Síða 1 af 1

Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 11:41
af Viktorkarl
Góðan daginn,

Ég keypti mér flakkara frá EJS árið 2008, og allt gekk vel í nokkur ár.
En svo hrundi hýsingin og ég fór með hana í viðgerð, þá kom í ljós að diskurinn var bara í ábyrgð, ekki hýsingin.

Núna ætla ég að versla mér nýjan sjónvarpsflakkara og vill SATA disk, því ætla ég að selja þennan IDE disk.

Um diskinn:
Seagate Barracude 7200.10

Ég er nú ekki með allar tækniupplýsingar á hreinu, en hérna er slóð á sambærilegan disk:
http://www.newegg.com/Product/Product.a ... 6822148134
With up to 750GB of pure digital storage in a single drive, the Barracuda 7200.10 may be the largest, most reliable disc drive around. New perpendicular recording technology supports vertically stored data bits, enabling increased areal density and dependability for workstations and performance PCs. The hard drive's 3.0 Gb/s Serial ATA interface enables the user to connect to, and work with, other systems at a faster speed without any extra efforts. The hard disk has a 16 MB cache and works at 7200RPM, blowing away the 5400RPM “limit” for large scale hard drives.

Diskurinn er staðsettur í Kópavogi.

Mér hefur verið sagt að 10.000 krónur sé ekki óraunhæft fyrir þennan disk.

Hægt er að senda mér PM hér inná eða hringja í síma 898-3523.

Kv, Viktor.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 11:47
af kubbur
myndi segja að 2 þús væri raunhæf tala, 2 ára diskur, úreld tækni http://vaktin.is/index.php?action=price ... lay&cid=10

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 12:00
af Eiiki
Viktorkarl skrifaði:Mér hefur verið sagt að 10.000 krónur sé ekki óraunhæft fyrir þennan disk.

Mynd

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 13:35
af ZiRiuS
10.000kr fyrir notaðan 750GB 7200RPM IDE disk? Ertu nötts?

Sambærilegur SATA2 diskur er á um 8.000kr nýr.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 13:42
af JohnnyX
ZiRiuS skrifaði:10.000kr fyrir notaðan 750GB 7200RPM IDE disk? Ertu nötts?

Sambærilegur SATA2 diskur er á um 8.000kr nýr.


En það er sata. Ekki sami staðall.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 14:16
af Arnarr
JohnnyX skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:10.000kr fyrir notaðan 750GB 7200RPM IDE disk? Ertu nötts?

Sambærilegur SATA2 diskur er á um 8.000kr nýr.


En það er sata. Ekki sami staðall.


thanks captein obvious :megasmile

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 14:21
af JohnnyX
Arnarr skrifaði:
JohnnyX skrifaði:
ZiRiuS skrifaði:10.000kr fyrir notaðan 750GB 7200RPM IDE disk? Ertu nötts?

Sambærilegur SATA2 diskur er á um 8.000kr nýr.


En það er sata. Ekki sami staðall.


thanks captein obvious :megasmile


Hann var ekki að bera það sama saman svo mér fannst rétt að benda á það

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 15:22
af Viktorkarl
Þá er það komið í ljós að þessi verðhugmynd sem mér var bent á er of há.

Ég ætla ekki að vera þrjóskur og heimta þennan 10 þúsund kall, þannig ef einhverjum skyldi vanta þennan disk þá er þeim aðila velkomið að bjóða í hann.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 17:35
af bulldog
3 þús væri sanngjarnt.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 17:46
af Klemmi
Strákar sorry, en þið eruð í tómu rugli.

Þú berð ekki saman verð á IDE og SATA, svo einfalt er það :)

Hér má sjá verð á IDE diskum: http://www.tl.is/voruflokkur/ihlutir/hardir_diskar_3_5_

Það eru margir sem eru að leitast eftir stórum IDE diskum til að setja í sjónvarpsflakkara sem þeir eiga og taka eingöngu við IDE diskum.
Sama gildir um DDR og SDRAM vinnsluminni, margir tilbúnir til að borga sæmilega fyrir það til að nýta annan búnað áfram.

Almennt er ég ánægður með að passað sé upp á að ekki sé verið að okra, en eins og ég segi, þú berð ekki saman IDE og SATA.

