Daginn, ég er með 1080p Sony VPL-HW40ES (https://www.projectorcentral.com/Sony-VPL-HW40ES.htm) myndvarpa (uppgefið MSRP $2499) og 104" rafdrifið Celexon tjald (https://www.amazon.co.uk/celexon-projec ... 9RXIU?th=1) (kostaði ca 90þ á sínum tíma ef ég man rétt) sem ég er að huga að því að losa mig við.
Þetta er hvorutveggja keypt fyrir ca 4 árum, varpinn hjá Nýherja og tjaldið hjá SM, en hefur staðið ónotað í rúmt ár. Það eru komnar ca 3000klst á peruna í varpanum.
Getur einhver skellt á sig verðlögguhatt og gefið mér verðhugmynd í þetta? Það er talsvert síðan að ég spáði í þessum græjum síðast eða fylgdist með þróuninni á þessu þannig að ég veit vart hvar skal byrja.