Síða 1 af 1

Gluggakit

Sent: Sun 25. Maí 2003 22:06
af Castrate
Veit einhver hvar maður getur fengið svona gluggakit fyrir kassa ég sé þetta hvergi og svona víst ég er að spyrja að þessu veit einhver hvort það sé mikið mál að setja svona í kassa skera úr og svona?

Sent: Sun 25. Maí 2003 22:12
af Snorrmund
fara á næstu blikksmiðju og láta skera út annars á ekki að vera mikið mál að setja þetta í sko http://www.metku.net þar er tutorial

Sent: Sun 25. Maí 2003 22:24
af Castrate
flott en hvar getur maður fengið gluggan sjálfan?

Sent: Sun 25. Maí 2003 23:41
af Voffinn
ef þú ert að tala um "glerið" þá held ég að það sé yfirleitt notað plexigler.

Sent: Mán 26. Maí 2003 00:53
af gumol
Og hvar fæst plexigler ?

Sent: Mán 26. Maí 2003 06:49
af elv
Það er búð í síðumúlanum sem selur plexi og lexan, er beint á móti Og Vodaphone.Man ekki alveg hvað hún heitir, Akron eða eitthvað álika, en er ógeðslega dýr.

Svo er staður á Krókhálsi sem laser sker málma ef þð vilji fara að vera fínir.

Sent: Þri 27. Maí 2003 18:29
af Atlinn
http://www.frozencpu.com
þarna geturu fengið svona glugga kit

Sent: Mið 28. Maí 2003 19:36
af Snorrmund
glerið fylgir oftast gluggakitttinu...annars keypti ég 5mm plexigler í speglasmiðjunni(held að hún heiti það) á egilsstöðum :D kostadi 500kr einhver 50x60cm bútur minnir mig gæti verið stærri

Sent: Fim 29. Maí 2003 12:30
af Atlinn
plexigler er ekkert svo dýrt örugglega svoan 1000 kall fermeterinn, svo er hægt að fá það í svo mörgum litum, t.d. glært, hvítt, blátt, grænt, gult, rautt og örugglega fleiri, það er örugglega dýrara að láta saga það.
Svo eru sumir sem setja ekki svona gúmmí kant, en hliðin verður þá að vera vel skorin og helst þarf að pússa sárið líka, þá þarf líklega að mála hliðina aftur

Sent: Fim 29. Maí 2003 12:52
af Castrate
hva fær maður svona gúmmí kant?

Sent: Fim 29. Maí 2003 17:40
af Castrate
ég sendi task.is email spurði þá hvort þeir væru ekki að koma með svona gluggakit svona gluggi og gúmmíkantur og eitthvað saman í pakka fæ væntanlega svar á morgun

Sent: Fös 30. Maí 2003 16:59
af Voffinn
Castrate minn, svona gluggakit samanstendur örugglega bara af plexigler plötu, lími, og gúmmílista. eða er eitthvað sem ég veit ekki um ?

Alvega :

Byko -> gúmmilistar og lím
Búðin sem elv sagði frá -> Plexigler

akkuru ætlarðu að kaupa kit ? do it yourself man :D ... auk þess að þetta kit kostar pottþétt meira ...

Sent: Mán 02. Jún 2003 19:51
af odinnn

Sent: Fös 06. Jún 2003 12:22
af Jakob

Fleiri staðir með Plexigler

Sent: Lau 28. Jún 2003 00:43
af gumol
Fyrir okkur Kópavogsbúana er örugglega best að fara niður á Nýbílaveg, í hinum endanum á bílastæðinu Dominos þar er einhver búð sem selur Plexi-plast og Plexi-gler.

Sent: Þri 01. Júl 2003 16:19
af Snorrmund
já það væri gamann!

Sent: Þri 01. Júl 2003 16:24
af gumol
elv skrifaði:Það er búð í síðumúlanum sem selur plexi og lexan, er beint á móti Og Vodaphone.Man ekki alveg hvað hún heitir, Akron eða eitthvað álika, en er ógeðslega dýr..

Ég keipti 25 * 22 cm plexiplötu í búðinni á Nýbýlavegi 32 á 300 kr.

Sent: Fös 04. Júl 2003 08:28
af Gothiatek
Castrate skrifaði:ég sendi task.is email spurði þá hvort þeir væru ekki að koma með svona gluggakit svona gluggi og gúmmíkantur og eitthvað saman í pakka fæ væntanlega svar á morgun

Hefur þú fengið eitthvað svar frá þeim......annars ætla ég helst að gera þetta sjálfur :8)

Sent: Fös 04. Júl 2003 19:03
af Castrate
Júmm reyndar langt síðan... þeir eru með svona gluggakit 3 gerðir af því en þeir eru bara ekki með það inná vefnum sínum ætla ekki að setja það inn alveg strax hann sagði líka að það væri best að kíkja bara á þá á Grensásveg 7 og sjá hvað þeir eru með í boði.