Síða 1 af 1

Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 20:35
af skrifbord
Verðhugmynd: 10000 kr

Er með til sölu þrjár bilaðar tölvur fyrir tölvugrúskara. Held sé ekkert alvarlegt af þeim en þær eru allar um fimmára gamlar. veit að á einni þarf bara setja upp win stýrikerfi ég kann það ekki.

Vins. hafið samband í pm her

kassatölvur ekki fartölvur svo það sé á hreinu.

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 20:39
af sxf
Kassatölvur. =D>

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 20:41
af rapport
Ef þú veist ekki hvað er í þeim...

Settu inn mynd, hún er 1000 orð.

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 20:46
af skrifbord
get ekki seð að mynd af kassanum sýni neitt.

vill bara losna við þetta

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 21:00
af zedro
Skelltu inn myndum af, kassanum sjálfum, innvolsinu, stökum íhlutum o.s.frv. ;)

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 21:37
af skrifbord
sorry nennni ekki að vera eyða tíma í þannig.

þetta er bara fyrir tölvugúrúin

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 22:55
af Gúrú
skrifbord skrifaði:þetta er bara fyrir tölvugúrúin


Tölvugúrúin elska nefnilega að staðfesta kaup á hlutum sem að þeir vita ekkert um eða að keyra eitthvert að skoða "eitthvað" í stað þess að þú takir nokkrar myndir? 8-[

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Fös 08. Okt 2010 23:10
af rapport
Að sjá bara kassana getur skorið út um hvort þetta sé þess virði...

Ljótur kassi með aflgjafa kostar 1500kr. þannig að ef kssarnir eru ljótir þá er maður að borga 5.500 kr. fyrri elgamalt móðurborð og minni, eitthvað sem flestir hérna eiga auðvelt með að komast í...

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Lau 09. Okt 2010 00:12
af zedro
Zedro skrifaði:Skelltu inn myndum af, kassanum sjálfum, innvolsinu, stökum íhlutum o.s.frv. ;)

skrifbord skrifaði:sorry nennni ekki að vera eyða tíma í þannig.

Ég minnist þess ekki að þetta hafi verið spurning :-k ég var að segja þér að gera það.
Annað hvort myndir eða nákvæmar upplýsingar eða þessum þræði verður læst!

skrifbord skrifaði:þetta er bara fyrir tölvugúrúin

Þú skalt gera þér grein fyrir því að þetta er NÖRDA spjall við viljum vita svo nákvæmar
upplýsingar um vörurnar að hálfu væri hellingur.

"Kassatölvur" get líka flokkast sem 2 gerðir. Turnar og borðvélar. Þannig
þú ert beinlínis að segja okkur ekki neitt.

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Lau 09. Okt 2010 20:36
af skrifbord
vá ! biðst innilega afsökunar. Vildi bara losna við þetta ekki annað.
þar sem ég veit þetta er ekki spes tölvur fanst mér ekki þess virði að vera mynda þær eitthvað.
og ég helt að turnar og borðtölvur væri það sama svona er ég heimskur !
en þetta eru semsagt þá sennilega sem kallað er turnar. allavega geturu ekki haft þetta á borði, venjulega eru svona tölvur hafðar í gólfinu við hlið skrifborðs eða sé fólk með tölvuborð haft í þartilgerðri hillu í tölvuborði.
en aftur afsakið ef ég hef brotið einhverjar "reglur" síðunnar ekki meiningin

Re: Bilaðar kassa tölvur.

Sent: Lau 09. Okt 2010 20:49
af Frost
Endilega skelltu inn myndum og þá muntu auka líkurnar á að losa þig við þetta. :sleezyjoe