Síða 1 af 1
Vantar Forrit til að vita hitastig...
Sent: Mán 14. Nóv 2005 02:59
af Mazi!
Mér vantar forrit eða eitthvað til að vita hitastigið í vélinni minni hvar fæ ég svoleiðis ?
Sent: Mán 14. Nóv 2005 10:16
af MezzUp
Prófaðu forritið SpeedFan, létt og þægilegt
Sent: Mán 14. Nóv 2005 16:46
af CraZy
jamm eða motherboard monitor (mbm)
Sent: Mán 14. Nóv 2005 17:07
af @Arinn@
speed fan er samt mikklu auðveldara.
ok
Sent: Mið 16. Nóv 2005 08:08
af Mazi!
Já en fatt ekkert hvernig þessi foritt virka hvernig sér maður hitastigið með þessu?
Sent: Mið 16. Nóv 2005 08:30
af hilmar_jonsson
Ég var að setja SpeedFan inn. Ég er með Dell tölvu og ég fæ bara eitt hitastig inn og enga viftu.
Ég er reyndar bara með þrjár viftur, var með 2 þegar ég fékk tölvuna, þ.e. kassavifta og PSU vifta. Það var engin vifta á X300 kortinu.
Sent: Mið 16. Nóv 2005 08:47
af Stutturdreki
Þá er móðurborðið bara með einum hitaskynjara.. eða speedfan finnur ekki hina.
Með vifturnar, þá þurfa að vera þrír vírar í þær svo hægt sé að sjá hraðan og svo þarf náttúrulega móðurborðið að leyfa það líka.. Dell er oft svoldið spez.
Sent: Mið 16. Nóv 2005 08:52
af hilmar_jonsson
Ég hefði kannski átt að geta þess að ég sé bara hitastigið á HDD.
*utan efnis*
Mig langaði að geta þess að BIOS leyfir mér ekki einu sinni að taka HT af.
Ég er farinn að sjá svolítið eftir því að hafa verslað þessa tölvu. Hún leyfir mér að gera svo lítið. Hún er samt mjög hljóðlát þangað til hún fer að vinna eitthvað. 120mm vifta fyrir CPU, hver getur stælt sig af því?
Sent: Mið 16. Nóv 2005 09:23
af Stutturdreki
Ekki kaupa svona pakka tölvu ef þig langar að 'gera eitthvað' við tölvuna þína. Þetta er fínt fyrir fólk sem langar ekki einu sinni að vita hvað er inn í tölvukassanum sínum en fyrir þá sem eru með mikla þörf fyrir að 'gera eitthvað' við tölvurnar sínar er betra að púsla þessu saman sjálfir, í flestum tilfellum.
Sent: Mið 16. Nóv 2005 09:32
af hilmar_jonsson
Ég skapaði mér eiginlega þörf fyrir að leika mér með þetta eftir að ég fékk tölvuna. Þá fór ég að lesa mér til á fullu og skoða nördasíður. Núna sit ég uppi með móðurborð sem styður engan veginn yfirklukkun og kubbasett á því sem er erfitt að yfirklukka.
Sent: Mið 16. Nóv 2005 12:16
af SolidFeather
120mm vifta fyrir CPU, hver getur stælt sig af því?
Ég...
???
Sent: Mið 16. Nóv 2005 12:53
af Mazi!
hilmar_jonsson skrifaði:Ég var að setja SpeedFan inn. Ég er með Dell tölvu og ég fæ bara eitt hitastig inn og enga viftu.
Ég er reyndar bara með þrjár viftur, var með 2 þegar ég fékk tölvuna, þ.e. kassavifta og PSU vifta. Það var engin vifta á X300 kortinu.
ekki heldur ég