Síða 1 af 1

Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Mán 10. Maí 2010 21:55
af Cam
Sælir og verið hjartanlega velkomnir í bílskúrssölu Þorsteins!

Hér er margt að sjá og fá!

Meðal annars er þar að finna 1x gæða turntölvu frá árinu 2008, 1x 24" snilldar skjá, 1x PS3, 1x Lenovo X200 fartölvu og margt margt fleirra.
Verð eru birt með fyrirvara um hálfvitaskap og ef þið vitið um sanngjarnari verð þá tek ég tillit til allra þeirra ábendinga (ef þið getið að sjálfssögðu rökstutt málflutning ykkar.)

Mæli með að fólk kíki á þessa snilld. Allt verður að fara einhverntíman.

http://www.bilskurssalan.blogspot.com

Óska ekki eftir tilboðum í EP eða hér í þráðinn.
Sendið mér línu á thethorsteinn[at]gmail.com eða hringið í mig gegnum númerið á síðunni.
Mynd

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Mán 10. Maí 2010 22:28
af Cam
Nákvæmir speccar og allt tilheyrandi er að finna á síðunni.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 00:13
af ColdIce
Ég býð 10.000 í Dell skjáinn

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 01:01
af biturk
hvað kostaði fartölvan ný?

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 01:59
af KC-109
15þ. í Dell skjáinn

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 09:45
af Cam
Ég verðlagði bæði skjáinn og fartölvuna í því sem ég taldi vera rökréttu verði miðað við núverandi verð sambærilegra hluta.

2010 útgáfan af skjánum frá Dell kostar hjá EJS 230.000kr.
http://ejs.is/Pages/964/ItemNo/U2410

Ný útgáfa af X200 fartölvunni (X201) kom nýlega út og er til sölu hjá Nýherja á 360þús. Þessi nýja útgáfa heyrist mér í rauninni bara hafa uppfærslu á örranum í i5. Mig minnir einnig að X200 hafi kostað umþb. 250þús hjá þeim áður en þessi kom til.
http://www.netverslun.is/Verslun/produc ... 11540.aspx

Ef það þykir algjör vitleysa að verðleggja hluti sem eru í mjög góðu ástandi samkvæmt þessu þá er ég vel til í að íhuga það.

Ég ítreka að ég tek ekki við tilboðum í þessum þræði eða í EP hér.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 09:49
af ColdIce
Ég bara skil ekki viðbragðstímann í svona dýrum skjá :s

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 11:02
af kari82
Þessi dell skjár er ætlaður í myndvinnslu og er með S-PVA panel sem sýnir 105% af adobe rgb 1998 litamenginu, flestir TF panel skjáir sýna um 70-80%, http://www.anandtech.com/show/2518/15

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 11:46
af Cam
Kari82 er með þetta á hreinu, íhuga samt öll raunsæ tilboð í hann. (þ.e.a.s. ekki 15þús)

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 13:16
af Cam
Ef einhver gæti gefið verðhugmynd á turninn þá væri ég einnig mjög þakklátur, er ekki viss hvað svona á að fara á.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 14:56
af audiophile
ColdIce skrifaði:Ég bara skil ekki viðbragðstímann í svona dýrum skjá :s


Þetta er ekki leikjaskjár heldur myndvinnsluskjár með dýrari panel. Sýnir miklu stærra litrými og stærra sjónsvið. Þetta er allt annað kvikindi en t.d. BenQ og aðrir ódýrir skjáir.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 20:22
af Cam
Bump fyrir verðlagningu á turninum!
Væri svakalega sáttur ef einhver gæti gefið mér ruff hugmynd á hvað turn með þessum íhlutum er að fara á þessa dagana!

kv. einn í vandræðum d: ;O

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 11. Maí 2010 22:43
af playmaker
Gæti trúað að þessi turn sé svona 55-65 þús u.þ.b.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Mið 12. Maí 2010 10:48
af muntok
Pm sent

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Mið 12. Maí 2010 22:52
af MrT
Vá.. Þvílík vanþekking hjá þessum skjádissurum að jafnvel aðeins tjáning á henni jaðrar við óvirðingu.
Vá. :P

En þessi skjár er heldur engan vegin óæðri í neinum leikjum. Þeir sem eru að dissa refreshið á þessum skjá eru væntanlega þeir sömu og tíkast yfir contrasti. ;)

Cam.. mæli með að þú seljir hann ekki undir 80k. Ég myndi ekki einu sinni selja mína eldri gerð mikið undir það.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Fim 13. Maí 2010 02:19
af BjarniTS
biturk skrifaði:uhummmm

80 þúsund fyrir þennan skjá :o

er hann með demöntum í baklýsingunni?




hvað kostaði fartölvan ný?


Kemur ekkert við hvað hann borgaði fyrir hana nýja , þú getur bara skoðað gangverðið á þeim.
Það eru til dýrir skjáir þó að þú hafir ekki endilega efni á þeim.

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Fös 14. Maí 2010 17:28
af biturk
BjarniTS skrifaði:
biturk skrifaði:uhummmm

80 þúsund fyrir þennan skjá :o

er hann með demöntum í baklýsingunni?




hvað kostaði fartölvan ný?


Kemur ekkert við hvað hann borgaði fyrir hana nýja , þú getur bara skoðað gangverðið á þeim.
Það eru til dýrir skjáir þó að þú hafir ekki endilega efni á þeim.



skiptir nú bara öllu máli hvað hún kostaði ný bjarni og þú ættir að vita það sjálfur, þá getur maður meira gert sér grein fyrir því hvað maður borgar fyrir hlutinn.

ég viðurkenni alveg að ég var fljótur á mér þarna, en persónulega fynnst mér þetta aðeins og hátt


og jú reindar, þá á ég efni á þessum skjá, gæti keipt hann en ég þarf ekki að nota skjá í myndvinnslu og hann nýtist mér ekki neitt :lol:

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 18. Maí 2010 10:16
af joigess
sæll, heyrðu ég ætla að taka Call of Duty : Modern Warfare 2 ef ég fæ hann á 3000 kr. hvar get ég nálgast hann ?

Re: Bílskúrssala Þorsteins: 1x Turn 1x fartölva 1xSkjár ofl.ofl.

Sent: Þri 18. Maí 2010 20:27
af techseven
ColdIce skrifaði:Ég bara skil ekki viðbragðstímann í svona dýrum skjá :s



Ég skil ekki þetta snobb í fólki með viðbragðstíma ](*,)

Ég átti 19" Hansol skjá sem kostaði á sínum tíma 70.000 kall, minnir að það hafi verið 2003 eða 2004, hann var 25ms og ekki til ghosting í honum, hvorki í leikjum eða video...