Síða 1 af 1

[SELD] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750[SELD]

Sent: Mið 30. Des 2009 00:21
af beatmaster
Sælir
Ég á Shuttle XPC G5 kassa sem að ég er búinn að setja Glænýtt Zotac Mini-ITX borð í (Review - Þetta Review er af Rev-0 borði, borðið sem að er í XPC vélinni er Rev-3 þannig að flestir gallar sem að talað er um í umfjölluninni er búið að laga og það eru 3 SATA tengi á þessu borði)


Það sem er í kassanum
Intel Core2Duo E6750 örgjörvi
2 GB DDR2 800 (Getur fylgt meira en það kostar meira-borðið styður 8 GB)

Innbyggt Geforce 9300 m/DVI-d - VGA - HDMI
PCI-e Geforce 8500GT Silent Pipe 512 MB
Þessi 2 kort geta keyrt saman í Hybrid SLI (Ef að það er Vista eða Win7 Stýrikerfi)

250 GB HDD (Það er pláss fyrir 1 disk í viðbót, samtals 2 HDD)
LG DVD Brennari (brennir allt nema Dual layer minnir mig)
Þráðlaust WiFi netkort
E-SATA tengi aftaná
5.1 Hljóð

Það eru 2 USB tengi að framan en enginn önnur tengi (á G5 er yfirleitt Sound/mic/USB/FireWire en tengin á þeim eru bara einfaldlega of þroskaheft til að það gengi upp að tengja þau)

Kassinn selst án Stýrikerfis en efað menn vilja getur hún verið með uppsett Windows 7 sem að þyrfti að activate-a innann 30 daga við afhendingu

Ég tek á móti tilboðum hér eða í PM :)

Shuttle1.jpg
Shuttle1.jpg (47.02 KiB) Skoðað 2254 sinnum


Shuttle2.jpg
Shuttle2.jpg (77.72 KiB) Skoðað 2253 sinnum

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 02:27
af manni
hvað vilt þú fá fyrir tölvuna

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 02:47
af Victordp
ræður þetta við eiikera leiki
og hvað mikið ?

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 08:37
af beatmaster
Það ræður við einhverja leiki, ég á eftir að prufa að keyra skjákortin saman í Hybrid SLI og sjá hvernig það kemur út

En ég hef spilað Need For Speed Shift á turninum og það var allt í lagi
En 8500 GT verður seint kallað leikjaskjákort, ég setti það bara í turninn því að ég veit að það styður Hybrid SLI og það er bara 240W PSU í kassanum

Það kemst single slot skjákort í kassann og efað ég ætlaði að leika mér almennilega á þessari tölvu held ég að eftirfarandi kort kæmust fínt í án þess að skipa um PSU
HD4770, HD4830 eða 9600GT kort sem að væri ekki með PCI-e power connector

Verð er bara það tilboð sem að ég fæ sem að mér finnst ásættanlegt en til samanburðar kostar ný XPC með AMD örgjörva, 500 GB disk og 2 GB í minni en bara í G2 kassa 116.160 kr. - þessi selst mun ódýrara en það :)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 09:14
af beatmaster
Kanski taka það fram líka að ég get tekið eftirfarandi uppí+pening (en bara þetta!)

PhenomII 955BE
HD5770

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 21:10
af beatmaster
Bump

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 22:13
af Some0ne
Hvaða price range ertu með í huga fyrir þetta?

OG hvernig er hávaðinn í kælingunni á þessu ? Átti Shuttle og þegar að örgjörvakælinginn fór á fúll þá var þetta frekar hávært.

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 22:20
af kristinnjs
til i ad skipta henni a moti fartolvu?

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 22:39
af beatmaster
Einu skiptin verða á 5770 korti + pening eða 955BE + pening

Hávaðinn er eins og í venjulegri Shuttle nema að hún á ekki að fara í botn, getur stillt þetta alls konar.

Orginal Shuttle viftan blæs út að aftan og á ekki að fara á fullt, hún er tengd við CPU tengið á móðurborðinu
Það er 80 mm Antec kassavifta sem að blæs saman á örgjörvann og Norðurbrúnna og er með hraðastilli H-M-L og er stillt á medium minnir mig :)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 23:02
af Some0ne
Sagðir samt ekki hvaða price range þú varst að pæla í :)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 23:27
af beatmaster
Hæðsta boð er eins og er 40.000, það er ekki nóg fyrir minn smekk

Ég flutti þetta borð inn sjálfur og það myndi líklegast kosta 40-45.000 kr. út úr búð hérna (bara móðurborðið, þetta er toppurinn á mini-itx scalanum, tekur öflugustu örgjörvana og er með PCI-e 2.0 x16)

Ekki gleyma heldur að það er ekki hægt að uppfæra XPC kassa nema með því að modda þá, þessi er klár þannig að þú getur átt þennann kassa og uppfært hann með öðru mini-itx borði eftir einhvern tíma þegar eitthvað flottara kemur :)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 23:29
af Ulli
hvað er hægt að fá öflug power supply í þetta og kemst 5870 í þetta :P

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Mið 30. Des 2009 23:50
af beatmaster
300W er max sem kemst í g5 kassann (fæst í tölvuvirkni) og kortið verður að vera single slot.

En það er líka pæling að samkvæmt review-inu á borðinu er svipað setup að taka 35W Idle og maxar í 65W þá ætti nú að vera ágætis djús eftir í fínt skjákort :)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Fim 31. Des 2009 06:21
af kristinnjs
taktu bara 40k=)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Fim 31. Des 2009 12:52
af Quemar
Ég býð 50K

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Fim 31. Des 2009 13:23
af beatmaster
Þetta þokast nær en ekki nóg samt... :)

Re: [TS] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750...

Sent: Fös 01. Jan 2010 16:28
af beatmaster
Gleðilegt nýtt ár :)

Re: [SELD] Modduð og refurbished Suttle XPC G5 Intel E6750[SELD]

Sent: Sun 03. Jan 2010 21:52
af beatmaster
Tölvan er seld :)