Síða 1 af 1

Íhlutagúmmelaði

Sent: Lau 29. Jan 2011 15:22
af ellertj
Jæja þá er komið að tiltekt á íhlutalagernum! Ýmislegt í boði, allt í fínu lagi, selst saman eða sér.

1. Móðurborð EVGA 680i 122-CK-NF68-A1. Borð sem fær topp dóma og stendur fyrir sínu enn þann dag í dag.

Lýsing:
http://www.xpcgear.com/122cknf68a1.html

Verð: 13.000kr

2. Móðurborð Asus P5W DH Deluxe, m/innbyggðu WiFi.

Lýsing: Sjá hér (of löng) http://www.amazon.com/Asus-P5W-DELUXE-W ... 196&sr=1-1
Verð. 10.000kr.

3. Kassi Coolermaster Elite. Í honum er kortalesari, DVD skrifari og 2x120mm viftur. Sem nýr!

Lýsing: http://www.coolermaster.co.uk/product.p ... ct_id=5239
Verð 6000kr.

4. Kassi Antec Sonata Designer 500. ÁN PSU. Í honum er kortalesari, Vantec hot swap HDD hýsing, 1x 120mm vifta og 2x 92 viftur að framan. Stílhreinn, hljóeinangraður og flottur kassi hefur verið úthugsaður frá fyrsta degi.

Lýsing: http://www.antec.com/Believe_it/product.php?id=MTEyNw==
Verð. 12.000kr

5. Powersupply High Power 560 Extreme Edition. Eðal fínt modular powersupply.

Lýsing: http://www.highpowersupply.com/hpc5x0A12C.html
Verð:7000kr.

6. (Viðbót). Tvö stykki Coolermaster Hyper TX3 örgrjörfaviftur. Sjá hér. http://tolvutaekni.is/product_info.php? ... cts_id=225

Verð: 2500kr per stk!

Sendið mér PM ef áhugi er fyrir hendi. Ég er með tvær borðtölvur og tvær fartölvur núna þannig að ég er ekki að leita eftir skiptum á tölvuhlutum :) Bæti við fleiri hlutum eftir því sem að tiltektin í geymslunni heldur áfram!

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Sun 30. Jan 2011 11:40
af ellertj
1. Móðurborð EVGA 680i 122-CK-NF68-A1. (SELT)
2. Móðurborð Asus P5W DH Deluxe, (ÓSELT)
3. Kassi Coolermaster Elite (SELT)
4. Kassi Antec Sonata Designer 500. ÁN PSU. ÓSELT
5. Powersupply High Power 560 Extreme Edition. (SELT)
6. (Viðbót). Tvö stykki Coolermaster Hyper TX3 örgrjörfaviftur. Ein eftir, bara fyrir 775.

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Þri 01. Feb 2011 17:53
af ellertj
Ekkert heyrt frá meintum kaupanda að kassanum og Asus móðurborðinu þrátt fyrir bæði SMS og pósta til hans.

Set það því aftur til sölu og læt þá sem áhuga höfðu vita þannig að þeir geti verslað ef áhugi og vöntun er enn til staðar.

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Þri 01. Feb 2011 18:10
af MatroX
Bara benda þér á reglurnar sem gilda hérna.

Reglur skrifaði:4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


ég gef þér séns í þetta skiptið eyddu pósti 2 hjá þér hérna

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Þri 01. Feb 2011 18:25
af ellertj
MatroX skrifaði:Bara benda þér á reglurnar sem gilda hérna.

Reglur skrifaði:4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


ég gef þér séns í þetta skiptið eyddu pósti 2 hjá þér hérna


Hvað ertu að meina? Ég set inn þráð fyrir tveimur dögum, fyrra póst er þráður með lýsingum og verðum ofl, og svo setti ég þann seinni inn til að setja stöðu hlutar, ss selt/ekki selt. Hef ekki einu sinni bömpað þessu? Set síðan inn nýja stöðu (2 dögum seinna) og fæ þá þetta í hausinn..... Ég stytti seinni póstinn til að gera hann læsilegri, var bara ekki búinn að uppfæra hann, ef það er dauða og brottrekstrarsök þá er allt eins gott að eyða notandanum mínum bara strax ](*,)

Og eins og augljóst er þá nota ég "Breyta" takkann óspart.

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Þri 01. Feb 2011 19:34
af MatroX
ég byðst þá afsökunar á þessu. en mér fannst þetta vera það sama og í fyrsta pósti. en allavega finnst að þetta átti bara að vera saklaust bump þá biðst ég innilegrar afsökunar og þetta mun ekki gerast aftur ](*,)

To The Top!!

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Þri 01. Feb 2011 20:34
af ellertj
Takk fyrir það! Það mættu fleiri taka þig til fyrirmyndar, ekki margir sem að taka orð notanda yfir sín og biðjast líka afsökunar! Þú ert maður meiri fyrir vikið =D>

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Fös 04. Feb 2011 14:46
af ellertj
Það er allt selt nema Asus móðurborðið (búinn að halda því í viku fyrir einhvern dúdda) og Antec kassinn.

Hef þetta í sölu fram yfir helgi (á uppsettum verðum) og síðan fer þetta bara inn í geymslu í nýjan Home Server :)

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Mán 07. Feb 2011 01:34
af niCky-
Ein spurning um EVGA nForce móðurborðið, tekur það DDR3 vinnsluminni ?

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Mán 07. Feb 2011 01:45
af andribolla
niCky- skrifaði:Ein spurning um EVGA nForce móðurborðið, tekur það DDR3 vinnsluminni ?


ef þú hefðir nent að lesa með fylgjandi link hefðiru séð að svarið við spurninguni er Nei

Memory 4 x 240-pin DIMM sockets
Dual Channel DDR2
Maximum of 8GB of DDR2 533/667/800/1200MHz SLI-Ready memory

og svo er annað... þetta móðurborð er samt selt þannig þú þarft líklega ekkert að vera að spá í því. ;)

Re: Íhlutagúmmelaði

Sent: Mán 07. Feb 2011 15:38
af ellertj
Það sem andribolla sagði ;)

Upp fyrir flottum hlutum (það sem eftir er).