Síða 1 af 1

HTT @ 371*3 á Shuttle XPC SN95G5

Sent: Þri 15. Mar 2005 13:16
af gnarr
Mér þykir þetta bara svo lygilegur hraði á svona litlu kvikindi! og ég er bara með kubbasets spennuna í 1.7v!

ég er að nota "ClockGen for nVidia nForce3" frá CPUID til að overclocka yfir 280 (þar sem að biosinn styður ekki hærra en það). Þetta er ekkert ótrúlega stabílt forrit, svo að tölvan frýs oft.

en það er spennandi að sjá hvað ég næ henni í :D

Sent: Þri 15. Mar 2005 13:21
af CraZy
HTT ?

Sent: Þri 15. Mar 2005 13:23
af gnarr
HyperTansport Technology.

þetta er nokkurnveginn scalable fsb, með multiplier.

Sent: Þri 15. Mar 2005 13:29
af hahallur
Ég giska að þú komist ekki hátt :)

Sent: Þri 15. Mar 2005 14:44
af Cascade
Samt ekkert met

Margir með sama móðurborð og ég er með hafa náð upp að 500HTT

Ég prófaði að setja 400x6 og það svínvirkaði

Sent: Þri 15. Mar 2005 14:52
af gnarr
en það eru ekki smf eða barbone móðurborð með sama og engri kælingu.

ég er líka bara búinn að setja 1.7 á kubbasettið. biosinn býður að setja það uppí 1.9. ég get eflaust komist hærra með því.

þykir þér virkilega ekki flott að ég hafi náð uppí 370 (30 lægra en þú ert náðir á þínu ofurborði) á lágri spennu og nánast án kælingar at all.

Sent: Þri 15. Mar 2005 15:15
af Cascade
Just saying að þetta sé ekkert met.

Ég breyttri engri spennu þegar ég setti HTT upp í 400. Bara setti þetta á 400htt og 6x multiplier og divider 1/2.

Ég ætti að ná upp í 500HTT skv. hvað aðrir eru að ná.

Annars hef ég mestan áhuga á 1:1, að hafa háan HTT skilar voða litlu

Er að ná 250mhz 2-2-2-6 stöðugt, svo er ég að spá að fá mér TCCD minni og fara yfir 300mhz 2.5-3-3-7

Sent: Þri 15. Mar 2005 16:05
af hahallur
Ég finn ekkert chipset voltage, kannski er það ekki á þessari hörmung :(