Síða 1 af 1
Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 19:05
af Tiger
Er með til sölu 3 túbur af Shin Etsu x23-7783D kælikremi sem er það besta á markaðnum í dag.
Hérna sjáið þið performance samanburð á bestu kælikremunum, og sjáið hvað Shin Etsu kemur best út af kremunum (Indigo xtrem er ekki krem, heldur "plata" sem er brædd við örrann).
Verð, 3000kr túban. Fyrstu kemur fyrstur fær. Bara 3 stk í boði þar sem Danielinn er búinn að panta eina og ég tek eina sjálfur
Kjartan
kjartan@hive.is825-8279
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 19:17
af BjarkiB
Hvað margir ml.?
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 22:20
af Tiger
1 gr.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 22:39
af GullMoli
Snuddi skrifaði:1 gr.
o.o
Á meðan maður borgar 1.490 kr fyrir 4 gr af MX-2
Góður díll samt sem áður fyrir þá alla kröfuhörðustu
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 22:49
af Tiger
Þetta er samt stærri pakkningin af þessu, því það er hægt að fá 0,5gr túbu líka
. Ég hef reyndar aldrei átt kælikrem sem ég hef klárað upp til agna. Oftast týnir maður þessu eða eitthvað áður en maður notar þetta aftur. Þetta 1gr dugar örugglega í nokkur skipti ef maður setur þetta rétt á. Eins og ég sagði um daginn, tók þetta bara með öðru dóti svo þeir sem vilja það besta geta fengið, þarf engan vegin að selja þetta og það er sama og engin álagning á þessu hjá mér.
P.s. 2stk bara eftir.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 23:52
af dadik
Ég vil benda lesendum á að skoða grafið vandlega því að framsetningin á því er afar villandi svo ekki sé meira sagt.
Ef skalinn væri frá 0°upp í 100°sæist betur að það er sáralítill munur á þessum kremum - í kringum 2°munur á því besta og því versta sem er nánast ekki neitt. Þetta er algent trikk þegar ýkja á niðurstöður þ.e. að klippa neðan af grafinu þannig að það líti út fyrir að munurinn sé meiri en hann er.
Í framhaldi af því geta menn svo velt fyrir sér hvort að tæplega 2°C lækkun sé 3000 kr. virði.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mán 07. Jún 2010 23:53
af vesley
dadik skrifaði:Ég vil benda lesendum á að skoða grafið vandlega því að framsetningin á því er afar villandi svo ekki sé meira sagt.

Hver einasta gráða skiptir virkilega miklu máli ef þú ert að "overclocka" .
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Þri 08. Jún 2010 00:05
af Tiger
dadik skrifaði:í kringum 2°munur á því besta og því versta
Það er bara af og frá, því þetta eru 5 top kælikremin á markaðnum sem er verið að prófa þarna... þannig að ef þú tækir t.d. stock krem sem fylgir með (sem margir nota óvitandi hversu mikilvægt er að nota gott krem) og annað drasl þá væriru með mun meiri munur þarna.
Og já þetta eru "bara" 2° og held að hver heilvita maður hafi áttað sig á því. Og eins og Vesley segir þá skiptir hver einasta gráða máli hjá þeim sem eru í þessu af einhverju viti (greinilega ekki allir). Og fólk er að lappa örrana og margt fleirra til að ná hitanum niður um nokkrar eða jafnvel eina gráðu, þá er þetta ansi ódýr og safe viðbót. Fólk eyðir 100k í alvöru vatnskælingu til að ná niður 10-15°... það er slatti af þúsundköllum fyrir hverja gráðu. Þannig að 1500kr fyrir hverja gráðu er vel sloppið
En gott að þú sért að passa uppá að vaktarar verði ekki sviknir af óprúttnum náungum sem setja gröf upp á þennan hátt
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Þri 08. Jún 2010 00:09
af dadik
*geisp*
Ætli þú náir ekki svipuðum árangri með því að opna gluggann á herberginu þínu.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Þri 08. Jún 2010 00:12
af GullMoli
dadik skrifaði:*geisp*
Ætli þú náir ekki svipuðum árangri með því að opna gluggann á herberginu þínu.
Hvað með að opna glugga OG nota kælikremið!
Annars efast ég um að nokkur maður sé með lokaðan glugga þar sem tölva er í gangi, amk ekki í þessum hita.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Þri 08. Jún 2010 00:22
af Tiger
dadik skrifaði:*geisp*
Ætli þú náir ekki svipuðum árangri með því að opna gluggann á herberginu þínu.
