Síða 1 af 2

[SELT!]Gigabyte HD5850 1GB til sölu 40.000+GPU[SELT!]

Sent: Þri 27. Apr 2010 20:25
af beatmaster
Ég á hérna Gigabyte HD5850 kort sem að gæti verið til sölu með eftirfarandi skilyrðum, kortið var keypt nýtt af Buy.is fyrir tæpum 2 mánuðum.
Allt sem að fylgdi kortinu nýtt fylgir í sölunni, meira að segja kassinn

Eftirfarandi er skilyrði fyrir sölu: 40.000 kr. í pening ásamt skjákorti (ekkert MX440 samt) og ég verð að sætta mig við skjákortið

Ég endurtek að 40.000 er lægsta mögulega peningaupphæð sem að ég tek við ásamt skjákorti í hressari kantinum engum öðrum tilboðum verður svarað :)

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Þri 27. Apr 2010 21:17
af Jimmy
Hvaða caliber af skjákorti hefuru í huga?

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Þri 27. Apr 2010 21:25
af beatmaster
Hvað sem er í boði :)

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 10:22
af Bengal
Nýtt kostar 50þúsund...

Gangi þér vel með þetta! =D>

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 11:40
af corflame
Þannig að þú vilt s.s. fá sem svarar virði nýs skjákorts (eða meira jafnvel) út úr búð fyrir þetta notaða kort?

Bjartsýnn :roll:

Væri kannski raunhæft ef það væri ekki þessi krafa um annað skjákort á milli.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 12:19
af beatmaster
Virði nýs skjákorts fer nú bara alfarið eftir kortinu sem að ég fengi á milli ekki satt?

Nákvæmlega eins kort kostar 56.900 hjá Tölvutek

Þú getur fengið MSI kort á á 49.950 kr hjá Tölvuvirkni

Það eru 22 mánuðir eftir af ábyrgð.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 15:55
af corflame
Það skiptir litlu hvað tölvuhlutur hefur verið notaður lengi, eftir 1-3 mánuði er 20% afföll af gangverði ekkert óalgengt, 35% (jafnvel meira) eftir árið.

Þess vegna sagði ég að þetta væri raunhæft ef það væri ekki krafa um annað skjákort "í hressari kantinum" á milli. (80% af 50þ er 40þ)

Gangi þér vel með söluna.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 16:09
af vesley
beatmaster skrifaði:Virði nýs skjákorts fer nú bara alfarið eftir kortinu sem að ég fengi á milli ekki satt?

Nákvæmlega eins kort kostar 56.900 hjá Tölvutek

Þú getur fengið MSI kort á á 49.950 kr hjá Tölvuvirkni

Það eru 22 mánuðir eftir af ábyrgð.



það er nákvæmlega enginn munur á ATI 5000 series kortunum sem eru með stock kælingunni (eini munurinn er accessories)

svo MSI er í rauninni líka nákvæmlega eins fyrir utan límmiðann.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 16:10
af beatmaster
corflame skrifaði:Það skiptir litlu hvað tölvuhlutur hefur verið notaður lengi, eftir 1-3 mánuði er 20% afföll af gangverði ekkert óalgengt, 35% (jafnvel meira) eftir árið...


Allt spurning um framboð og eftirspurn, þú ert kanski til í að benda á alla þræðina þar sem verið er að selja notuð 5850 til að sýna mér hvað þessi kort eru að seljast á notuð.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 21:18
af beatmaster
Ef að menn eru með mjög nýleg öflug kort í skiptum þá er ég alveg til í að skoða lægri peningaupphæðir

kort sem að koma til greina í undir 40.000 kr. flokkinn eru

HD4770
HD4830
HD4850
HD4870
GTS 250
GTX 260

Ég setti þetta bara svona fast upp því að mig langaði ekki til að fá tilboð um "FX5200+5000 díll?" eða álíka

Ég er að fá nóg af kjánalegum tilboðum í tölvuna mína í hinum þræðinum mínum eða væru rosalega margir hérna inni til í að selja það sem að þeir voru að kaupa á 170.000 kr fyrir gamlan lappa metinn á kanski 60.000 max og 30.000 kr :roll:

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 21:22
af Jimmy
Þetta er þá væntanlega þetta kort?
Frekar heldur en þetta kort?

