Síða 1 af 1

Hjálpið mér að velja!!!!

Sent: Mán 09. Jún 2003 23:20
af Tesli
Já ég er að loksins að farað skella mér á tölvu næstu mánaðarmót og búinn að velja mér allt draslið
P4 2,4 800
P4c800 deluxe
2x512 ddr 400
serial ata 120 gb disk
ATI RADEON 9700 PR0
19 tommu skjá

En ég veit ekkert hvernig kassa ég á að velja mér. Svo hér kemur spurningin, hvernig kassa og power supply á ég að fá mér.
Mér er sama um útlit, ég vil bara hafa hana MJÖG hljóðláta og ég er til í að eyða undir 30.000kr í kassa og supply (því minna því betra).
Getið þið hin nördin hjálpað mér með þetta??? :)

Sent: Þri 10. Jún 2003 01:12
af kemiztry
Zalman PSU ekki spurning... svo skiptir kassinn litlu :wink:

Sent: Þri 10. Jún 2003 01:14
af kiddi
Tvö tips:
1) Það er ekkert til sem heitir hljóðlátur kassi, ef þú kaupir hljóðeingraðann kassa þá þýðir það meiri hiti sem kallar á enn meiri snúningshraða á viftum sem þýðir bara enn meiri hávaði. Trikkið við að fá hljóðláta tölvu er að þagga niðri í þessum hlutum sem eru í henni, t.d. keyptu hljóðlátt powersupply, fáðu þér VGA heatsink á skjákortið, settu chipset heatsink á chipset-viftuna (ef þú ert með svoleiðis) og fáðu þér t.d. Zalman örgjörvaviftu, og enn betra væri ef þú getur reddað hljóðeinangrun fyrir hörðu diskana því þeir eru háværastir af öllu þessu drasli. Hávaði er semsagt næstum því alveg óháður kassanum, finndu bara flottann og ódýrann kassa sem gefur þér gott rými til að athafna þig, t.d. Dragon =)

2) Gerðu smá heimavinnu varðandi DDR400, ég hef rekist á nokkrum stöðum að DDR400 er ekki að virka í DualDDR mode, finndu einhverjar upplýsingar til að segja að ég hafi rangt fyrir mér í því =)

Annars, þrusufín tölva! =)

Velja rétta gerð

Sent: Þri 10. Jún 2003 17:51
af AntonSigur
Er með DDR400 í dual mode, virkar flott!!
Málið er að kaupa minni sem er á listanum á http://www.asus.com/index.htm - undir móbóinu, sum minni hreynlega þola ekki dual mode.

Ég er með DDR400 samsung úr boðeind (kostar ca. 10þús 512mb) það er að meika það!

Sent: Þri 10. Jún 2003 21:57
af GuðjónR
Samsung og Kingston rokka ;)

Sent: Lau 14. Jún 2003 01:06
af Fletch
ég er með Kingston HyperX PC3500(433 mhz) minni sem svínvirkar... mæli eindregið með HyperX kubbunum...

Keypti þá í DK, ódýrari þar..

256mb kubburinn kostaði 500 danskar (5500 ísl)

Fletch

Sent: Lau 14. Jún 2003 12:49
af Voffinn
Fletch : ég er að fara til danmerkur, hvar keypturðu þetta ? kaupmannahöfn ? geturu komið með nafn á búð ?

Sent: Lau 14. Jún 2003 14:08
af Fletch
keypti af netverslun sem heitir http://www.shg.dk og lét senda þar sem ég var...

Svo sýniru tollinum á flugvellinum nóturnar þegar þú ert að fara heim til að fá danska vaskin endurgreiddan, 20%

Fletch

Sent: Lau 14. Jún 2003 15:51
af Voffinn
wow, intel 800 3.06 kostar eitthvað í kringum 35.000 ?

Sent: Lau 14. Jún 2003 20:33
af Fletch
Voffinn skrifaði:wow, intel 800 3.06 kostar eitthvað í kringum 35.000 ?


yep, verið að okra á sumum hlutum hér heima :wink:

borgar sig jafnvel að kaupa flugmiða til köben og versla tölvudót!!!

Fletch