Síða 1 af 1

Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:06
af flexi
Góðan daginn ég er með frábær lyklaborð. Þau eru gerð úr sílikoni þaning þau eru vatnsheld, rykheld og þú getur rúllað þeim upp þaning þetta er tær snilld.
Hér er video til útskýringar.

http://www.youtube.com/watch?v=gKyMlUB8gL0

Endilega sendið á mig e-mail lyklabord1@gmail.com

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:09
af Tiger
Sama og Rúmfatalagerinn var að selja á 990kr sýnist mér :)

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:09
af Gúrú
Snuddi skrifaði:Sama og Rúmfatalagerinn var að selja á 990kr sýnist mér :)


Hehehe við erum óþolandi fyrir farandsölumenn. :roll:

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:13
af flexi
já en mitt er betra þetta sem er í rúmfatalagernum kostar 2000 kall og ég er að selja mitt á það sama.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:14
af Gúrú
flexi skrifaði:já en mitt er betra þetta sem er í rúmfatalagernum kostar 2000 kall og ég er að selja mitt á það sama.

Rökstyddu ef að þú ætlar að segja eitthvað svona, það er alltaf solid.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:19
af flexi
oki t.d. takkarnir eru betri og þess valdandi að þú þarft ekki að negla á þá.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:23
af Gúrú
Solid rökstuðningur, SOLD! =D>
Ert alls ekkert hlutdrægur heldur.

En fyrst að þetta var bara "t.d.", komdu þá með þetta allt, því betri rökstuðningur, því líklegra að sala eigi sér stað.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:34
af dori
Ef þú trúir því ekki að þetta sé betra en það sem Rúmfatalagerinn var með geturðu örugglega fengið að prufa hjá honum. Ef þú hefur ekki áhuga á þessari vöru er allt í lagi að leyfa honum að vera.
Það er eitt að vera verðlögga en það er annað að vera að ásækja alla sem reyna að selja eitthvað hérna.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:37
af flexi
þakka þér dori ég trúi því að þetta er betri vara og ef þú trúrir því ekki þá skaltu bara koma og prófa hana hjá mér gúrú.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:38
af Sphinx
:shock: hvar er space takkin a þessu

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 16:39
af Gúrú
dori skrifaði:Ef þú trúir því ekki að þetta sé betra en það sem Rúmfatalagerinn var með geturðu örugglega fengið að prufa hjá honum. Ef þú hefur ekki áhuga á þessari vöru er allt í lagi að leyfa honum að vera.
Það er eitt að vera verðlögga en það er annað að vera að ásækja alla sem reyna að selja eitthvað hérna.

Ef hann hefði ekki komið með órökstudda skoðun og sagt hana eins og staðreynd þá hefði ég ekki haft neitt á móti því að leyfa þessu að vera. :wink:

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 17:17
af dori
Gúrú skrifaði:
dori skrifaði:Ef þú trúir því ekki að þetta sé betra en það sem Rúmfatalagerinn var með geturðu örugglega fengið að prufa hjá honum. Ef þú hefur ekki áhuga á þessari vöru er allt í lagi að leyfa honum að vera.
Það er eitt að vera verðlögga en það er annað að vera að ásækja alla sem reyna að selja eitthvað hérna.

Ef hann hefði ekki komið með órökstudda skoðun og sagt hana eins og staðreynd þá hefði ég ekki haft neitt á móti því að leyfa þessu að vera. :wink:
Þú ert að misskilja svolítið fast það sem ég er að segja. Þú ert að nigga yfir manninn af því að hann segir að lyklaborðin sem hann sé að selja séu betri en einhver úr Rúmfatalagernum. Hann kemur með ástæðuna fyrir því að hans lyklaborð eru betri (að það sé auðveldara að skrifa á þau) og þú heldur áfram að nigga yfir hann.
Það að takkarnir séu næmari þannig að þú þarft ekki að lemja á þá er staðreynd sem þú getur ekki hrakið án þess að prufa lyklaborðið. Þú settir þetta bara upp í hausnum á þér eins og þetta væri bara hans skoðun.

Tökum svipað dæmi:
Ef ég segi að tölvukassi úr áli sé léttari en einhver svipað útlítandi stálkassi og þess vegna vilji ég fá jafn mikið fyrir minn notaða álkassa og nýr stálkassi kostar útí búð. Ætlar þú þá að nigga yfir mig af því að það að mér finnist álkassinn bara vera léttari?

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 17:25
af Gúrú
Ég nenni þessu ekki þar sem að þú virðist algjörlega neita að sjá mína hlið, og svoleiðis fólk nenni ég ekki að tala við, free bumps fyrir þennan náunga bara.

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Mið 10. Mar 2010 17:54
af Hvati
það gæti t.d hjálpað að senda link á framleiðenda og hvað þetta heitir nákvæmlega, gefa nánari lýsingu...

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Fös 12. Mar 2010 19:35
af Harkee
nauuj nice, ég var einmitt að fara í sund með tölvuna mína, kemur sér helvíti vel

Re: Vatnsheld lyklaborð

Sent: Fös 12. Mar 2010 21:01
af mercury
Harkee skrifaði:nauuj nice, ég var einmitt að fara í sund með tölvuna mína, kemur sér helvíti vel

hhahahahahhaha

en allavegana lýtur þetta alveg nákvæmlega eins út og þau sem voru í RL company :P eins pakkningar og kubburinn lengst til hægri er alveg eins.
annars gangi þig vel með þetta.