Síða 1 af 2
500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 11. Feb 2013 21:19
af arnarj
Er með 2 stk svona diska, þeir eru báðir bilaðir en eru í ábyrgð hjá Seagate til 20.maí 2013. Ég er búinn að prófa þá og kominn með test code frá seatools sem útskýrir bilunina. Ég hef ekki nennt að standa í því að senda þá út. Þannig að ef það er einhver sem er vanur að standa í svona þá er ég að spá í að selja diskana.
Sambærilegur diskur kostar nýr 10.750 stk þar sem hann er ódýrastur skv. vaktinni. Athugið að allar umbúðir til að senda diskana út fylgja þannig að það þarf einungis að gera RMA hjá Seagate og senda diskana út.
Seagate Barracuda 7200.11, 500GB:
Model: ST3500320AS
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6822148288Hvað væri sanngjarnt verð fyrir báða diskana? Hver er c.a. kostnaður við að claima diskana?
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Þri 23. Apr 2013 10:22
af arnarj
Endurverk þennan þráð, ef einhver er að fara að senda út diska í RMA þá er núna tækifæri að kippa þessum með fyrir lítinn pening. Svona diskar kosta enn 10.750 kr stykkið skv. verðvaktinni.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Þri 30. Apr 2013 22:27
af qurr
Ertu með kaupnótu?
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Mið 01. Maí 2013 09:57
af arnarj
qurr skrifaði:Ertu með kaupnótu?
Hún ætti að vera til, diskarnir eru samt ekki í ábyrgð hjá íslenskum söluaðila og því lítið gagn í nótunni.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 20:11
af arnarj
........
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 20:31
af Klemmi
arnarj skrifaði:Hvað væri sanngjarnt verð fyrir báða diskana? Hver er c.a. kostnaður við að claima diskana?
Pakkasending með Íslandspóst (sem er ódýrust af sendingaraðilum) fyrir ca. 2kg pakka til Seagate er Svíþjóð er um 3500kr.-
Svo þarf að að láta póstinn útbúa útflutningsskýrslu nema menn kunni það sjálfir, sem er 2500kr.-
Það kostar því um 6000kr.- að senda þessa diska út, ólíkt því sem tíðkast á Íslandi að þá endurnýjast ábyrgðin ekki, svo að viðgerðu diskarnir sem koma til baka, merktir certified repaired, eru aðeins í ábyrgð til 20. maí 2013.
Það tekur diskana ca. 10 daga að komast á afhendingarstað og Seagate tekur sér um 2-3 vikur að skipta þeim út en senda þá svo með hraðsendingu til Íslands.
Heildar ferlið er því 4-5 vikur, ef diskarnir væru sendir út núna væru þeir því í ábyrgð í 2-3 vikur þegar viðgerðu diskarnir lenda hér á landi.
Menn geta svo verðlagt diskana samkvæmt þessum upplýsingum
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 21:08
af KermitTheFrog
Klemmi skrifaði:arnarj skrifaði:Hvað væri sanngjarnt verð fyrir báða diskana? Hver er c.a. kostnaður við að claima diskana?
Það kostar því um 6000kr.- að senda þessa diska út, ólíkt því sem tíðkast á Íslandi að þá endurnýjast ábyrgðin ekki, svo að viðgerðu diskarnir sem koma til baka, merktir certified repaired, eru aðeins í ábyrgð til 20. maí 2013.
Ábyrgðin endurnýjast einungis ef um nýja afhendingu er að ræða. Ef gert er við vöru innan ábyrgðartíma þá endurnýjast ábyrgðin ekki.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 21:41
af Klemmi
KermitTheFrog skrifaði:Ábyrgðin endurnýjast einungis ef um nýja afhendingu er að ræða. Ef gert er við vöru innan ábyrgðartíma þá endurnýjast ábyrgðin ekki.
Í tilfelli harða diska þá er alltaf um nýja afhendingu að ræða, bæði hjá verzlunum hér heima og hjá Seagate.