Hvað hefur þú svona á móti því að það sé verið að bjóða uppá möguleika fyrir þá sem vilja gott kælikrem hérna? Ekki alveg að skilja tilgangin í þessum þráðum hérna hjá þér. Ekki eins og ég sé með gróðarmaksínu í gangi hérna með 4stk af 3000kr túbum með svo til engri álagningu...
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Þri 08. Jún 2010 02:40
af BjarniTS
dadik skrifaði:Ég vil benda lesendum á að skoða grafið vandlega því að framsetningin á því er afar villandi svo ekki sé meira sagt.
Ef skalinn væri frá 0°upp í 100°sæist betur að það er sáralítill munur á þessum kremum - í kringum 2°munur á því besta og því versta sem er nánast ekki neitt. Þetta er algent trikk þegar ýkja á niðurstöður þ.e. að klippa neðan af grafinu þannig að það líti út fyrir að munurinn sé meiri en hann er.
Í framhaldi af því geta menn svo velt fyrir sér hvort að tæplega 2°C lækkun sé 3000 kr. virði.
Þetta er nákvæmlega rétt hjá þér.
Gröf eru oft notuð í akkurat þessum tilgangi , að reyna að sýna fram á meiri mun á einhverju heldur en hann er svona í raun og veru.
En samt vitum við allir hérna að Snuddi umræddur er að selja góða vöru og er að bjóða sanngjarnt verð fyrir þá sem vantar svona , finnst innleggið frá dadik ekkert dónalegt þar sem að hann orðar það bara mjög smekklega og hreinskilið.
En auðvitað telur hver gráða þegar að menn eru að eltast við gráðutölur , gráðu fyrir gráðu.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 12:07
af Tiger
2stk eftir.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 12:40
af Einarr
kalt nitur (Köfnunarefni) er auðvitað eina vitið á tölvuna þína ef þú villt halda henni kaldri
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 13:33
af chaplin
dadik skrifaði:Ég vil benda lesendum á að skoða grafið vandlega því að framsetningin á því er afar villandi svo ekki sé meira sagt.
Ef skalinn væri frá 0°upp í 100°sæist betur að það er sáralítill munur á þessum kremum - í kringum 2°munur á því besta og því versta sem er nánast ekki neitt. Þetta er algent trikk þegar ýkja á niðurstöður þ.e. að klippa neðan af grafinu þannig að það líti út fyrir að munurinn sé meiri en hann er.
Í framhaldi af því geta menn svo velt fyrir sér hvort að tæplega 2°C lækkun sé 3000 kr. virði.
Held að þetta sé nú ósköp lítið "trick" og ekkert villandi
fyrir meðalgreindan mann, ef menn kunna að lesa á línurit þá plata þetta engann..
Þetta er svona svo menn geti nú lesið og séð hver raunverulegi munurinn er. Ef línuritið væri 0-100°c þá væri lítið hægt að lesa á það..
Snuddi er að selja þessi kælikrem á kostnaðarverði, keypti 4 auka túbur svo við "extreme" gæjjarnir sem vilja fara alla leið getum líka prufað þetta. Ég er með þetta á örgjörvanum, er núna bara eftir að setja þetta á norðubrúnna og alveg örugglega skjákortið ef ég þekki mig rétt..
Mér finnst þessar 3.000kr svo alveg þess virði.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 15:51
af Klemmi
Svo má að sjálfsögðu nefna að þetta kostar ekki 3000kr.- meira heldur en kælikremin sem verið er að bera þetta saman við, heldur ca. 1500kalli..... Kemur reyndar á móti að yfirleitt koma þau í stærri túpum
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 16:53
af einarhr
daanielin skrifaði:dadik skrifaði:Snuddi er að selja þessi kælikrem á kostnaðarverði, keypti 4 auka túbur svo við "extreme" gæjjarnir sem vilja fara alla leið getum líka prufað þetta. Ég er með þetta á örgjörvanum, er núna bara eftir að setja þetta á norðubrúnna og alveg örugglega skjákortið ef ég þekki mig rétt..
Mér finnst þessar 3.000kr svo alveg þess virði.
