Síða 1 af 1

[TS] Google Nexus One

Sent: Fim 07. Jan 2010 20:26
af bolti
Sælir vaktarar,

Ég er að fá eitt stykki Google Nexus One til mín í lok næstu viku og hef ákveðið að selja hann hérna.

Mynd
Verðið er 129þ krónur

Upplýsingar um síman má finna á http://www.google.com/phone

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 16:37
af bolti
Engin áhugi á þessu?

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 16:55
af corflame
Held að það sé aðallega verðið sem standi í mönnum, græjan sem slík er eitthvað sem flestir slefa yfir held ég.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 17:42
af emmi
Fengi mér frekar HTC Hero fyrir þetta verð.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 17:54
af Some0ne
Þetta er nú samt bara mjög sambærilegt verð og er á flestum "ofur" símunum, N97 / N900 og iPhone 3G, eru allir í kringum 130k.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 18:07
af Gúrú
Hvernig er það með þennan að það þarf að activata þessa síma?
Eða er ég í ruglinu með að það þurfi að activata þá hjá símafyrirtæki eins og T-Mobile eða EuropeVodafone?
Mig langar mjög mikið í þennan síma, að vísu ekki á mikið meira en 75-85 þúsund, en það er ekki séns að ég einu sinni íhugi þetta verð þitt ef að þú getur ekki útskýrt activation dótið fyrir mér.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 19:09
af bolti
Hann er algerlega ólæstur þegar hann kemur þessi sími.

Gaman að segja frá því að flestir spekkar í Nexus One eru næstumþví helmingi betri en HTC Hero (Sem ég á sjálfur og nota)

Það er 1 Ghz Snapdragon örgjörfi í þessu og 3.7" skjár. Samt þynnri en blýantur.

Tékkið á spekkunum hérna http://www.google.com/phone/static/en_U ... specs.html Þetta er ekki einu sinni sambærilegt við HTC Hero....

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 19:21
af gardar
Some0ne skrifaði:Þetta er nú samt bara mjög sambærilegt verð og er á flestum "ofur" símunum, N97 / N900 og iPhone 3G, eru allir í kringum 130k.


Jebb, en á móti kemur að með þeim símum geta menn fengið greiðsludreifingu.

Íslendingar eru jú mikið fyrir lán og að eiga hluti sem þeir hafa ekkert efni á :lol:

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 20:35
af muntok
Vá hvað ég ætla að fá mér svona síma næst!

Gangi þér vel með söluna.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 21:38
af Elisvk
Some0ne skrifaði:Þetta er nú samt bara mjög sambærilegt verð og er á flestum "ofur" símunum, N97 / N900 og ekki iPhone 3G, eru allir í kringum 130k.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 22:49
af Frost
Hann er til sölu hjá buy.is á sama verði.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 23:18
af bolti
Get reddað Valitor Kortalánum (VISA rað) á þessu ef einhver hefur áhuga á að ganga þannig frá þessu :)

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Fös 08. Jan 2010 23:57
af Tiger
Má ég spyrja hvar þú fékkst hann? Var hann ekki bara frumsýndur í fyrradag og er hann kominn í sölu í US? Og hvað fær þig til að vilja halda Hero en selja þennan spyr ég nú bara.

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Lau 09. Jan 2010 01:01
af bolti
Supply and demand? Gat reddað síma og reddaði síma. Langaði að reyna að selja hann :)

Þegar ég hef efni á því þá kaupi ég svona síma :)

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:20
af bolti
upp með þetta :)

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Sun 10. Jan 2010 15:33
af vesley
http://buy.is/product.php?id_product=838 sama verð og þarna færðu ábyrgð með og allann þann pakka ;) bara svona láta vita ekkert að reyna að vera leiðinlegur :lol:

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Mán 11. Jan 2010 08:05
af bolti
Við erum líka að selja þetta saman.

Ábyrgðin verður í gegnum buy.is og sama góða þjónusta og sú verslun hefur verið að bjóða upp á :)

Re: [TS] Google Nexus One

Sent: Þri 12. Jan 2010 07:33
af bolti
Síðasta bump á þetta dót :)