Síða 1 af 3

Pioneer SA-706 kassinn

Sent: Mið 11. Jan 2006 23:49
af einzi
Ákvað að deila með ykkur mod projecti sem ég er að dunda mér við

Fékk Pioneer SA-706 magnara og ákvað að búa til HTPC kassa.
Upprunalegi kassinn http://www.vintage-audio.com.ua/pict/goods/142_pict_big_pioneer_sa706_b.jpg

Gengur ágætlega http://www.einzi.com/casemods/DSC00262.JPG

Helstu íhlutir komnir á sinn stað http://www.einzi.com/casemods/DSC00266.JPG

Allt að koma http://www.einzi.com/casemods/DSC00268.JPG


Endilega fylgist með

Sent: Mið 11. Jan 2006 23:58
af Pandemic
Flott hlakkar til að sjá meira.

Sent: Fim 12. Jan 2006 10:08
af wICE_man
Sniðugasta casemod í lengri tíma hér á vaktinni.

Sent: Fim 12. Jan 2006 11:15
af CraZy
pearly :)

Sent: Fim 12. Jan 2006 11:36
af Mr.Jinx
Loksins eitthvað íslenskt. En mjög flott hjá þér hlakka til að sjá meira.

Sent: Fim 12. Jan 2006 17:30
af k0fuz
tókstu aflgjafa í sundur til að koma honum inní ? btw flott

Sent: Fim 12. Jan 2006 17:51
af einzi
já ég tók psu í sundur til að koma því fyrir .. en ég geri ráð fyrir að koma minni psu fyrir seinna þannig þessi verður að duga í bili þar sem hann var til niðri í skúffu.

Sent: Fim 12. Jan 2006 20:56
af Dust
Snild! þetta er töff hugmynd, og það svona gamall magnari, myndi kaupa svona kassa af þér bókað mál :8)

Sent: Fim 12. Jan 2006 20:58
af urban
smá forvitni...

hvernig vél ertu að setja í þetta ?

Sent: Fim 12. Jan 2006 23:15
af einzi
í augnablikinu er þetta 433mhz vél og allt eitthvað drasl sem ég fann í skúffunni til að svona smíða kassann en ætlunin er að setja eitthvað á þessa leið í hann

EPIA VIA mini-itx borð með tvout og alles
dual layer dvd brennara, svartann
tv kort fyrir upptöku
200+ gb hdd
einnig er meiningin að hafa fjarstýringu og jafnvel þráðlaust lyklaborð. Einnig verður bluetooth adapter til ég geti fjarstýrt græjunni með mínum flotta sony ericsson k750

Sent: Sun 15. Jan 2006 23:50
af bluntman
Töff :)

Sent: Fös 20. Jan 2006 21:11
af Viktor
ekkert að gerast?? :)

Sent: Mán 30. Jan 2006 19:36
af einzi
jæja gott fólk

ég komst loksins í að vinna aðeins í kassanum og bjó til HDD festinguna úr leifunum af PSU kassanum.

http://www.einzi.com/casemods/DSC00295.JPG

og því fer að minnka sú vinna sem framkvæmd verður inn í kassanum, en hann er farinn að taka á sig mynd

http://www.einzi.com/casemods/DSC00297.JPG

á teikniborðinu mínu er framhliðin sem verður úr burstuðu áli og með fallegum front á geisladrifinu og svo er ég byrjaður að skipuleggja rafmagnsmál inní kassanum, t.d. verður usb tengi fyrir bluetooth adapterinn og svo fyrir aðra aukahluti til að þurfa ekki að fara með snúru aftan úr móbóinu og inn í kassann.

hér er móðurborðið sem verður að öllum líkindum í kassanum

http://www.mini-itx.com/news/images/story0292-03L.jpg

þetta er EPIA MII 12000 með 1.2GHz C3 örgjörva, PC Card bus, Compact Flash reader þannig að líklegast verður hægt að boota af CF sem verður bara sætt.

Þangað til næst .. stay tuned

Sent: Þri 31. Jan 2006 17:47
af einzi
það gat nú verið að OgVodafone draslið færi að fikta í tengingunni minni akkúrat núna .. myndirnar verða komnar upp fljótlega

Sent: Þri 31. Jan 2006 18:06
af Viktor
Sé ekki myndirnar, bíð spenntur

Sent: Þri 31. Jan 2006 19:07
af einzi
jæja.. þá ættu myndirnar að virka

Sent: Þri 31. Jan 2006 20:05
af Viktor
Verður að segjast eins og er, þetta er magnað hjá þér. Kominn með on/off reset takka á þetta?

