4GB DDR3 1600MHz RAM
- 128GB SSD diskur
- Intel HD4000 skjástýring
- 13.3" 1920x1080 S-IPS Full HD skjár
- Baklýst lyklaborð (US layout)
- Aðeins 1.3 kg
- Windows 8 Pro leyfi kemur með vélinni (Windows 8.1 uppsett).

Á græjunni eru tvö USB 3, SD slot, micro-HDMI, mini-VGA og headphone/mic combo.

Með fylgja upprunalegar umbúðir, flott Asus sleeve undir töskuna, hleðslutæki, mini-VGA í VGA millistykki og USB 3 í gigabit LAN millistykki (í Asus pjötlu sem fylgdi með). Tölvan hefur alltaf verið í sleeve og sér því nær ekkert á henni. Hendi inn myndum seinna í kvöld.

Ef einhverra upplýsinga er ábótavant má endilega bara spyrja. Hér er linkur á tölvuna hjá Asus: http://www.asus.com/Notebooks_Ultrabook ... OOK_UX31A/

Verð: tilboð

Mynd

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Lau 09. Nóv 2013 18:15
af Plushy
Á svipaða tölvu, með 1600x900 skjá og hún er algjör draumur. Trúi ekki öðru að þessi sé eins, nema aðeins betri í alla staði :)

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Sun 10. Nóv 2013 10:42
af Viktor
Mæli með þessari, sérstaklega 1920x1080 skjánum... draumatölvan.

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Mán 11. Nóv 2013 11:00
af KermitTheFrog
Hvar er bump topic takkinn?

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Mán 11. Nóv 2013 14:50
af Swanmark
There is none. Mátt bumpa samt á 12 klst fresri.

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Þri 12. Nóv 2013 09:25
af KermitTheFrog
Swanmark skrifaði:There is none. Mátt bumpa samt á 12 klst fresri.


Það var bump topic takki neðst á síðunni í gær.

viewtopic.php?f=9&t=57535

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Fim 14. Nóv 2013 18:29
af KermitTheFrog
Það er eins og bump takkinn hverfi ef maður bumpar einu sinni með honum. :-k

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook

Sent: Lau 16. Nóv 2013 17:05
af KermitTheFrog
Bump. Skoða líka tilboð.

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook - 180.

Sent: Fim 28. Nóv 2013 20:33
af KermitTheFrog
Lækkað verð

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook - 180.

Sent: Fim 05. Des 2013 11:51
af KermitTheFrog
Upp, endilega skjótið á mig tilboðum. Verðhugmyndin er ekkert heilög :)

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook - 180.

Sent: Mið 11. Des 2013 13:20
af KermitTheFrog
Upp

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook - 180.

Sent: Mið 11. Des 2013 20:56
af FreyrGauti
http://tl.is/product/asus-ux31a-dh51-fartolva-i5

Er þetta ekki sama vél á 10þús minna út úr búð?

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13" 1080p ultrabook - 180.

Sent: Mið 11. Des 2013 21:07
af KermitTheFrog
FreyrGauti skrifaði:http://tl.is/product/asus-ux31a-dh51-fartolva-i5

Er þetta ekki sama vél á 10þús minna út úr búð?


Hah jú, en þetta var bara verðhugmynd. Hrikalega hefur þetta lækkað í verði.

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13

Sent: Fös 13. Des 2013 17:50
af KermitTheFrog
Breyttar aðstæður og því verð ég að halda henni.

Hætt við sölu í bili.

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13

Sent: Sun 22. Des 2013 22:17
af Uralnanok
Er soddan kálfur í þessu, en mig langar að vita hvað þetta "bump" merkir á svona vefsíðu, nennir einhver að skýra það fyrir mér einnig hvernig menn nota "upp" hef nefnilega séð menn nota upp þegar þeir eru að auglýsa eftir einhverju :)

Re: [TS] Asus Zenbook Prime UX31A 13

Sent: Mán 23. Des 2013 02:23
af trausti164
Uralnanok skrifaði:Er soddan kálfur í þessu, en mig langar að vita hvað þetta "bump" merkir á svona vefsíðu, nennir einhver að skýra það fyrir mér einnig hvernig menn nota "upp" hef nefnilega séð menn nota upp þegar þeir eru að auglýsa eftir einhverju :)

Afsakið off-topic en þetta virkar bara þannig að í hvert skipti sem að einhver skilur eftir ummæli á þræði þá fer hann efst á listann á forsíðunni, fólk er í rauninni að passa að þráðurinn komist á framfæri í stað þess að færast neðar og neðar svo að fólk þurfi ekki að leita að honum.