Síða 1 af 1

Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 00:36
af Some0ne
Til sölu Popcornhour A-110 án harðadisks

http://www.popcornhour.com/onlinestore/ ... &item_id=6

Spilar _allar_ skráargerðir, ef að það er settur diskur í hann er hægt að runna torrent downloader á honum, media server og margt fleira.
Hef bara streamað á hann frá NAS disk yfir 100mb ethernet, og stream á 1080p skrám virkar án nokkurra vandræða.

Byrjunarverð 45k, tek ekki boðum lægra en það.

Hægt að hafa samband við mig í gegnum síðuna, eða 847-9353

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 00:56
af Pandemic
S.s að borga meira fyrir hann heldur en ég get pantað hann á netinu með tolli,virðisaukaskatti og sendingarkostnaði?

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:06
af Viktor
http://www.amazon.com/Popcorn-Hour-HD-N ... 143&sr=8-1

275$ * 125 kr/$ = 34.375 kr

34.375 * 1,245 = 42.796

Veit ekki hvað tollurinn er, en miða oft við 10%

42.796 + 10% = 47.076 kr.

Svo er það flutningskostnaður. Kannski 5-10.000 kr.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:11
af Pandemic
Sallarólegur skrifaði:http://www.amazon.com/Popcorn-Hour-HD-Networked-Media/dp/B001OG7WGE/ref=sr_1_1?ie=UTF8&s=electronics&qid=1261962143&sr=8-1

275$ * 125 kr/$ = 34.375 kr

34.375 * 1,245 = 42.796

Veit ekki hvað tollurinn er, en miða oft við 10%

42.796 + 10% = 47.076 kr.

Svo er það flutningskostnaður. Kannski 5-10.000 kr.


Græjan kostar 215 dollara af offical síðunni, flutningskostnaðurinn er í kringum 20-30 dollara.
Það er enginn tollur á þessu = tölvuvara.
Þú myndir enda í svona rétt 35-40 kalli

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:11
af SteiniP
eru ekki ~30% tollur á þessu kvikindi? sama og á dvd spilurum og þannig.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:12
af Vectro
SteiniP skrifaði:eru ekki ~30% tollur á þessu kvikindi? sama og á dvd spilurum og þannig.


30% vörugjöld já.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:19
af Some0ne
Pandemic skrifaði:S.s að borga meira fyrir hann heldur en ég get pantað hann á netinu með tolli,virðisaukaskatti og sendingarkostnaði?


Vinsamlegast stundaðu smá rannsóknir áður en þú feykir svona útúr rassgatinu á þér..

Gaurinn kostar 215$ á pch síðunni, reyndar dottinn úr sölu þar sökum að það er komið nýtt módel. Ofaná það bætast góðir 50$ í sendingarkostnað ef að þú værir að panta þetta frá pch síðunni.

Það gera 34450 miðað við dollara gengi 130 (núverandi gengi dollars hjá valitor)

Ofaná þetta allt leggst;

7,5% Tollur = 2588
24,5% VSK = 11200
25% vörugjald = 8625

Samtals:

22.413 í gjöld + 34.450 = 56.863

Þannig að byrjunarboðið mitt er 10k ódýrara ef ég miða við síðuna hjá PCH, ef við miðum við verðið á amazon.com þá væri það meiri munur.

Pís :)

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:21
af Some0ne
Pandemic skrifaði:Það er enginn tollur á þessu = tölvuvara.
Þú myndir enda í svona rétt 35-40 kalli


Einmitt ekki, þetta er EKKI tölvuvara, ég stóð í sjúku rifrildi við tollinn í marga daga yfir þessu, og það var ekki fræðilegur að fá þetta tollað öðruvísi en myndspilara.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:25
af Pandemic
Hver er munurinn á þessu og t.d WD TV live græjunni sem fékk enginn vörugjöld við innflutning? Sé ekki að það bætist við tuner eða magnari?
edit: greinilega geðþóttaákvörðun tollsins hvort græjan fái vörugjöld eða ekki.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:51
af Pandemic
Ætli maður verði ekki að viðurkenna að hafa rangt fyrir sér, gef tollinum enn og aftur puttan í þetta skipti.
En þessi WD TV Live græja sem var pöntuð inn í samráði við mig fékk ekki vörugjöldin :?

Myndi pottþétt fá mér Popcornhour ef þeir væru ekki svona dýrir, guðdómlegt support.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 01:56
af Gúrú
Déja vú frá einhverjum playstation þræði.

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 28. Des 2009 17:22
af Some0ne
poppp

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 18. Jan 2010 14:20
af hauksinick
er ekki tollur af tölvuvörum ?

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 18. Jan 2010 15:40
af Dazy crazy
en ef maður lætur flytja spilarann inn í tveimur hlutum?
Annaðhvort sem varahluti fyrir þennan spilara eða tölvuhlut?

Re: Popcornhour A-110

Sent: Mán 18. Jan 2010 16:45
af Halli25
Pandemic skrifaði:Hver er munurinn á þessu og t.d WD TV live græjunni sem fékk enginn vörugjöld við innflutning? Sé ekki að það bætist við tuner eða magnari?
edit: greinilega geðþóttaákvörðun tollsins hvort græjan fái vörugjöld eða ekki.

Meira heppinn, tollurinn séð WD vöruheitið og sagt ahh já harðdiskur og voila slapp við okurtollana :)