Síða 1 af 1

XBOX Media Center

Sent: Mán 11. Jan 2010 21:45
af elinias
Til sölu er original XBOX (ekki 360) sem eingöngu hefur verið notað sem Media Center til afspilunar á myndefni (sjónvarpsþáttum, kvikmyndum, ljósmyndum) og tónlist í sjónvarpi. Í vélinni er 120GB diskur til geymslu efnis.

Vélin er "modduð" með eXecuter kubb sem gerir fólki kleift að spila skrifaða tölvuleiki af dvd diskum svo og beint af harða disknum.

Þetta er allur pakkinn, frá A-Ö. Sjónvarpskaplar sem fylgja eru: 

*** Monster Cable AV Component Video cable : Component kapall með analog hljóði og möguleika á digital hljóði (sem fylgir með, sjá næstu línu). gefur gríðarlega skarpa og góða mynd, sérstaklega gott í ljósmyndum þar sem hægt er að sýna ljósmyndir í hærri upplausn en gengur og gerist sé t.d. composite tenging notuð. ( MYND og upplýsingar : http://bit.ly/8uXM2g )

*** Monster Cable LightWave 100 X XLW100K FO-10 - digital audio cable (optical) - 10 ft : Audio tenging fyrir Component kapalinn til þess að tengja xboxið við optical hljóðinngang á t.d. magnara eða sjónvarpi til þess að ná Dolby Digital 5.1 hljóði. ( MYND og upplýsingar : http://bit.ly/8aLecB )

Vélinni fylgir líka fjarstýring (DVD Remote: 
http://bit.ly/6tnwi0) sem er ómissandi þegar kemur að því að nota hana til að spila sjónvarpsefni. 

Þar fyriri utan fylgir ein leikja-fjarstýring (stýripinni) og vélin getur komið uppsett með tiltölulega nýlegri útgáfu af Xbox Media Center, Emulator fyrir sega (með e-m 80 leikjum) og emulator fyrir Nintendo (gömlu, með e-m 100 leikjum).

Nokkrar góðar skjámyndir af XBOX-inu sem Media Center er að finna hér aftarlega í þessari grein: http://bit.ly/5kIh3G 
og aðalupplýsingasíðan um XBMC er http://xbmc.org/wiki/

ATH: vélinni fylgir ekki Composite / Scart snúra til þess að tengja við eldri sjónvörp, en hana má nálgast mjög ódýrt á eBay eða um 4$ ( http://bit.ly/6L7JCP )

(afsakið ef þessi auglýsing hljómar eins og hún hafi verið samin fyrir fimm ára, en ég póstaði þessu líka á barnalandssíðunum og notendur þar hafa ekki endilega hugmynd um hvað XBOX með xmbc er :P )

Re: XBOX Media Center

Sent: Mán 11. Jan 2010 22:32
af BLADE
hva viltu fá fyrir hana?

Re: XBOX Media Center

Sent: Fös 22. Jan 2010 00:04
af Höddi M
Sæll, hef hugsanlega áhuga.
Sendu mér tölvupóst á "shortcut hjá internet punktur is"

Re: XBOX Media Center

Sent: Fös 22. Jan 2010 01:15
af Darknight
getur þetta tengs ms network staðalnum? s.s. get ég spilað sharaðar möppur af networkinu og netið fyrir að finna subs eins og í windows xbmc?

verðhugmynd? sendu mér pm,

Re: XBOX Media Center

Sent: Fös 22. Jan 2010 11:24
af qwertyman
já þú getur tengst windows share ( smb ) án vandamála. Hef verið með svona setup þar sem ég streamaði af turnvélinni inn á xboxið, tær snilld.