Síða 1 af 1

[SELT] 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3

Sent: Fös 18. Des 2009 12:16
af kiddi
Vegna uppfærslu, þá hef ég til sölu:

Intel Core2Duo E6700 2.66GHz, 4MB Cache, 1066mhz FSB, stock vifta, keyptur sumarið 2007 hjá Tölvutækni
Gigabyte 965P-DS3 móðurborð, keypt sumarið 2007 hjá Tölvutækni
8GB DDR2-800mhz RAM (4x 2GB) Super-Talent vinnsluminni, keypt 2009 hjá computer.is, nývirði í dag er nærri 40þús.

Það kemur vel til greina að selja þetta í pörtum (þó ég mæli með að CPU og móðurborð fái að tolla saman), en ég mun ekki afhenda neitt fyrr en ég hef fundið kaupendur á alla hluti, svo ég verði ekki tölvulaus í einhvern tíma.

Kaupa-núna verð fyrir allan pakkann: 30þús
Kaupa-núna verð fyrir 8GB RAM: 22þús
Kaupa-núna verð fyrir móðurborð + CPU: 12þús

Seldist í einum pakka á uppsettu verði, takk fyrir mig!

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 12:22
af GuðjónR
kiddi skrifaði:...svo ég verði ekki tölvulaus í einhvern tíma.

Það væri alveg hryllilegt :twisted:

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 12:26
af binnip
hvað viltu fyrir örgjörvann.

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 12:52
af Lunesta
er búið að yfirklukka minnin eitthvað ?

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 13:04
af GuðjónR
Lunesta skrifaði:er búið að yfirklukka minnin eitthvað ?

Ég held ég geti alveg svarað fyrir hann, þetta hefur aldrei verið yfirklukkað, ekkert af þessu.
kiddi er að fara í i7 af því að hann er anti-yfirklukkari

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 13:33
af kiddi
binnip skrifaði:hvað viltu fyrir örgjörvann.

Ég skal selja þér hann á 12þús, og þú færð móðurborð í kaupbæti :D Hvernig hljómar það?

Lunesta & GuðjónR skrifaði:er búið að yfirklukka minnin eitthvað ?

Takk GuðjónR :D Rétt hjá þér, ég er svosem ekki anti-yfirklukkari, en ég vil hinsvegar hljóðláta tölvu og ekkert vesen og læt því þetta vera. Semsagt nei, aldrei verið yfirklukkað

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 14:34
af binnip
Ég hef engann áhuga á móðurborðinu, er með nóg tölvudrasl inn í herberginu fyrir :roll:
Ætli 8þúsund sé ekki flott verð fyrir hann ?

Re: 8GB DDR2-800, Core2Duo E6700 + Gigabyte 965P-DS3 móðurborð

Sent: Fös 18. Des 2009 14:48
af kiddi
Jú 8þúsund væri mjög flott verð fyrir hann, en ég vil ekki selja hann nema ég hafi kaupendur að hinum hlutunum líka, og það er útlit fyrir að einn gæji vilji taka hjá mér allt í einum pakka og annar sem vill taka CPU og móðurborð saman, svo ég er hræddur um að þeir hafi forgang í augnablikinu :)