Síða 1 af 1
Passar Zalman CNPS7700-AlCu ekki örugglega á Abit AI7 mobo?
Sent: Mán 04. Apr 2005 10:33
af skurken
....og hver er munurinn á CNPS7700-AlCu og CNPS7000-AlCu (sem er þúsundkalli ódýrari)?
Sent: Mán 04. Apr 2005 10:38
af Zkari
Prófaðu að leita í gömlum póstum, oft búið að pósta lista yfir móðurborðin sem þetta passar á
Sent: Mán 04. Apr 2005 13:29
af Daz
Fyrir svo utan að það eru bæði upplýsingar um muninn og hvaða móðurborð taka við þeim á heimasíðu Zalman.
http://www.zalmanusa.com
Sent: Mán 04. Apr 2005 13:51
af kristjanm
7700 gerðin er mun stærri en 7000 gerðin.
Sent: Mán 04. Apr 2005 14:05
af Mr.Jinx
En þvi er enginn verðmunur á þetta
Sent: Mán 04. Apr 2005 17:21
af skurken
skellti mér á 7700 hlunkinn....... stærðin á þessu er, hmm, ógnvekjandi! Reyni að troða þessu í í kvöld.
Sent: Mán 04. Apr 2005 21:38
af skurken
Kom gaurnum í, allt annað líf! Nú er hins vegar eini hávaðavaldurinn litla viftan á chipsetinu (er hún ekki að kæla það annars?). Er kannski í lagi að rífa hana úr sambandi? (Prófaði það í smástund og í fyrsta skipti var tölvan nánast alveg hljóðlaus). Það stendur í bæklinginum sem kom með örgjafaviftunni að hún er það stór að hún á að kæla einnig minnið/chipsettið ofl. Ætli það sé kannski bara næg kæling fyrir chipsetið? Einhver?
Sent: Mán 04. Apr 2005 22:25
af Pandemic
Ég tók mína úr sambandi og það hefur ekkert gerst hingað til
Sent: Mán 04. Apr 2005 22:32
af Snorrmund
ef ég tek mína chipset viftu úr sambandi(einnig AI7) þá pípar allt og vælir..
Sent: Mán 04. Apr 2005 22:35
af Pandemic
Ég er ekki með pc-speakerinn tengdan þannig að þetta truflar mig ekkert.
Sent: Mán 04. Apr 2005 22:58
af DoRi-
ég er með heatsink sem býr ekki til hljóð
Sent: Mán 04. Apr 2005 23:08
af MezzUp
DoRi- skrifaði:ég er með heatsink sem býr ekki til hljóð
Hah, ég líka! En hefur einhver heyrt um heatsink sem býr til hljóð?
Sent: Þri 05. Apr 2005 07:57
af gnarr
það á nú að vera lítið mál að slökkva á chipset fan warning í bios á flestum móðurborðum.
Sent: Þri 05. Apr 2005 17:39
af skurken
Ég ætla að krossa fingur, biðja til Drottins og rífa helvítið úr sambandi. Þá ætti konan að geta sofið á næturnar meðan ég "fæ lánað" af netinu.