Síða 1 af 1
[Seld] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Mán 10. Jún 2013 23:09
af °°gummi°°
Til sölu Dell Optiplex GX280
2,8GHz - 2GB minni - 80GB diskur
Fín til að fara á netið og svona þessa beisik hluti, frekar nett
Nýstraujuð með XP Pro
verð 20.000 eða besta boð
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Mán 10. Jún 2013 23:24
af AntiTrust
Ég myndi skoða hvernig vélar þú færð hérna á 20þúsund, og endurhugsa svo kannski örlítið verðlagninguna
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Mán 10. Jún 2013 23:35
af °°gummi°°
AntiTrust skrifaði:Ég myndi skoða hvernig vélar þú færð hérna á 20þúsund, og endurhugsa svo kannski örlítið verðlagninguna
Það er auðvitað öllum frjálst að bjóða - svo ef þú finnur óselda tölvu hérna á betra verði þá myndi nú vera sniðugt að bömpa henni - og allir græða (nema ég auðvitað
)
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Mið 12. Jún 2013 20:57
af °°gummi°°
jæja, ég sé engin bömp á ódýrari tölvum svo ég bömpa bara þessari
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Mið 12. Jún 2013 21:05
af playman
Nei andskotin, hvað er málið með þessar helvítis dell vélar og gjörsamlega overpriced hjá öllum, minnir
mig á gaurin sem reyndi að selja dell vél hérna overpriced í einhverjar vikur þangað til að hann ákvað að henda henni
vegna þess að hann fékk ekki sem að hann vildi fyrir hana.
Ég hef verið að selja þessar vélar á um 6000kr og mér fynnst það í hærri kantinum.
lækkaðu verðið umtallsvert eða settu hana bara á uppboð, þá færðu allaveganna eitthvað fyrir hana.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Mið 12. Jún 2013 21:10
af Hnykill
Þetta er 5 til 8 þús kall.. ekkert meira en það.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 10:18
af °°gummi°°
Það er mun sniðugara fyrir ykkur að bömpa frekar betri tölvum sem er verið að selja ódýrar en þessa. Þá mynduð þið actually gera eitthvað gagn.
Annars eruð þið bara að bömpa tölvunni minni og pirra alla í leiðinni.
Ég skal annars kaupa svona tölvu af ykkur á 6.000 kall
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 10:57
af skoffin
°°gummi°° skrifaði:...Ég skal annars kaupa svona tölvu af ykkur á 6.000 kall
Já! Láttu þá heyra það! Allir sem eiga ekki eins tölvu sem þeir eru til í að selja á 6.000 kall vita ekkert hvað þeir eru að tala um.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:02
af °°gummi°°
Bara standard "put your money where your mouth is"
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:19
af playman
Ég skal alveg selja þér þær allar GX280 vélar sem ég fæ á um 6000kr og þú borgar sendingargjald, það er minnsta málið!
Ég skal meyra að seygja selja þér allar GX280 sem koma í niðurrif til mín á 3000kr plús sendingar gjald, ættir að verða helvíti ríkur á því.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:29
af °°gummi°°
playman skrifaði:Ég skal alveg selja þér þær allar GX280 vélar sem ég fæ á um 6000kr og þú borgar sendingargjald, það er minnsta málið!
Ég skal meyra að seygja selja þér allar GX280 sem koma í niðurrif til mín á 3000kr plús sendingar gjald, ættir að verða helvíti ríkur á því.
Hehe, sendingargjald, hvar í heiminum ertu eiginlega?
En án spaugs, ef þú ert að tala um, 2GB minni og nýstraujuð með XP pro leyfi - ekki spurning ég kaupi hana af þér
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:48
af playman
Það stendur undir nafninu mínu hvar ég er staðsettur.
Vélarnar fara ekki frá mér nema að þær séu ný straujaðar og fulluppsettar og með leyfislykli.
Minnið er flakkandi frá 1-2gb og verðið auðvitað eftir því, og ég er heldur ekki að tala um eina vél, þegar að
ég fæ svona vélar er það ævinlega lágmark 4 vélar í einu, hef mest fengið 30stk í einu.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:51
af °°gummi°°
Flott er, ég er til í eina 2GB til að byrja með þá - ef ég fæ hana á 6.000kall með sendingu
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:55
af playman
Ég skal senda þér eina þegar að ég fæ þær inn til mín, en þú verður að borga
sendingar kostnað, annars get ég alveg eins selt hana í búðinni.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 11:56
af °°gummi°°
playman skrifaði:Ég skal senda þér eina þegar að ég fæ þær inn til mín, en þú verður að borga
sendingar kostnað, annars get ég alveg eins selt hana í búðinni.
Hvað er sendingargjaldið?
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 12:04
af playman
2-3þ
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 12:28
af °°gummi°°
Ok, svo þú ert að segja að ég ætti að borga 8-9þús fyrir svona vél? Eða varstu að tala um að selja mér hana á 3.000 + sendingarkostnað?
Fyrir 6þús myndi ég hiklaust taka hana og gefa einhverjum í fjölskyldunni (veit um allavega 3 lakari tölvur sem eru notaðar í nánustu fjölskyldu til að fara á netið)
Sem er einmitt líka málið með þessa tölvu sem ég er að bjóða, ég ekkert fastur á 20þús verðinu - en ef ég fæ ekkert sæmilegt verð þá mun ég frekar gefa einhverjum í fjölskyldunni hana.
Þetta er algjörlega beisik - þessi tölva er mér einhvers virði til að gefa einhverjum í fjölskyldunni hana. Ef einhvern vantar bara einhverja tölvu fyrir lítinn pening þá sé ég ekki mikið í boði sem er ódýrara.
Skítstormur í kommentaþræði fylgir frítt með
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 13:22
af playman
°°gummi°° skrifaði:Ok, svo þú ert að segja að ég ætti að borga 8-9þús fyrir svona vél? Eða varstu að tala um að selja mér hana á 3.000 + sendingarkostnað?
Þetta yrði heildarkostnaður uppá 8-9þ tölvan+flutningur, hlítur að sjá það ef að ég er að
selja þessar vélar hérna í búðinni á/um 6þ þá get ég ekki farið að senda hana út á land og borgað svo sjálfur sendingar
kostnaðinn, það myndi ekki meika sense.
En gangi þér annars vel með söluna.
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 13:27
af °°gummi°°
Já, mér finnst töff hjá þér að vera að selja svona vélar á 6þús - hvaða búð er þetta?
Re: [TS] Dell borðtölva - 20.000
Sent: Fim 13. Jún 2013 13:36
af playman
Fjölsmiðjan