Þetta er öruglega fínasta vara en ég verð nú að gera athugasemd við kostnaðarverðir sem þú segir að hann sé að selja þetta á ss 3000 kr. Ég hef fundið þetta kælikerm á nokkrum vefsíðum á verðiðu 6.99$ til 9.99$ sem gera ca á genginu í dag ca 1300 iskr án vsk og ca 1620 m/vsk. Samkvæmt þessum reikningi þá er það ca 85% álagning á þessu hjá honum.
6,99$
http://www.thermalfx.com/merchant2/merchant.mvc?Screen=PROD&Product_Code=X23-7783D&Category_Code=THERCOMP&Store_Code=T9,99$
http://www.crazypc.com/products/x23-778d-50119.html
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 17:10
af Leviathan
Plús sendingargjald, tollgjöld o.þ.h.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 17:14
af Halli25
Leviathan skrifaði:Plús sendingargjald, tollgjöld o.þ.h.
prófaði að smella 5 stk. í pöntun á Thermal FX síðuna og sendingarkostnaðurinn er jafn mikill og verðið
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 17:40
af sakaxxx
buy.is voru nú að selja þetta fyrir ca 2 mánuðum á 1990 3000 er frekar hátt miðaðvið það
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 17:44
af einarhr
Það eru engir tollar á tölvuvörum og kælikrem ætti nú að falla undir það.
Auðvita getur það verið kostnaðarsamt að kaupa eina 1 gr túpu og láta senda hana heim en td þegar maður kaupir td skjákort eða örgjörva og lætur senda hann heim þá er það ekki mikil sendingarkostnaður á kælikreminu.
Btw miðað við það sem Danelinn skrifar þá hef ég nú trú á því að Buy.is hafi flutt þetta inn fyrir Snuddan og tekið þetta með stærri sendingu af tölvuvörum og þá er það nú hálf asnalegt að segja að sendingarkostnaður sé mikill.
Ps. ég veit ekkert um það hvort Buy.is tók þetta inn en mig grunar það
Pss póstið endilega link á síðuna sem Snuddinn keypti þetta!
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 17:46
af einarhr
sakaxxx skrifaði:buy.is voru nú að selja þetta fyrir ca 2 mánuðum á 1990 3000 er frekar hátt miðaðvið það
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 17:47
af Leviathan
faraldur skrifaði:Leviathan skrifaði:Plús sendingargjald, tollgjöld o.þ.h.
prófaði að smella 5 stk. í pöntun á Thermal FX síðuna og sendingarkostnaðurinn er jafn mikill og verðið
Svo er alltaf eitthvað tollmeðferðargjald, minnir að það sé fastur 500-1000 kall svo bætist tollur og vsk ofaná verðið með sendingarkostnaðinum. Finn þetta ekki á buy.is lengur svo það er ekkert hægt að miða við það.
EDIT: Á erfitt með að aparnir í tollinum flokki þetta sem tölvuvöru.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Mið 09. Jún 2010 19:30
af chaplin
Fyrir hönd Buy.is
Við vorum að selja það á 1.990kr(0kr álagning), aftur á móti þurftum við líka að kaupa heilan kassa af þessum sprautum, man nú ekki hvort það var 10-20 stk þá saman. Megin kostnaðurinn við þetta er flutningurinn. Ef þetta kostar 1.631kr /m. vsk er eftir að reikna flutningskostnað og svo eitthvað gjald sem ég man 0 hvað heitir sem leggst ofaná þetta líka. Getur vel verið að hann sé að græða 100-200kr per sprauta, en "Verð: 2783kr" kemur pínu silly út, 3.000kr þykir þæginlegra.
En eins og hann tók fram, ég keypti sjálfur sprautu af honum - það er alveg ástæða fyrir því, fannst þetta mjög sanngjarnt verð.
Svo skulum við líka ekki gleyma því, að per sprautu er ekki bara 1 skipti. Ég veit ekki hvað marga kjaran ég get smurt með MX-2 4GB túbunni minni, en alveg mjööög mikið. Ef 3 myndu kaupa svona túbu saman þá væri það 1.000kr á kjaft fyrir nokkrar gráður niður + örugglega afgangur.
Re: Shin Etsu x23-7783D kælikrem...það besta
Sent: Fim 10. Jún 2010 13:07
af Tiger
Ha ha ha ha eru þið að grínast, er virkilega umræða hérna um það hvort ég sé að græða 1203kr eða 911kr á þessum 4 túpum sem ég er að selja... jahérna hérna segi ég nú bara
Nei Buy.is flutti þetta ekki inn fyrir mig á nokkurn hátt.