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 21:28
af beatmaster
Þetta er alveg eins og Tölvutekskortið nema keypt af Buy.is

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 21:29
af Jimmy
Óóó, ollræt, snilld.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 21:32
af beatmaster
Þetta er kortið sem um ræðir í eigin persónu
HD5850.JPG
HD5850.JPG (80.48 KiB) Skoðað 1623 sinnum

hd5850-2.JPG
hd5850-2.JPG (75.39 KiB) Skoðað 1622 sinnum

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 22:23
af Gunnar
myndi ég sá einhvern mikinn mun ef ég myndi taka þetta fyrir mitt? :?

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 22:35
af beatmaster
Þú myndir sjá mun (skoða hér)

Hvort að þú myndir mikið finna fyrir þessum mun er hins vegar annað mál

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Mið 28. Apr 2010 23:06
af Gunnar
og seinni spurningin sem ég hefði átt að setja í með fyrra posti :)
dugar þessi? http://www.zumaxpower.com/products/zu650w.htm
og hvað myndirðu vilja mikið á milli í pm?

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fim 29. Apr 2010 11:40
af corflame
beatmaster skrifaði:
corflame skrifaði:Það skiptir litlu hvað tölvuhlutur hefur verið notaður lengi, eftir 1-3 mánuði er 20% afföll af gangverði ekkert óalgengt, 35% (jafnvel meira) eftir árið...


Allt spurning um framboð og eftirspurn, þú ert kanski til í að benda á alla þræðina þar sem verið er að selja notuð 5850 til að sýna mér hvað þessi kort eru að seljast á notuð.


Þumalputtareglan var alltaf 30-35% afföll nánast við það að ganga úr búðinni með vöruna, en hefur væntanlega eitthvað minnkað "í kreppunni", því endurtek ég, 20% - 35% afföll innan árs.

Eina ástæðan fyrir því að ég var að tjá mig um þetta var sú hvernig auglýsingin hljóðaði og mér fannst það heldur hátt verðlagt. (Minni á, "Varúð, verðlöggur")

En ætla ekkert að tjá mig um þetta frekar. Ég hef mínar skoðanir á þessu, þú hefur þínar og þar við situr.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fim 29. Apr 2010 12:25
af beatmaster
Það eina sem að ég var að reyna setja fram í þessum pósti þarna var að til þess að einhver geti keypt notaða voru með 35% afföllum af tveggja mánaða tímabili frá því að hún var keypt ný verður einhver að vera til staðar sem að er til í að selja hlutinn sinn með þessum 35% afföllum, ef að sá aðili er ekki til staðar þá er væntanlega ekki hægt að kaupa þetta þannig

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fim 29. Apr 2010 12:31
af Halli25
Líka spurning um framboð og eftirspurn og framboðið er lítið á þessum kortum :)

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fim 29. Apr 2010 17:56
af beatmaster
Vel mælt :)

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fim 29. Apr 2010 18:08
af ingibje
varla spurning um framboð eða eftirspurn þegar hann er að fara framm á sama verð og það kostar nýtt.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fim 29. Apr 2010 19:46
af beatmaster
Þetta er fínasti díll fyrir einhvern sem að á 8800 eða 9600 kort liggjandi hjá sér á lausu ásamt 40.000 kr. :)

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fös 30. Apr 2010 08:24
af ingibje
8800 hefur nú verið að fara á 8000k+ svo þá ertu að tala um 48. þúsund í heildina. ætla ekki að tjá mig neitt frekar enn mér finnst þetta agalegur díll fyrir kaupandann.

Re: Gigabyte HD5850 1GB mögulega til sölu 40.000+GPU

Sent: Fös 30. Apr 2010 10:10
af beatmaster
ingibje skrifaði:8800 hefur nú verið að fara á 8000k+ svo þá ertu að tala um 48. þúsund í heildina. ætla ekki að tjá mig neitt frekar enn mér finnst þetta agalegur díll fyrir kaupandann.
Ég hef meiri áhyggjur af seljandanum