Skipta um chipset viftu ?
Sent: Mið 09. Nóv 2005 22:34
af Fernando
Er hægt að skipta um chipset viftu á þessu móðurborði ?
MSI Diamond
Hvernig væri best að gera það ?
Hvar gæti ég fengið aðra chipset viftu ?
Var svona aðeins að spekúlera í þessu því að viftan er frekar hávær.
Sent: Fim 10. Nóv 2005 00:46
af viddi
já taktu þessa viftu af, þú þarft enga viftu setur bara svona í staðinn, virkar mjög vel
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=668
Sent: Fim 10. Nóv 2005 01:06
af zaiLex
Það er bara spurning hvort að skjákortið þitt sé fyrir
Sent: Fim 10. Nóv 2005 07:55
af Stutturdreki
Skjákortið ætti að sleppa.. svo framarlega sem við höldum okkur við eintölu og hann er ekki með 6800/7800 eða nýju x1800 kortin, þau eru ekkert smá löng.
En btw., þú þarft örugglega að taka móðurborðið úr kassanum til að losa NB viftuna af og setja þetta í staðinn! Þetta er svoldið vesen en alveg þess virði ef það er hávaði í NB viftunni.
Er með svona Zalman NB heatsink sjálfur og mæli hiklaust með því. Kassa hitinn hjá mér er svona 27,5°C - 28,5°C og NB er ~31°C til ~34°C.
Sent: Fim 10. Nóv 2005 08:54
af kristjanm
Þetta Zalman heatsink ætti að vera í lagi ef það er vel sett á og þú ert með loftflæði í kassanum, allavega með eina útblástursviftu að aftan.
Ég hef sett svona heatsink á móðurborð og það er soldið vesen, en það er þess virði