Síða 1 af 1
RAM
Sent: Fös 13. Jan 2006 11:18
af Arnarr
ég las póstinn hvernig skal overclokka amd örgjörva og tókst þá í firsta sinna að overclokka
en ég var svo að pæla hvort einhver gæti gert svipaða póst um RAM eða beint mér á einhvern þannig íslenskan þá
Sent: Fös 13. Jan 2006 11:32
af Stutturdreki
Minnið ætti að yfirklukkast samhliða örgjörvanum, ef þú notar FSB til að yfirklukka, sem ég geri fastlega ráð fyrir að þú hafir gert. Nema þú hafir kannski lækkað dividerinn á minninu?
Sent: Fös 13. Jan 2006 14:58
af Arnarr
ég notaði FSB, en ég veit barasta ekkert hvernig ram er klokkað eða neitt! koma með góð tips
Sent: Fös 13. Jan 2006 16:22
af @Arinn@
lækka divider.
Sent: Fös 13. Jan 2006 16:26
af Arnarr
einhver til að segja mér hvað divider er?
Sent: Fös 13. Jan 2006 19:00
af Stutturdreki
Sko, ef þú hækkar FSB þá ertu líka að yfirklukka minnið þitt.
Divider eða Multiplier segir til um hvaða margfeldi af FSB er notað til að ákvarða hraðan á minninu. Sjálfgefni Dividerinn er 1:1.
Segjum að þú sért með 200Mhz FSB og 400Mhz DDR minni, þægilegar tölur til að leika sér með. Og svo hækkarðu FSB í 210Mhz.. þá er minnið orðið 420Mhz. Ef þú nærð FSB í 250Mhz þá er minnið komið í 450Mhz.
Stundum er minnið flöskuhálsinn i yfirklukkuninni, td. kannski þolir minnið þitt ekki hærri FSB en 210 en þú veist/heldur að örgjörvin komist hærra, þá er hægt að prófa að setja Divider/Multiplier sem lækkar minnið miðað við FSB. Td. ef þú stillir Divider/Multiplier á 2:3, ef FSB er 200Mhz þá er minnið á í 266Mhz, FSB 250Mhz gefur minnishraða upp á 333Mhz.
Sent: Sun 15. Jan 2006 20:01
af galileo
Stutturdreki skrifaði:Sko, ef þú hækkar FSB þá ertu líka að yfirklukka minnið þitt.
Divider eða Multiplier segir til um hvaða margfeldi af FSB er notað til að ákvarða hraðan á minninu. Sjálfgefni Dividerinn er 1:1.
Segjum að þú sért með 200Mhz FSB og 400Mhz DDR minni, þægilegar tölur til að leika sér með. Og svo hækkarðu FSB í 210Mhz.. þá er minnið orðið 420Mhz. Ef þú nærð FSB í 250Mhz þá er minnið komið í 450Mhz.
Stundum er minnið flöskuhálsinn i yfirklukkuninni, td. kannski þolir minnið þitt ekki hærri FSB en 210 en þú veist/heldur að örgjörvin komist hærra, þá er hægt að prófa að setja Divider/Multiplier sem lækkar minnið miðað við FSB. Td. ef þú stillir Divider/Multiplier á 2:3, ef FSB er 200Mhz þá er minnið á í 266Mhz, FSB 250Mhz gefur minnishraða upp á 333Mhz.
einhvað finnst mér þetta vitlaust sagt hjá þér.
Sent: Sun 15. Jan 2006 20:34
af hilmar_jonsson
galileo skrifaði:Stutturdreki skrifaði:(...)
einhvað finnst mér þetta vitlaust sagt hjá þér.
Ég vona að ég nái að skýra þetta betur.
Minnið þitt keyrir líklega á 200 mhz ef divider og FSB eru á defult (1:1)(200).
Ef þú lækkar divider lækkar hraðinn á minninu í samræmi við það.
Þ.e. ef divider er á 3:4 er minnið á FSB*divider.
D: FSB er á 200 og divider er á 3:4. þá er minnið að keyra á 200*2:4 = 150.
D: FSB er á 250 og divider er á 3:5. Þá er minnið að keyra á 250*3:5 = 150.
DDR minni keyrir hins vegar tvöfalt hraðar því það leyfir tvö slög á hvert raunslag. (einhver að skýra þetta betur ?)
Multiplier segir hins vegar til um hver hraði örgjörvans er. Þ.e. FSB*multiplier gefur hraða örgjörvans.
minni
Sent: Mið 18. Jan 2006 18:25
af sprelligosi
þú getur líka lent í stability vandræðum ef að þú ert með minnis tímna stillta ,jög lágt. svo sem 2-2-2-5. Þá getur einnig verið mjög gott að hækka minnis tíma til að ná fleiri hz úr minninu.
Passa þig bara að hækka þá ekki of hátt því þá gæturu verið að fórna aukinni vinnslu fyrir mhz.
Gott að gera benchmark á sitrthvor stillingarnar og sjá hvað keumur best út.
Sent: Mið 18. Jan 2006 23:56
af Vilezhout
líklegra að þú skorir betur úr benchmarki með þéttari timings enn hærri klukkuhraða
Sent: Fim 19. Jan 2006 09:42
af Stutturdreki
galileo skrifaði:Stutturdreki skrifaði:Sko, ef þú hækkar FSB þá ertu líka að yfirklukka minnið þitt.
Divider eða Multiplier segir til um hvaða margfeldi af FSB er notað til að ákvarða hraðan á minninu. Sjálfgefni Dividerinn er 1:1.
Segjum að þú sért með 200Mhz FSB og 400Mhz DDR minni, þægilegar tölur til að leika sér með. Og svo hækkarðu FSB í 210Mhz.. þá er minnið orðið 420Mhz. Ef þú nærð FSB í 250Mhz þá er minnið komið í 450Mhz.
Stundum er minnið flöskuhálsinn i yfirklukkuninni, td. kannski þolir minnið þitt ekki hærri FSB en 210 en þú veist/heldur að örgjörvin komist hærra, þá er hægt að prófa að setja Divider/Multiplier sem lækkar minnið miðað við FSB. Td. ef þú stillir Divider/Multiplier á 2:3, ef FSB er 200Mhz þá er minnið á í 266Mhz, FSB 250Mhz gefur minnishraða upp á 333Mhz.
einhvað finnst mér þetta vitlaust sagt hjá þér.
Aldrei má maður flýta sér..
Sent: Fim 19. Jan 2006 12:52
af @Arinn@
allavega ekki í svona málumm þá getur orðið frekar góð baka