Síða 1 af 1
Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Þri 15. Feb 2011 17:40
af GullMoli
Sælir.
Ég ætla mér að halda uppboð á þessum gullmola.Mér áskotnaðist þessi tölva fyrir svolitlu og mér datt í hug að einhverjir hérna gætu haft áhuga á þessu sem safngrip eða bara til þess að eiga og jafnvel nota.
Ég læt fylgja með lyklaborð sem virkar með tölvunni en ekkert annað. Ég var aldrei með mús en það var svosum engin þörf á því.
Stutt lýsing á þessu:40Mhz örgjörvi.
85mb harðurdiskur.
TURBO takki framaná vélinni sem droppar cache.
Windows 3.1
Þessi tölva var greinilega í eigu fyrirtækisins A. Karlsson hf. Amk er það nafn efst í dos menu'inu. Svo eru nokkrir valmöguleikar tengdir fyrirtækinu sem eru læstir með lykilorði, einhver klár gæji gæti eflaust komist í gegnum það nokkuð auðveldlega
Windows'ið virkar hinsvegar fullkomnlega.
Myndir! Ég setti líka upp video af bootinu, verst að gæðin eru hörmuleg og videoið alltof bjart svo það sést t.d. nánast ekkert í Windowsinu.
Lyklaborðið varð eitthvað rosalega gult á þessari mynd.
http://www.youtube.com/watch?v=qzK5tw9dm7EÞá er það bara uppboð!
Hæsta boð: 3.000kr - klaufiÉg áskil mér rétt til þess að hætta við uppboðið ef mér hentar og neita sölu ef mér líkar ekki hæsta boð.
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Þri 15. Feb 2011 18:26
af Klaufi
Ég á fullt af kortum í slottin í þessari vél!
Það var alltaf svona vél hér heima og önnur svipuð nema á stærð við shuttle.
Bah, 3k!
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 16:18
af GullMoli
Hæsta boð er 3.500 kr
Ég leyfi þessu að vera hérna í einhverja örfáa daga í viðbót.
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 16:36
af capteinninn
Gæti maður tekið allt úr kassanum og sett einhverja epík í hann í staðinn?
Veit að það er vanhelgun á þessum grip en það væri samt mjög hart að hafa þennan kassa fyrir tölvuna sína
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 16:57
af gissur1
hannesstef skrifaði:Gæti maður tekið allt úr kassanum og sett einhverja epík í hann í staðinn?
Veit að það er vanhelgun á þessum grip en það væri samt mjög hart að hafa þennan kassa fyrir tölvuna sína
Já ok láta turbo takkann setja vifturnar á full speed
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 17:10
af CendenZ
Það væri alveg hægt að koma venjulegu ATX móðurborði fyrir, bara með smá lagni, borvél og þjölum.
Sama sagan með PSU.. bara járnsögin ef það þarf að stækka og svo borvél og þjalir.
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 17:39
af GullMoli
Já ætli það sé ekki allt hægt ef viljinn er fyrir hendi
ég skal henda inn mynd af bakhliðinni (hægri hliðin) á eftir.
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 17:54
af tdog
Verst að mod keppnin er búin ...
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 18:02
af pattzi
Er hægt að tengja mús við hana? allavega sýnist mér aftaná að það sé ekki hægt?
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 18:04
af Fylustrumpur
pattzi skrifaði:Er hægt að tengja mús við hana? allavega sýnist mér aftaná að það sé ekki hægt?
Það er ekki mús í dos.... Held ég
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 18:10
af Glazier
Fylgir nóta með?
Hvað er mikið eftir af ábyrgð?
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 18:22
af GullMoli
pattzi skrifaði:Er hægt að tengja mús við hana? allavega sýnist mér aftaná að það sé ekki hægt?
Jújú, ættir að geta notað mús í windows 3.1, amk er músarbendill þar.
Þarft bara mús með svona tengdi
Það hlýtur einhver að eiga svona þokkalega gamla mús
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 20:34
af dori
pattzi skrifaði:Er hægt að tengja mús við hana? allavega sýnist mér aftaná að það sé ekki hægt?
Uss, þekkja menn í dag ekki serial tengi?
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 23:14
af Klaufi
dori skrifaði:pattzi skrifaði:Er hægt að tengja mús við hana? allavega sýnist mér aftaná að það sé ekki hægt?
Uss, þekkja menn í dag ekki serial tengi?
Haha,
Ég held ég eigi serial tengda mús heima
Á einhver skjákort og eitthvað líka..
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Mið 16. Feb 2011 23:34
af hauksinick
Finnst eins og
Kísildalur! eigi að kaupa þessa vél!
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Fim 17. Feb 2011 12:38
af zdndz
Vegna breyttra aðstæðna hjá mér þá verð ég að draga tilboð mitt tilbaka. Byðst innilegar afsökunar á því
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Fim 17. Feb 2011 13:19
af dodzy
Glazier skrifaði:Fylgir nóta með?
Hvað er mikið eftir af ábyrgð?
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Fim 17. Feb 2011 14:38
af Gummzzi
Glazier skrifaði:Fylgir nóta með?
Hvað er mikið eftir af ábyrgð?
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Fim 17. Feb 2011 15:32
af GullMoli
zdndz skrifaði:Vegna breyttra aðstæðna hjá mér þá verð ég að draga tilboð mitt tilbaka. Byðst innilegar afsökunar á því
Minnsta málið félagi, en annars upp bara!
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Fim 17. Feb 2011 17:45
af krukkur_dog
verst að það eru bara ISA brautir í vélinni, væri PCI rauf hefð ég getað smellt einu glæ nýju voodoo2 korti í þessa vél
Re: Gamall gullmoli til sölu, Silicon Valley tölva! (Myndir)
Sent: Fös 18. Feb 2011 20:57
af GullMoli
Jæja ætli þessu ljúki ekki á morgun bara. Hæsta boðið um hádegi á morgun vinnur og viðkomandi má þá sækja hana sama dag!