Síða 1 af 1

Canon LEGRIA FS200 video camera til sölu

Sent: Þri 15. Des 2009 01:55
af Andriante
Ný videocamera (kortavél) - (m/ ábyrgðarskírteini)
Upptökuvél / Video camera / Myndbandsupptökuvél / Vídjóvél / Videovél / Videocamera

Til sölu glæný (desember 2009), ónotuð (aldrei verið tekin upp, ennþá í kassanum) Canon LEGRIA FS200 video camera.

Venjulegt verð er 69.900 (http://www.netverslun.is/Verslun/produc ... ,9267.aspx)

Sel hana á 59.900 (Hún er algjörlega ónotuð).

Litur: Silfurgrár

Glænýtt ábyrgðarskírteini fylgir.


Upplýsingar um hana ( http://canon.nyherji.is/html/fs200.html) :

Flott og nett hönnun
Mjög þægilegt að taka upp efni með LEGRIA FS200 vegna nettleika hennar en hún vegur aðeins 230 gr.

Efnið tekið upp á minniskort
LEGRIA FS200 tekur beint á SD eða SDHC minniskort sem er þægilegt í meðförum og til að deila.

Video Snapshot
Video Snapshot stilling gerir það enn auðveldara en áður að búa til vídeómyndir til að deila með fjölskyldu og vinum. Í hvert sinn sem ýtt er á REC hnappinn (upptaka) þá er stutt 4 sekúnda myndskeið fangað. Einfaldlega bættu myndskeiðum á myndskeiðalistann (playlist), veldu tónlist og myndin þín er tilbúin til afspilunar í sjónvarpinu – án þess að þurfa að klippa í PC tölvu. Fjórar sekúndur er meðallengd á einu ,,cut“ í sjónvarpsþætti þannig að þú færð mynd með ,,expert feel“. Svo getur þú hlaðið uppáhalds tónlistinni þinni á minniskort með Music Transfer Utility hugbúnaðinum sem fylgir með.

41x Advanced Zoom
DIGIC DV II örgjörvinn, ásamt optískum gæðum hinnar einstöku Canon vídeólinsu, veitir allt að 41x Advanced Zoom eða aðdrátt sem færir viðfangsefni langt í burtu nær þér.

Pre REC stilling
Í Pre REC stillingu byrjar vídeóvélin að taka upp þremur sekúndum áður en þú ýtur á upptökuhnappinn. Þremur sekúndum af efni er því stöðugt geymt og sjálfvirkt sett í byrjun hvers myndskeiðs þegar þú byrjar að taka upp – misstu aldrei aftur af mikilvæga augnablikinu.

Langur tökutími – Mjög stutt endurhleðsla
Flash minni er ótrúlega orkusparandi þannig að þú hefur lengri tökutíma. Í lok dagsins tekur svo aðeins 20 mínútur að endurhlaða til að taka upp meira efni.

Tengi fyrir hljóðnema og heyrnartól
Með LEGRIA FS200 fangar þú og stjórnar hljóði mun betur þar sem vélin er með tengi fyrir hljóðnema og heyrnartól.
Dual Shot stilling
Dual Shot gerir allar stillingar sjálfvirkar þannig að þú hefur frelsi til að ramma inn skotið. Þú getur skotið hágæða kyrrmyndir á meðan þú tekur upp án þess að þurfa að skipta á milli stillinga á stjórnborðinu (Control Dial).

Heildarlausn í hugbúnaði fylgir með
Pixela ImageMixer 3 SE til að skipuleggja, klippa og spila efni.

Auðvelt að búa til DVD diska
DW-100 – Canon DVD skrifari – er fullkominn félagi FS200 til að skrifa efni beint á DVD diska.

Aukahlutir:
oRafhlaða: BP-808 (fylgir með).

Re: Canon LEGRIA FS200 video camera til sölu

Sent: Þri 15. Des 2009 12:46
af Andriante
upp

Re: Canon LEGRIA FS200 video camera til sölu

Sent: Lau 24. Apr 2010 09:13
af kjarribesti
http://www.netverslun.is/verslun/produc ... 7,499.aspx
Hér kostar hún bara 59.000 líka
svo ég vildi helst fá hana ódýrari en NÝJA ?
..