Síða 1 af 1

NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 20:20
af elvarb7
Hver er með svona hér og hvernig er þetta að reynast, er þetta þess virði?
Er búinn að vera í veseni með 1080ti útaf hita. 75C under load á 100% fan speed.
Er ég kannski bara að ímynda mér að þetta sé of heitt?
Þetta er kortið
https://www.gigabyte.com/Graphics-Card/ ... OC-11GD#kf

https://www.amazon.co.uk/gp/product/B06 ... A1OLE&th=1

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 20:26
af slapi
Ég myndi ekki hafa áhyggjur af því í 75 gráðum.
Það er eðlilegur hiti undir miklu álagi þó það sé 100% fan

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 20:41
af steinar993
Hefuru skipt um kælikrem og rykhreinsað?

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 20:43
af elvarb7
steinar993 skrifaði:Hefuru skipt um kælikrem og rykhreinsað?


Já ég er búinn að því. Mig vantar reyndar thermal pads þeir voru frekar slappir. Er einhverstaðar hér sem er hægt að fá þá?

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 20:59
af arons4
Er dælan nokkuð efsti punkturinn í loopunni? Hún þarf að vera fyrir neðan vatnskassann.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 21:04
af elvarb7
arons4 skrifaði:Er dælan nokkuð efsti punkturinn í loopunni? Hún þarf að vera fyrir neðan vatnskassann.


Er ekki með AIO á kortinu

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Sun 30. Ágú 2020 21:41
af arons4
elvarb7 skrifaði:
arons4 skrifaði:Er dælan nokkuð efsti punkturinn í loopunni? Hún þarf að vera fyrir neðan vatnskassann.


Er ekki með AIO á kortinu

Ah ég misskildi, en 75C er ekkert of heitt undir miklu álagi. En ef þér finnst vera of mikil læti í kortinu geturu tékkað á þessu.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 00:02
af ishare4u
Ég var kominn með leið á hitatölum á mínu 1080ti. Asus 1080ti turbo blower style kort. Fékk mér svona bracket og skellti 240mm AIO. Mér finnst þetta snilld. Betri hitatölur og minni hávaði.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 04:40
af Heidar222
elvarb7 skrifaði:
steinar993 skrifaði:Hefuru skipt um kælikrem og rykhreinsað?


Já ég er búinn að því. Mig vantar reyndar thermal pads þeir voru frekar slappir. Er einhverstaðar hér sem er hægt að fá þá?


Ég myndi prófa að heyra í Kísildal. Mig minnir að þeir séu með pads.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 07:45
af Ingisnickers86
Er með 1080ti og kraken g12/x52 og er mjög sáttur. Er með smá OC og kortið í rennslu er svona 65-67 gráður. Reyndar er rosa hávaði í litlu viftunni sem fylgir bracketinu. Er að bíða eftir 3 pin fan to 3 pin gpu adapter til að stýra hraðanum á viftunni beint í gegnum kortið. Viftan er eins og er tengd beint í pumpuna og engin bein leið að stilla hraðann á henni (hef allavega ekki fundið hana)

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 07:52
af elvarb7
Heidar222 skrifaði:
elvarb7 skrifaði:
steinar993 skrifaði:Hefuru skipt um kælikrem og rykhreinsað?


Já ég er búinn að því. Mig vantar reyndar thermal pads þeir voru frekar slappir. Er einhverstaðar hér sem er hægt að fá þá?


Ég myndi prófa að heyra í Kísildal. Mig minnir að þeir séu með pads.


Snilld takk prófa það í dag :happy

Ingisnickers86 skrifaði:Er með 1080ti og kraken g12/x52 og er mjög sáttur. Er með smá OC og kortið í rennslu er svona 65-67 gráður. Reyndar er rosa hávaði í litlu viftunni sem fylgir bracketinu. Er að bíða eftir 3 pin fan to 3 pin gpu adapter til að stýra hraðanum á viftunni beint í gegnum kortið. Viftan er eins og er tengd beint í pumpuna og engin bein leið að stilla hraðann á henni (hef allavega ekki fundið hana)


Takk fyrir svarið. X52 er það AIO-ið sem þú ert með? Ef ég geri þetta fer ég sennilegast í 240mm rad en þá er spurning um er þess virði að eyða 30k í þetta.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 09:33
af pepsico
Er ekki um að gera að taka bara viftushroudið af og skella tvem 140mm Noctua viftum á þetta með teygjum eða eitthvað frekar en að eyða 30.000 krónum í búnað sem lækkar strax um 10.000 kr. í endursöluverði svona fyrst við erum að lækka endursöluvirðið á skjákortinu til að byrja með? Gætir þá alltaf skrúfað þetta lélega viftushroud á aftur frekar auðveldlega ef mér skjátlast ekki.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 11:06
af elvarb7
Það er vissulega punktur hjá þér Pepsico. En þetta er líka spurning um fashion it is all about the fashion.
Ég get alveg farið út í eitthvað svona made in sveitin dæmi en þá er ég líka búinn að lækka endursöluverðið og mun ekki eiga 240mm rad og mounting kit ;)

