Síða 1 af 1

overclock? og kæling?

Sent: Sun 29. Jún 2003 03:13
af glas
Ég var að hugsa um að kaupa 3.0 ghz 800 fsb örgjörva en fannst hann heldur dýr svo ég fór að pæla í að kaupa 2.4 ghz örgjövra og overclocka hann bara því allir þessir örgjövrvar þar að segja frá 2.4 uppí 3 ghz eru allir með svipaða overclocking tíðni. Er þetta kannski allt sama unitið bara intel stillir þetta 2.4 eða 3.0 ghz? Kannski hefur einhver reynslu af overclockun hérna og getur sagt mér hvað er pott þétt hægt að overclocka örgjöva um því ég var persónulega að halda því fram að ég gæti allavega komið 2.4 í 2.8 og ég er næstum viss um að það er leikur einn, þarf þá einhverjar svakakæligræjur sem er mikill hávaði af? Já og það var annað ég þoli ekki hávaða frá viftum svo þetta er kannski útúr myndinni?
Mig vantar líka upplýsingar um hvaða processor viftur eru góðar hvort sem er fyrir overclock eða bara venjulega cpu notkun. :?: :?

Sent: Mán 30. Jún 2003 11:34
af Oxide
Ég er líka forvitinn um þetta mál. Hvað er óhætt að overclocka mikið áður en maður þarf auka kælingu?

Sent: Fim 10. Júl 2003 10:44
af Fletch
Þú ættir að koma 2,4C í 2,8 með stock cooling no prob...

og með góðrí kælingu jafnvel vel yfir 3ghz ef þú ert heppin með eintak...

Þarft eflaust að auka VCORE eitthvað, 0,1V allavega, bara fylgjast vel með hitanum á örranum undir álagi...

og prófa hvort hann er að virka rétt, ég nota t.d. forrit sem heitir prime95 til að sjá hvort örgjörvin er að reikna rétt, keyra það í 1-2 tíma... og hækka FSB bara um 5 mhz t.d. í einu og prófa.. reyndu líka að forðast að yfirklukka minnið mikið (þarft að setja divider á minnið, mismunandi milli móðurborða hve marga dividera það er með) og læstu agp/pci á 66/33mhz

Fletch