EDIT:
Þess ber svo einnig að nefna að fyrst diskurinn var í ábyrgð, þá er ný 2 ára ábyrgð á honum frá þeirri dagsetningu sem honum var skipt út á.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:00
af ZiRiuS
Klemmi samt sem áður þá kostar þessi IDE diskur (samkvæmt tölvulista linknum) 9.900kr NÝR, þar liggur hnífurinn í kúnni, í ábyrgð eða ekki þá um leið og þú opnar vöru þá lækkar hún um 40% í verði, sem gerir uþb 6000kr, en svo fer það líka eftir notkun og ábyrgð hvað verðið er.

Enn 10.000kr er of mikið fyrir þennan disk, það fer ekki á milli mála.

*edit*

Ég skil ekki alveg þráðinn samt, léstu gera við diskinn? Semsagt er hann ennþá í pakkningunum eða er hann eitthvað notaður?

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:12
af lukkuláki
ZiRiuS skrifaði:Klemmi samt sem áður þá kostar þessi IDE diskur (samkvæmt tölvulista linknum) 9.900kr NÝR, þar liggur hnífurinn í kúnni, í ábyrgð eða ekki þá um leið og þú opnar vöru þá lækkar hún um 40% í verði, sem gerir uþb 6000kr, en svo fer það líka eftir notkun og ábyrgð hvað verðið er.

Enn 10.000kr er of mikið fyrir þennan disk, það fer ekki á milli mála.

*edit*

Ég skil ekki alveg þráðinn samt, léstu gera við diskinn? Semsagt er hann ennþá í pakkningunum eða er hann eitthvað notaður?



Það er ekki gert við diska þeim er skipt út fyrir nýja ef þeir eru bilaðir.
Annað hvort var hýsingin það biluð að það borgar sig ekki að laga hana og hann situr uppi með diskinn eða
bæði var bilað og hann fékk annan disk en hýsingin er samt biluð.

Er diskurinn ennþá í ábyrgð ?

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:14
af JohnnyX
ZiRiuS skrifaði:Klemmi samt sem áður þá kostar þessi IDE diskur (samkvæmt tölvulista linknum) 9.900kr NÝR, þar liggur hnífurinn í kúnni, í ábyrgð eða ekki þá um leið og þú opnar vöru þá lækkar hún um 40% í verði, sem gerir uþb 6000kr, en svo fer það líka eftir notkun og ábyrgð hvað verðið er.

Enn 10.000kr er of mikið fyrir þennan disk, það fer ekki á milli mála.

*edit*

Ég skil ekki alveg þráðinn samt, léstu gera við diskinn? Semsagt er hann ennþá í pakkningunum eða er hann eitthvað notaður?


það er Sata diskurinn

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:34
af beatmaster
500 GB IDE er á 16.990 nýr hjá TL

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 04. Jan 2011 19:34
af Klemmi
Afsakaðu Zirius, það eru mín mistök að ég afritaði vitlaust url, átti að vera þetta hér: http://tl.is/voruflokkur/ihlutir/hardir ... diskar_3_5

PATA diskarnir voru efstir í fyrri linknum frá mér, en þar má sjá að 500GB PATA diskur kostar ~17þús kall. Hér erum við að tala um 750GB sem er að sjálfsögðu verðmætari :)

Skv. því mætti horfa á 10þús sem ca. helming af verði á nýjum disk.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Mán 10. Jan 2011 12:07
af bjarni96
5000kr!!! sendu pm á mig
kv bjarni

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Mán 10. Jan 2011 15:21
af k0fuz
Ég segi nú bara DJÖFULL eru ide diskarnir orðnir dýrir...

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 11. Jan 2011 14:16
af bjarni96
7000KR ekki meir sendu pm

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Þri 11. Jan 2011 15:30
af Viktorkarl
Hættur við sölu.

Re: Til sölu: 750GB IDE harður diskur

Sent: Mið 12. Jan 2011 16:46
af frr
Svona fyrir þá sem þurfa ide disk, þá er svona græja málið : http://www.geeks.com/details.asp?invtid ... 30&cat=CCD
Laus úr viðjum fortíðar.