Síða 1 af 1

Tölvan startar sér ekki

Sent: Fös 15. Apr 2005 15:42
af valdiþ
Sælir/ar

Ég er í smá vandræðum.

Ég fjárfesti í dag í Sparkle 6600 GT 128 MB skjákorti og smellti því í tölvuna.
Eftir að ég var búinn að setja upp drivera og restarta tölvunni þá kemur melding um að skjákortið sé ekki að fá nægt afl og er ekki að keyra á fullum aföstum.
Ég í minni fávisku hélt samt áfram að nota nota tölvuna og ætlaði svo að kaupa nýjan aflgjafa eftir helgi.
Svo þurfti ég að slökka á tölvunni til að vesenast aðeins í hörðu diskunum en þegar ég ætlaði að starta henni upp aftur þá gerist ekkert, engar viftur eða harðir diskar í gang og bara eins og enginn straumur sé á vélinni.
Það er lítil díóða á móðurborðinu sem sýnir hvort það sé straumur á vélinni og það var kveikt á henni sem þýðir að einhvert afl hlýtur hún að vera að fá.

Ég hef prófað að taka allt úr sambandi en enn er allt steindautt nema þetta litla ljós á móðurborðinu

Mig grunar að þetta sé psu-ið sem er í einhverjum vandræðum en áður en ég rýk út og kaupi nýtt þá væri gaman að vita hvort þið hafið einhverjar hugmyndir hvort eitthvað annað gæti verið að og hvernig ég gæti einangrað vandamálið.

Þetta er bara 300W psu sem ég er með og er að keyra 3 HDD´s, 1 DVD-R , 2 kassaviftur, skjákortið og auðvitað móðurborðið.

Sent: Fös 15. Apr 2005 17:48
af ponzer
Er þetta eitthvað noname psu ? Getur allveg skeð ef þetta er eitthvað crap pus :P

Sent: Lau 16. Apr 2005 03:16
af zaiLex
Prófaðu að taka psuið úr sambandi í svona 2-3 mín og láta svo aftur í samband, virkar alltaf fyrir mig þegar ekkert fer af stað.

Sent: Lau 16. Apr 2005 10:25
af valdiþ
Problem solved

Núna í morgun þegar ég prófaði kveikja á henni þá startaði hún sér upp eins og ekkert hafi í skorist :?

Þá er bara að fá nýtt psu til að keyra þetta alltsaman vandræðalaust, eru 400w ekki nóg ?

Sent: Lau 16. Apr 2005 11:21
af kristjanm
Jú 400W ættu að vera nóg fyrir flestar tölvur.

Hvernig PSU ertu með núna og hvernig ætlarðu að fá þér?

Sent: Lau 16. Apr 2005 11:31
af valdiþ
Núna er ég með 300W Antec psu sem fylgdi kassanum.

Er ekki búinn ákveða mig um hvað ég ætla að kaupa.

Ábendingar væru vel þegnar :D

ps.
Ég er á budget þannig að það má helst ekki kosta yfir 10.000 kr.
Geri engar svakalegar kröfur um lága dB tölu heldur.

Sent: Lau 16. Apr 2005 11:53
af valdiþ
Er búinn að skoða psu hjá nokkrum verslunum.

Er ekki vel að mér í hvað er best þannig að ég set hérna þá sem mér líst vel á og svo væri gaman að fá comment um hvað ykkur líst vel á af þeim (eða öðrum á svipuðu verði).

OCZ Modstream 450W = 7.490 kr.

400w Fortron = 7.990 kr.

Thermaltake W0009R 420 W = 7.900 kr.

Miðað við þetta er OCZ psu-inn frá task.is bestu kaupin (út frá verð/afl).

Sent: Lau 16. Apr 2005 11:57
af MuGGz
ocz modstream

Sent: Lau 16. Apr 2005 14:02
af kristjanm
OCZ Modstream er langbesti aflgjafinn af þessum þremur.

Sent: Lau 16. Apr 2005 16:30
af gnarr
Ég myndi taka fortron aflgjafann. Hann er virkilega góður!

Sent: Lau 16. Apr 2005 17:20
af kristjanm
Ég er með þennan aflgjafa og hann undirvoltar.

Sent: Lau 16. Apr 2005 17:34
af valdiþ
Ætli ég skelli mér ekki á OCZ Modstream aflgjafann.

Góð komment hérna og snúrufídusinn eru að gera góða hluti :wink:

Takk fyrir hjálpina.