Síða 1 af 1

Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Þri 02. Okt 2012 21:51
af BjarniTS
Fyrir þá sem langar að prófa að eiga eina svona þá er ég að selja tölvu þar sem baklýsingin er farin.
Tölvan kemur án rafhlöðu og rest er umsemjanleg

Mynd

Verð :
25.000 með hleðslutæki + 2GB ram

15.000 án hleðslutækis. + 512 ram

Tölvan hentar vel fyrir þá sem þurfa að nota eitthvað í Mac umhverfi eða vilja einfaldlega tengja sjónvarpið sitt/skjávarpa/skjá við eitthvað skemmtilegt.
Sjálfur er ég að nota sambærilega tölvu tengda við skjávarpa + Apple þráðlaus stjórntæki. Gengur mjög vel.

Það skal tekið fram að vandamál tölvunnar felst í tengingu frá móðurborði og í skjá , en ekki í skjánum sjálfum. Er búinn að prufa þessa tölvu með prufumóðurborði og þar virkar skjár eðlilega.

Mynd

Áhugasamir hafið samband
mail : bjarninn@gmail.com
sími : 8674846 ( Ekki hringja fyrr en eftir átta á kvöldin )

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Mið 03. Okt 2012 02:12
af Xovius
Þessi tengi geta verið leiðinleg, þekki helling af fólki með sama vesen á þessum tölvum, jafnvel skiptir oft bara máli hversu mikill halli er á skjánum. Er ekkert hægt að skipta bara um þetta?

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Mið 03. Okt 2012 21:51
af BjarniTS
Xovius skrifaði:Þessi tengi geta verið leiðinleg, þekki helling af fólki með sama vesen á þessum tölvum, jafnvel skiptir oft bara máli hversu mikill halli er á skjánum. Er ekkert hægt að skipta bara um þetta?

Sæll takk fyrir svarið.

Þannig er mál með vexti að þetta vandamál er ekki í skjánum.
Þetta hefur að gera með móðurborðið sjálft. Tenginguna upp úr borðinu áður en inverter eða nokkuð slíkt er farið að hafa nein áhrif. Það að skipta um inverter lagar ekki vandamálið. Skjástýringin á móðurborðinu er þó í lagi og virkar eðlilega.

Þessi tölva myndi í raun notast bara á sama hátt og Mac Mini myndi notast. Allt virkar , nema baklýsing :)

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Lau 06. Okt 2012 19:14
af BjarniTS
http://www.applefritter.com/node/24774

Þetta getur líka hentað sem vél undir itunes library. Þá getur þú stjórnað allri tónlist sem er spiluð heima hjá þér bara úr iphone símanum þínum til dæmis.

Ekki leiðinlegt að eiga eina gamla hvíta fallega macbook sitjandi ofaná græjunum á góðu kvöldi. Fyrir aðeins 15.000 krónur.

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Sun 07. Okt 2012 00:01
af Plextor
Hvernig getur það verið að baklýsing sé farin ef að skjárinn sé í lagi? Baklýsing er í skjánum sjálfum, þ,e,a,s peran sem að inverterinn kveikir á?

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Sun 07. Okt 2012 12:25
af BjarniTS
Plextor skrifaði:Hvernig getur það verið að baklýsing sé farin ef að skjárinn sé í lagi? Baklýsing er í skjánum sjálfum, þ,e,a,s peran sem að inverterinn kveikir á?

Engin baklýsing Þarna meina ég "baklýsing ekki til staðar"
Er ekki að fara að selja þessa tölvu og láta menn vona að inverter lagi vandamálið.
Bilunin er í móðurborðinu. Hef séð þetta líka í nýrri módelum.

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Sun 07. Okt 2012 22:27
af Dagmar1999
Hæhæ, ertu enn þá með tölvuna?
Ég hef áhuga, en hvað kostar hún ?? :))

Ef hún er enn til nenniru þá að taka hana frá eða?
Sentu mér sem fyrst skiló :)

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Sun 07. Okt 2012 22:39
af lukkuláki
Dagmar1999 skrifaði:Hæhæ, ertu enn þá með tölvuna?
Ég hef áhuga, en hvað kostar hún ?? :))

Ef hún er enn til nenniru þá að taka hana frá eða?
Sentu mér sem fyrst skiló :)



Það kemur fram í upphafsinnleggi hvað vélin á að kosta.
Lastu auglýsinguna ?

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Mið 17. Okt 2012 22:48
af BjarniTS
Þessi er ennþá til.

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Fös 19. Okt 2012 18:56
af BjarniTS
Sweet

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Lau 20. Okt 2012 16:28
af BjarniTS
Munaður.

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Sun 21. Okt 2012 15:04
af BjarniTS
Tim cook.

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Lau 03. Nóv 2012 11:57
af BjarniTS
Steve Wozniak.

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Lau 03. Nóv 2012 22:17
af lukkuláki
Er þetta kaffibolli ? Hvað er þetta hálfur líter ? :)

Re: Macbook 2007 Til sölu (Engin baklýsing) (Lesið vel)

Sent: Lau 03. Nóv 2012 22:39
af Yawnk
lukkuláki skrifaði:Er þetta kaffibolli ? Hvað er þetta hálfur líter ? :)

http://www.youtube.com/watch?v=QRt2_OLY3Ho :megasmile