Sent: Þri 31. Jan 2006 20:20
af @Arinn@
djöfull væri gaman að hafa bara feitt öfluga tölvu í þessu :D

Sent: Þri 31. Jan 2006 20:33
af einzi
on/off og reset takkinn er í augnablikinu forlátt skrúfjárn sem er mjög handhægt :)

Ég hugsa að það sé leikur einn að hafa öfluga tölvu í þessum kassa því ég gerði ráð fyrir baby-ATX borði. Eina vandamálið væri að geisladrifið er fyrir pci raufum og þyrfti því að legga þau á hliðina. Veit að það er til svoleiðis græja fyrir pci en veit ekki með agp/pci-e

Sent: Þri 31. Jan 2006 20:37
af CendenZ
einzi skrifaði:on/off og reset takkinn er í augnablikinu forlátt skrúfjárn sem er mjög handhægt :)

Ég hugsa að það sé leikur einn að hafa öfluga tölvu í þessum kassa því ég gerði ráð fyrir baby-ATX borði. Eina vandamálið væri að geisladrifið er fyrir pci raufum og þyrfti því að legga þau á hliðina. Veit að það er til svoleiðis græja fyrir pci en veit ekki með agp/pci-e


kaupir bara millistykki sem beygjast til hliða

þau eru einsog L á hlið

Sent: Þri 31. Jan 2006 20:43
af Viktor
einzi skrifaði:Veit að það er til svoleiðis græja fyrir pci en veit ekki með agp/pci-e

Sent: Þri 31. Jan 2006 20:55
af Veit Ekki
Viktor skrifaði:
einzi skrifaði:Veit að það er til svoleiðis græja fyrir pci en veit ekki með agp/pci-e


Og CendenZ er að gera hvað?

Hann er að benda honum á hvaða græja þetta er sem gerir þetta.

Sent: Þri 31. Jan 2006 22:29
af einzi
hann er kannski að benda á að ég veit að það er til svona millistykki fyrir PCI en var ekki viss með AGP/PCI-e en er það núna

hér er allt fyrir þetta

http://www.rackmountnet.com/rmc/c_accessories/risercard/risercard.htm

en svo tók ég eftir svolitlu og mér var skemmt

Viktor skrifaði:Verður að segjast eins og er, þetta er magnað hjá þér.


Magnað indeed enda er þetta gamall magnari :lol:



málið leyst

Sent: Þri 31. Jan 2006 23:35
af einzi
smá update

Hér má sjá concept teikningu af frontinu:

http://www.einzi.com/casemods/DSC00299.JPG

og til að útskýra hana betur .. hnapparnir sem sjást með hafði ég hugsað að nota sem power/reset takka og þeir voru á magnaranum og var ég að spá í að hafa svona ljós í kringum þá með því að setja svona plexigler og svo red/green LED eftir powerstate. blátt finnst mér ekki passa í þetta þema þar sem blátt var ekki mikið uppi á þessum tíma.

tengimöguleika fyrir USB og það þarf ekki að skýra mikið. LCD panelinn verður svona kannski verkefni ef að pláss og réttur stíll á LCD finnst.

hér má svo sjá rafmagnið .. ekki ýkja flókið

http://www.einzi.com/casemods/power.jpg

verður svona hálfgerður rafmagnsstokkur undir drifunum og svo tengibretti við hliðina á PSU til að auðvelda aðgengi og hafa þar möguleika á stækkun. Einnig verða þarna 2 USB tengi fyrir aukahluti eins og Bluetooth adapter og kannski LCD skjáinn til að þurfa ekki að tengja aftan úr móbóinu og inn í kassann, hmmm og jafnvel jumperar ;)

þangað til næst

stay tuned

Sent: Mið 01. Feb 2006 17:14
af Vilezhout
Glæsilegt

Vill benda mönnum á það að það er hægt að kaupa virkilega mjóa dvd skrifara sem eru ætlaðir í fartölvur sem hugsanlega tengjast í gegnum sata/ata kapla enn flest öll þannig drif eru með scsi tengingum þannig að menn þyrftu að finna einhverja þægilega lausn á því