Ný afhending á ekki einungis við um nýjan hlut, ef þú færð annan eins, viðgerðan hlut, þá endurnýjast ábyrgðin. Enn fremur skal nefna að ef skipt er um einhvern íhlut í bilaðri vöru, þá endurnýjast ábyrgðin á þeim íhlut.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 23:26
af arnarj
flott, takk fyrir þetta. Þannig að sá sem kann að græja útflutningsskýrslu gæti fengið 2 "refurbished" diska með því að leggja út c.a. 3500 kr + það sem ég sel diskana á. Hljómar 4 þ ekki sanngjarnt fyrir báða diskana? Pakkningar fyrir báða diska fylgja. Aðili fær þá 2 diska beint frá Seagate á 7500 kr alls. Nývirði 21500 á íslandi.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 23:36
af Alex97
arnarj skrifaði:flott, takk fyrir þetta. Þannig að sá sem kann að græja útflutningsskýrslu gæti fengið 2 "refurbished" diska með því að leggja út c.a. 3500 kr + það sem ég sel diskana á. Hljómar 4 þ ekki sanngjarnt fyrir báða diskana? Pakkningar fyrir báða diska fylgja. Aðili fær þá 2 diska beint frá Seagate á 7500 kr alls. Nývirði 21500 á íslandi.
Mig minnir að þú getir fengið 1 refurbished disk á 5000 kr í Tölvutek með 6 mánaðar ábyrgð svo ég held að 7500 kr sé of mikið fyrir þá með engri ábyrgð.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fim 02. Maí 2013 23:45
af arnarj
Eins og ég skildi klemma þá endurnýjast ábyrgð ef þú færð nýjan disk?
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fös 03. Maí 2013 10:13
af Klemmi
arnarj skrifaði:Eins og ég skildi klemma þá endurnýjast ábyrgð ef þú færð nýjan disk?
Klemmi skrifaði:svo að viðgerðu diskarnir sem koma til baka, merktir certified repaired, eru aðeins í ábyrgð til 20. maí 2013.
Nei því miður vinur
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fös 03. Maí 2013 10:19
af arnarj
Klemmi skrifaði:ef þú færð annan eins, viðgerðan hlut, þá endurnýjast ábyrgðin.
Ok, þá er textinn hér að ofan væntanlega ekki réttur.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fös 03. Maí 2013 10:27
af KermitTheFrog
arnarj skrifaði:Klemmi skrifaði:ef þú færð annan eins, viðgerðan hlut, þá endurnýjast ábyrgðin.
Ok, þá er textinn hér að ofan væntanlega ekki réttur.
Held hann meini nú bara hérlendis þar sem lögbundin ábyrgð á Íslandi segir nokkurnveginn að þegar vara er afhent út þá er tveggja ára ábyrgð á henni sem söluaðili skal standa við. Það sama gildir ekki um framleiðanda erlendis.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fös 03. Maí 2013 11:19
af arnarj
Alex97 skrifaði:Mig minnir að þú getir fengið 1 refurbished disk á 5000 kr í Tölvutek með 6 mánaðar ábyrgð svo ég held að 7500 kr sé of mikið fyrir þá með engri ábyrgð.
Þetta er ekki rétt enda hljómaði þetta einum of vel. Tölvutek selur endursenda diska frá framleiðanda með 6 mánaða ábyrgð á 20% lægra verði en nýja diska. þeir eiga núna 1TB diska og slíkur diskur kostar 11.120kr (í stað 13.900 fyrir nýjan).
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fös 03. Maí 2013 20:19
af Alex97
arnarj skrifaði:Alex97 skrifaði:Mig minnir að þú getir fengið 1 refurbished disk á 5000 kr í Tölvutek með 6 mánaðar ábyrgð svo ég held að 7500 kr sé of mikið fyrir þá með engri ábyrgð.
Þetta er ekki rétt enda hljómaði þetta einum of vel. Tölvutek selur endursenda diska frá framleiðanda með 6 mánaða ábyrgð á 20% lægra verði en nýja diska. þeir eiga núna 1TB diska og slíkur diskur kostar 11.120kr (í stað 13.900 fyrir nýjan).