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 11:13
af pepsico
Það lækkar endursöluvirðið ekki neitt að skrúfa tímabundið af viftushroudið. Skrúfar það bara á aftur á fyrir sölu og kortið er eins og það var upphaflega. Þú ert mögulega nú þegar búinn að því ef þú skiptir um kælikrem og rykhreinsaðir áður. En ef þú vilt fara út í þessar vatnskælingapælingar uppá sportið þá er það allt gott og blessað.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 11:25
af elvarb7
pepsico skrifaði:Er ekki um að gera að taka bara viftushroudið af og skella tvem 140mm Noctua viftum á þetta með teygjum eða eitthvað frekar en að eyða 30.000 krónum í búnað sem lækkar strax um 10.000 kr. í endursöluverði svona fyrst við erum að lækka endursöluvirðið á skjákortinu til að byrja með? Gætir þá alltaf skrúfað þetta lélega viftushroud á aftur frekar auðveldlega ef mér skjátlast ekki.



pepsico skrifaði:Það lækkar endursöluvirðið ekki neitt að skrúfa tímabundið af viftushroudið. Skrúfar það bara á aftur á fyrir sölu og kortið er eins og það var upphaflega. Þú ert mögulega nú þegar búinn að því ef þú skiptir um kælikrem og rykhreinsaðir áður. En ef þú vilt fara út í þessar vatnskælingapælingar uppá sportið þá er það allt gott og blessað.


Núna fórstu alveg með mig. Hvort heldur þú að endursöluverð á skjákortinu muni lækki eða ekki við að taka af shroud? :?

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 11:38
af pepsico
Pælingin mín var bara að það er hægt að taka þetta viftushroud af og láta það aftur á miljón sinnum án þess að breyta virkni kortsins að neinu leyti og enginn myndi vita að þú hefðir gert það (ef þú strippar ekki skrúfurnar). En ef maður tekur kælingarelementið undir því af og týnir púðunum og/eða lætur aðra púða á o.s.frv. og skiptir um krem og lætur eitthvað vatnskælingarelement á í staðinn o.s.frv. þá er það auðvitað ekki lengur í upphaflegu ástandi. En svona þegar ég pæli í því þá ertu nú þegar búinn að rugla í því öllu er það ekki, svo þetta skiptir engu máli eftir á að hyggja.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 11:56
af elvarb7
Nei reyndar ekki búinn að gera neitt nema rykhreinsa og skipta um kælikrem. Ég fatta hvað þú ert að meina núna takk fyrir input-ið :happy

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 15:14
af GullMoli
Ég festi Closed Loop CPU cooler á Nvidia GTX480 kort fyrir nokkrum árum með ótrúlega góðum árangri, notaði að vísu bara zip-ties eins og gert er hér: https://www.youtube.com/watch?v=LM3DyUqWWns

Kortið fór úr 95-100°C niður í rúmar 60°C

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Mán 31. Ágú 2020 18:51
af pepsico
https://linustechtips.com/main/topic/92 ... s-updated/
Þessi lét bara tvær 120mm NF-F12 viftur á með zipties og það er að koma svo vel út og á svo mikið lægra verði (6.000 kr.) en AIO að ég myndi ekkert vera að flækja þetta sjálfur.

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Þri 01. Sep 2020 07:25
af Ingisnickers86
elvarb7 skrifaði:
Takk fyrir svarið. X52 er það AIO-ið sem þú ert með? Ef ég geri þetta fer ég sennilegast í 240mm rad en þá er spurning um er þess virði að eyða 30k í þetta.



Jamm, Kraken X52. En eins og hinir segja: ef upp á virkni er alveg jafn gott að henda noctua á kortið og call it a day. Ef fyrir bragging rights þá watercool that suckah!

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Þri 01. Sep 2020 09:42
af elvarb7
Ingisnickers86 skrifaði:
elvarb7 skrifaði:
Takk fyrir svarið. X52 er það AIO-ið sem þú ert með? Ef ég geri þetta fer ég sennilegast í 240mm rad en þá er spurning um er þess virði að eyða 30k í þetta.



Jamm, Kraken X52. En eins og hinir segja: ef upp á virkni er alveg jafn gott að henda noctua á kortið og call it a day. Ef fyrir bragging rights þá watercool that suckah!


Bragging og fashion.

Mig langar svakalega í AIO og allt það en þetta helvítis kort er eitthvað viðrini. Er búinn að senda á nokkra og þeir eiga/áttu ekki neitt

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Þri 01. Sep 2020 11:00
af Ingisnickers86
elvarb7 skrifaði:
Bragging og fashion.

Mig langar svakalega í AIO og allt það en þetta helvítis kort er eitthvað viðrini. Er búinn að senda á nokkra og þeir eiga/áttu ekki neitt


Hver átti ekki hvað? Ég allavega keypti G12 + x52 í gegnum https://m.computeruniverse.net/en/

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Þri 01. Sep 2020 12:08
af elvarb7
Ég er að tala um block á þetta kort

Re: NZXT KRAKEN G12 - GPU Mounting Kit

Sent: Þri 01. Sep 2020 12:11
af Ingisnickers86
elvarb7 skrifaði:Ég er að tala um block á þetta kort


Ahh ok :)