Síða 1 af 1
[Seldur] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Þri 08. Maí 2012 21:46
af stufur
Til sölu iPad 1, 32 GB Wifi + 3G ásamt svartri ZooGue Smart Case.
Það eru rispur aftan á iPadinum, þrátt fyrir að hann hafi í sjaldan verið tekin úr töskunni. Sömuleiðis sjást örfá bitför í einu horninu á töskunni eftir að dóttirin komst í hana. Að öðru leiti lítur pakkinn vel út.
Verð 50 þús.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 21:16
af Nördaklessa
Eru Apple vörur eins og platinum eða antík? hækka í verði því eldri sem þau verða? rólegur á verðinu!
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 21:18
af jobbzi
Nördaklessa skrifaði:Eru Apple vörur eins og platinum eða antík? hækka í verði því eldri sem þau verða? rólegur á verðinu!
Verð að vera sammála honum svoldið dýrt miðað við að þetta er fyrsta útgáfa myndi byrja frá 20.þ
og mig myndi gruna að þetta er ekki í ábyrð lengur ????
og hvar er þetta keypt?
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 21:28
af AntiTrust
Er þetta ekki tæki sem kostaði 130þús fyrir 1.5 ári síðan?
Ekkert að uppsettu verði, IMO.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 21:31
af Nördaklessa
Nördaklessa skrifaði:Eru Apple vörur eins og platinum eða antík? hækka í verði því eldri sem þau verða? rólegur á verðinu!
Afsakið! en ég tók ekki eftir því að þetta er 32GB útgáfa með WI-FI + 3G, iPad 3 32GB er verðsettur á 144.990 kr. í dag...sry, las þetta í flýti, einhverja hluta vegna hélt ég að þetta væri 16gb WiFI......
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 21:49
af halli7
Þetta er nú bara mjög fínt verð.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 22:23
af FuriousJoe
Fyrir iPad 1 ? Teljið upp allt sem iPad 1 hefur frammyfir iPad 2 og hvað þá 3. (veit að þeir eru dýrari út úr búð splunkunýjir og ónotaðir, með 2 ára ábyrgð. Flest raftæki eru dýrari þegar þau eru ónotuð.)
Plús ábyrgðarlaust væntanlega.
Þetta er of hátt verð fyrir spjaldtölvu sem er laaaaangt á eftir deginum í dag.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 22:35
af Nördaklessa
Maini skrifaði:Fyrir iPad 1 ? Teljið upp allt sem iPad 1 hefur frammyfir iPad 2 og hvað þá 3. (veit að þeir eru dýrari út úr búð splunkunýjir og ónotaðir, með 2 ára ábyrgð. Flest raftæki eru dýrari þegar þau eru ónotuð.)
Plús ábyrgðarlaust væntanlega.
Þetta er of hátt verð fyrir spjaldtölvu sem er laaaaangt á eftir deginum í dag.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 22:53
af dori
Maini skrifaði:Fyrir iPad 1 ? Teljið upp allt sem iPad 1 hefur frammyfir iPad 2 og hvað þá 3.
Teldu frekar upp hvað 2 og 3 hafa fram yfir 1. Listinn yrði merkilega stuttur. Öflugri örgjörvi, já. Og hærri upplausn. Þetta myndvéladót. En það er eitthvað sem fæstir virkilega þurfa. Þetta er ekkert út í hött verð fyrir fólk sem langar í spjaldtölvu með 3g og einhverra hluta vegna vill iPad.
50k er allavega nær sanngjörnu verði en 20k eins og sumir virðast halda. Hvað færðu nýtt fyrir 20k í dag? Almenn gæði á spjaldtölvu á því verði væru ekki meiri en á iPad 1, er það nokkuð?
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mið 09. Maí 2012 23:23
af aaxxxkk
Ég seldi Ipad1 16gb wifi+3g á 40 þús fyrir kannski mánuði , þannig þetta er alls ekki glórulaust verð sem hann setur upp.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mán 14. Maí 2012 21:28
af stufur
Gaman að lesa líflegar umræður
Í viðskiptum er það oft þannig að maður setur upp ívið hærra verð en maður ætlar sér að fá hlutinn. Kaupandi er alltaf glaður að ná að prútta verðið niður og allir ganga sáttir frá viðskiptunum. Ef við leggjum hinsvegar spilin á borðið, og tökum þá út möguleikann á að prútta, þá ætlaði ég mér að fá 45 þús fyrir gripinn. Það er sanngjarnt verð fyrir næst dýrustu útgáfun af iPad 1, ásamt tösku. Þeir sem vilja greiða lægra verð fyrir slíka vöru geta leitað annað.
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Mán 14. Maí 2012 22:58
af Demon
stufur skrifaði:Gaman að lesa líflegar umræður
Í viðskiptum er það oft þannig að maður setur upp ívið hærra verð en maður ætlar sér að fá hlutinn. Kaupandi er alltaf glaður að ná að prútta verðið niður og allir ganga sáttir frá viðskiptunum. Ef við leggjum hinsvegar spilin á borðið, og tökum þá út möguleikann á að prútta, þá ætlaði ég mér að fá 45 þús fyrir gripinn. Það er sanngjarnt verð fyrir næst dýrustu útgáfun af iPad 1, ásamt tösku. Þeir sem vilja greiða lægra verð fyrir slíka vöru geta leitað annað.
Sæll hvað ég er sammála þér hérna. Það virðist nefnilega vera að menn hérna inni kannist ekki við prútt og búist bara við að maður selji alltaf á uppsettu verði..
Re: [TS] iPad 1 32GB Wifi + 3G
Sent: Fös 18. Maí 2012 21:31
af stufur
Seldur.