Nú síðast þegar ég vissi þá voru þeir á 50% afslætti en það gæti líka verið búið að breyta því.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð)
Sent: Fös 03. Maí 2013 22:15
af arnarj
Alex97 skrifaði:Nú síðast þegar ég vissi þá voru þeir á 50% afslætti en það gæti líka verið búið að breyta því.
Veit einungis að þeir eru á 20% lægra verði en nýjir í dag.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Fös 03. Maí 2013 22:17
af arnarj
Læt báða diskana á 3þ og umbúðir fylgja
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 09:27
af arnarj
arnarj skrifaði:Læt báða diskana á 3þ og umbúðir fylgja
Enginn sem vill ná sér í refurbished diska á slikk?
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 09:35
af Kristján
alveg eins og þú þá nennir enginn að standa í því að senda og bíða og bíða eftir diskunum.
það á enginn eftir að kaupa þetta ef það hangir á þessu einhver vinna, já fólk er latt.
send þú frekar út diskana og fáðu þá nýja og seldu þá þá fyrir miklu meira.... meikar það ekki sens?
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 09:41
af arnarj
Kristján skrifaði:alveg eins og þú þá nennir enginn að standa í því að senda og bíða og bíða eftir diskunum.
það á enginn eftir að kaupa þetta ef það hangir á þessu einhver vinna, já fólk er latt.
send þú frekar út diskana og fáðu þá nýja og seldu þá þá fyrir miklu meira.... meikar það ekki sens?
Ég kann ekki að fylla út þessa skýrslu. Ef einhver kann það verður afraksturinn þeim mun betri. Ég ákvað að bjóða diskana ef það er einhver sem vill ná sér í diska á góðu verði. Ef ekki hendi ég einfaldlega diskunum.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 09:42
af Kristján
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 10:48
af Blue
arnarj Skrifaði:
Ef ekki hendi ég einfaldlega diskunum.
Þetta eru greinilega ekki góð kaup - fyrst þér finnst betra að henda diskunum í stað þess að greiða póstinum 2.500,- fyrir að fylla út eyðublaðið sem þú nennir ekki að fylla út!
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 11:14
af arnarj
Blue skrifaði:Þetta eru greinilega ekki góð kaup - fyrst þér finnst betra að henda diskunum í stað þess að greiða póstinum 2.500,- fyrir að fylla út eyðublaðið sem þú nennir ekki að fylla út!
Rólegir strákar. Diskarnir eru sannarlega "claimable", það liggur ljóst fyrir með því að lesa þráðinn hver kostnaður er en síðan er misjafnt hvað menn vilja greiða fyrir diska. Þó svo að tölvutek mundi selja slíkan diska á 10.750-20% (taka séns á 6mán ábyrgð) þá mundi ég aldrei selja diskana hér á vaktinni á því verði enda mundi ég ekki bjóða ábyrgð. Einnig hef ég ekkert við þá að gera og því minni hvati fyrir mig að standa í þessu, ef mig vantaði diska mundi ég áreiðanlega gera þetta sjálfur. Þetta virðist vera afar einfalt reikningsdæmi ef þráðurinn er lesinn. Ef einhverjir lesa þetta sem eru vanir að senda út bilaða hluti og sjá samt ekki tækifæri í að kaupa diskana þá er þetta líklega ekki góður díll og fellur um sjálft sig 20.maí þegar ábyrgðin rennur út.
Re: 500GB diskar (bilaðir í ábyrgð) á 3þ
Sent: Mán 06. Maí 2013 11:49
af dori
Af hverju gefurðu þessa diska ekki bara og leyfir einhverjum sem nennir að standa í þessu veseni að gera það? Þú tapar engu á því fyrst þú ætlar hvort eð er að henda þeim.
Reyndar alveg góður díll fyrir einhvern sem vantar þetta. En samt varla þess virði m.v. vesenið sem fer í þetta. Pæling, fara tölvuverslanir alltaf í gegnum þetta ferli?