Síða 1 af 1

[TS]Intel Core I7 3,4GHz - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Mán 30. Júl 2012 21:12
af dabbijo
Ég verslaði þessa frábæru vél í Desember síðastliðnum. Vegna fjármálavandræða er ég að íhuga að selja hana.

Mynd

Hér er tölvan á vef Tölvuvirkni, og setja þeir á hana kr. 180.840:
http://www.tolvuvirkni.is/ip?inc=viewpro&flo=propack&id_top=3138&topl=2292&clfc=3139&head_topnav=TURN_I186

Kassi - CoolerMaster HAF 912 Stórglæsilegur og hljóðlátur Turn með góðri kælingu
Tengi að framan - 2 USB 2.0 tengi, hljóð út og mic
Aflgjafi - 600W hljóðlátur gæða aflgjafi
Móðurborð - Intel - 1155 - ASUS P8Z77-V PRO ATX DDR3
Örgjörvi - 1155 - Intel Core i7 2600K 3.4GHz 22nm 4ra kjarna
Kæling - Hljóðlát og góð örgjörvavifta
Minni - 8 GB Gæða DDR3 Minni 1600MHz 2x4gb kubbar
Skjákort - NVIDIA - Sparkle GTX560 PCIe 1024MB DDR5
Harður Diskur - 1000 GB Seagate Barracuda SATA3 með 32mb Buffer
Geisladrif - Sony Sata 24x DVD +/- R/RW/DL Brennari
Hjóðkort - Gott Innbyggt Hljóðkort á móðurborði
Netkort - Innbyggt á móðurborði


Ef að ég fæ almennilegt tilboð þá sel ég hana.

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz Ivy Bridge - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Mán 30. Júl 2012 22:25
af SDM
Ertu að losa þig við skjá/mús/lyklaborð með tölvunni? Er Windows 7 uppsett í henni?

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz Ivy Bridge - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Mán 30. Júl 2012 22:47
af Gunnar Andri
Hérna ertu viss um að þú hafir keypt hana í desember.

Því eftir minni vitund var ivy bridge ekki kominn þá

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz Ivy Bridge - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Þri 31. Júl 2012 09:03
af dabbijo
Gunnar Andri skrifaði:Hérna ertu viss um að þú hafir keypt hana í desember.

Því eftir minni vitund var ivy bridge ekki kominn þá


Hmm ég er þá að ruglast. PCWizard segir Processor : Intel Core i7 2600K @ 3400 MHz

Breyti auglýsingunni :)

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Þri 31. Júl 2012 09:11
af Tiger
Agalega finnst mér orðið "OFUR" ofnotað hérna á vaktinni...... fátt já eða eiginlega ekkert við þessa tölvu sem flokkast getur undir ofur neitt......

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Þri 31. Júl 2012 10:09
af Gunnar
Tiger skrifaði:Agalega finnst mér orðið "OFUR" ofnotað hérna á vaktinni...... fátt já eða eiginlega ekkert við þessa tölvu sem flokkast getur undir ofur neitt......

sammála, þetta er öflug vél en engin öfur vél.

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Þri 31. Júl 2012 11:43
af oskarandri
Tiger skrifaði:Agalega finnst mér orðið "OFUR" ofnotað hérna á vaktinni...... fátt já eða eiginlega ekkert við þessa tölvu sem flokkast getur undir ofur neitt......


tjaa.... ofur eða ekki ofur.... hann er nú bara að vitna orðrétt í það sem stendur á heimasíðu Tölvuvirkni :roll:

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Mið 01. Ágú 2012 15:17
af hjorturfreyr
Hvaða verð ertu að spá í fyrir þessa tölvu?

Re: [TS]Intel Core I7 3,4GHz - Intel Ofurleikjatölvan

Sent: Mið 01. Ágú 2012 16:05
af bulldog
þetta er ágætis vél en ekkert súper í henni.... gangi þér vel með söluna.