Síða 1 af 1

Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Sun 08. Nóv 2009 15:21
af Arkidas
Allt selt til Mána Snæs.

Boðí einstaka hluti:
Kassi: Antec P190 (og tveir aflgjafar: 650W og 550W = 1200W) - 22.000 (demigod)
Móðurborð: Gigabyte X38-DQ6 - 15.000 (AntiTrust)
Örgjörvi: Q6600 G0 - 17.000 (jodazz)
Vinnsluminni: 2x 1GB Kingston HyperX DDR2 1066mhz ( =2gb ) - 5.000 (Aimar)
Harður diskur: Raptor 150GB - 16.000 (Taxi)
Vatnskæling* - 10.000 (SteiniP)


*Vatnskæling
Vatnskassi: Swiftech MCR320-QP
Örgjörva blokk: D-TEK FuZion Extreme Performance CPU Block
Pumpa: Swiftech MCP355 w/Custom Delrin DDC Pump Top
Vatnsgeymir: Swiftech MCRES Micro

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Sun 08. Nóv 2009 15:59
af demigod
býð 22 þús í Antec P190, sendu mér PM
edit:
Okey, greinilega full lágt boð :lol:

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Sun 08. Nóv 2009 16:08
af Gunnar
demigod skrifaði:býð 22 þús í Antec P190, sendu mér PM

fékk þetta i pm hja honum.
"Sæll.

Hér er verð á Antec P190 frá 11. september síðastliðin í Tölvuvirkni (59.860 kr). Þeir selja hann ekki lengur svo þú getur aðeins nálgast síðuna gegnum Google cache. http://74.125.77.132/search?q=cache:6UH ... uvirkni.is

Ég mun því varla selja hann undir 38.000."

en hver veit hann gæti snúist hugar.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Sun 08. Nóv 2009 16:18
af Arkidas
38.000 finnst mér a.m.k. ekki fjarri lagi fyrir þennan kassa sem kostaði 59.860 miðjan september sl. en það er engin gríðarleg eftispurn fyrir honum svo ef ég fæ boð nálægt 30.000 gæti vel verið að ég taki því, sérstaklega ef kaupandinn gæti látið mig fá gamlan kassa sem ég gæti notað fyrir vefþjón upp í.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Sun 08. Nóv 2009 17:19
af Gunnar
Arkidas skrifaði:38.000 finnst mér a.m.k. ekki fjarri lagi fyrir þennan kassa sem kostaði 59.860 miðjan september sl. en það er engin gríðarleg eftispurn fyrir honum svo ef ég fæ boð nálægt 30.000 gæti vel verið að ég taki því, sérstaklega ef kaupandinn gæti látið mig fá gamlan kassa sem ég gæti notað fyrir vefþjón upp í.

http://tolvulistinn.is/vara/17473 og einhvern pening uppí?

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Sun 08. Nóv 2009 18:53
af Arkidas
Já mögulega. Demigod bauð Antec Sonata 3 + 15.000 kr en það er spurning hvort sá kassi sé of fínn. Boðið hans er engu að síður best í augnablikinu. En hversu mikið býður þú með þínum kassa?

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mán 09. Nóv 2009 20:30
af Arkidas
Upp.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mán 09. Nóv 2009 23:29
af counterfeit
Veit að það er óhefðbundið að bjóða lægra en það sem þegar er komið... en....
... ef viðkomandi sem bauð í örrann lætur ekki á sér kræla þá er ég með tvo 5000 kalla sem ég væri til í að láta fyrir þetta gamla hró :D

svo lengi sem ég verð ekki búinn að kaupa eitthvað annað áður en þetta langtímakapphlaup um djásnin miklu lýkur :lol:

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mán 09. Nóv 2009 23:36
af Arkidas
Örgjörvi, móðurborð og vinnsluminni er líklega selt en ég fæ vonandi staðfestingu á morgun og læt þá vita.

Læt líka inn myndir á morgun af vatnskælingu og kassa.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Þri 10. Nóv 2009 18:39
af Arkidas
Upp.

Er búinn að senda PM til Taxa til þess að vita hvort hann vilji Raptorinn ennþá en annars er hann enn til sölu ásamt hinu.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 20:50
af Arkidas
Móðurborði, örgjörvi og vinnsluminni er að öllu líkindum farið til H.Himmlers (hef ekki fengið endanlega staðfestingu ennþá). Vantar enn boð í kassa, vatnskælingu og raptor (hef ekki heyrt frá Taxa en hann hefur ekki enn skráð sig inn til að lesa einkapóstinn sinn).

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 22:41
af Taxi
Ég er bara að vandræðast með þetta því ég var búinn að gera önnur tilboð í eins disk, ef ekkert kemur út úr því fyrir laugardag þá er ég ennþá með.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 22:45
af Arkidas
Ekkert mál. Taktu þér tíma ;-P

H.Himmler hætti við svo örgjörvi, móðurborð og vinnsluminni er enn til sölu.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 22:51
af Dazy crazy
Og þú ert kominn með ágætis boð í það, ert ekkert að fara að fá betri boð. Láttu bara þessa menn hafa þetta, minna vesen fyrir þig líka.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 22:58
af Arkidas
Veit ekki hvort þeirra boðs séu enn í gildi en ég ætla að fá a.m.k. 44.000 samtals fyrir þessa þrjá hluti (eða a.m.k. 100.000 fyrir allt saman).

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 23:07
af einarornth
Ég býð C2D E6320 + 10.000 í Q6600.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Mið 11. Nóv 2009 23:43
af Arkidas
Afsakið en ég get aðeins tekið við peningum þ.e. ég tek ekki íhluti upp í eins og ég hafði sagt áður. Mig vantar einfaldlega pening fyrst og fremst eins og stendur og hef þess vegna ákveðið að taka ekkert upp í.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Fim 12. Nóv 2009 00:24
af JohnnyX
Ef þig vantar pening hvers vegna ertu þá ekki löngu búinn að selja? Varstu ekki kominn með fullt af boðum í gamla þræðinum ?

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Fim 12. Nóv 2009 07:33
af Arkidas
Vegna þess að ég hafði ekki tíma til þess að færa vefsíðurnar yfir á annana vefþjón þá.

Re: Q6600 G0, Gigabyte X38-DQ6, 150 Raptor, Antec P190 & vatnskæ

Sent: Fim 12. Nóv 2009 18:05
af Arkidas
Allt selt til Mána Snæs.