Síða 1 af 2

Hjálp með val á kassa :).

Sent: Mán 14. Feb 2005 00:16
af Ragnar
Já Góðan dag. Ég er að spá að fá mér nýjan kassa og þetta er hann.

http://www.silverstonetek.com/products-lc10.htm

Svolítið líkur magnara (eða mér finnst það) :).

Hérna er Videoreview af svona kassa bara Media center útgáfa.

http://www.3dgameman.com/vr/silverstone ... ew_03.html

Jæja hvað finnst ykkur (persónulega) :P. Er einhver umboðsaðili fyrir Silverstone?. Eða þarf ég að flytja hann inn.

Væri það nokkuð vitlaust að hafa skjáinn sinn upp á kassanum (lcd Viewsonic Vp17b). Svo er ég lika að spá að bora gat fyrir 120mm viftu þar sem Örgjafinn er.

Sent: Mán 14. Feb 2005 11:29
af arnarj
flottur kassi, en ég mundi aðeins kaupa svona kassa til að hafa í notkun sem sjónvarpsvél í stofu og ég mundi ekki modda hann né hafa skjá ofan á honum. En það er bara ég.

Þarft áreiðanlega að flytja hann inn.

Sent: Mán 14. Feb 2005 14:06
af Ragnar
Ok. Þakka svarið ég hugsa málið

Sent: Mán 14. Feb 2005 17:12
af MezzUp
arnarj skrifaði:flottur kassi, en ég mundi aðeins kaupa svona kassa til að hafa í notkun sem sjónvarpsvél í stofu og ég mundi ekki modda hann né hafa skjá ofan á honum.
sama hér

Sent: Fim 17. Feb 2005 02:23
af Ragnar
Ok en hvað þá með þennan hér. Kingwin með 3 gluggum og 5 viftum og bara 130 dali.

http://store.eramax.com/alcolatxcomc.html

Auðvitað ef einhver veit hvar ég get fengið þetta á íslandi þá væri það náttúrulega bara dásamlegt.

Er ekki hægt að fá einhveja tölvuverslun til að sérpanta fyrir sig :P.

Ps. Ég er svona nokkuð nýr á kassamarkaðinn.

Öll svör fyrirfram þökkuð.

Sent: Fim 17. Feb 2005 07:22
af fallen
Lian-Li
Held að þetta sé alveg málið í dag.
Hljóðeinangraðir og whatnot
review

Sent: Fim 17. Feb 2005 07:23
af kristjanm
Mér finnst þessi seinni flottari, þessi fyrri er meira fyrir Media Center inni í stofu eða eitthvað.

Sent: Fim 17. Feb 2005 12:05
af Ragnar
Já Lian-Li eru nice kassar og til á Íslandi.Jújú kannski maður skelli sér bara á pc-60 eða 61 black eða 65 black. 65 er með glugga en 60 og 61 ekki. 14.000kr Lian-li pc 61 Black hjá Þór.

stacker

Sent: Mið 30. Mar 2005 20:12
af galileo
Ef ég væri þú þá myndi ég fá mér Coolermaster Stacker kassann, Á þannig sjálfur og hef góða reynslu af honum, hann ætti að vera sérstaklega góður í yfirklukkun útaf góður loftflæði ( ef þú ert að yfirklukka :) ) hann er stór þú getur annaðhvort verið med tvo aflgjafa, eða tvær aukaviftur neðst.

Coolermaster stacker fæst hjá http://www.start.is á ca. 15000 kall minnir mig


hér eru linkar með myndum:

http://www.dijitalcenter.com/content_fi ... tacker.jpg

http://prohardver.hu/html/haz/coolermas ... y2_big.jpg

Þessi næsta er mynd innaní honum þarna neðst sérðu plássið fyrir aukaviftum eða aukaaflgjafa, annars fer aflgjafinn þarna allra efst.

http://image.donanimhaber.com/resimler/cmstackers2.jpg

Sent: Mið 30. Mar 2005 22:41
af SolidFeather

Sent: Mið 30. Mar 2005 23:46
af zedro
Mér persónlulega finnst stacker kassinn GEÐVEIKUR, slefa bókstaflega yfir þessum grip. :twisted:

Það sem mig langar hinsvega að vita er: í hvað er þessi kassi, eða utanum öllu heldur, leikjavél, mediacenter, server o.s.frv.

Sonan góð byrjun að vita til hvers kassin er, hvort þú þurfir mikið pláss eða lítið, þarftu pláss fyrir vatnskælingu og sollis dutli?

Sent: Fim 31. Mar 2005 14:27
af Ragnar
Gaming. Svona miðstærð og helst ál mér er illa við þunga. Ég hef veri að spá í þessum eclipse og lika í Silverstone SJ06 sem er með svona loftgöng Svolítið sniðugt.

Svo langar mig helst hafa eins hljóðláta og hægt er. Hef vatn til íhugunnar en vill helst loft. Þá helst kannski SilenX viftur 120mm 14db eða 11db.

Thermaltake tsunami http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... mi_3400BWA

eða Antec Sontana http://www.task.is/?webID=1&p=288&sp=372&item=1881 Þessi sontana er hann ekki nettur. Ég hef aldrey séð hann in person. Er ekki geggjuð mirror máling :) .

Og eitt enn þessi 380w spennugjafi sem er í Antec Sontana kassanum er hann ekki silent og fínn. Og er hann ekki nóg power

amd 3000+ ati x800xt 1 hdd 1 cd/writer/dvd og móðurborð.

Sov er ég líka að spá í OCZ modstream.

Jæja þá er það komið.

Sent: Fim 31. Mar 2005 15:58
af galileo
Zedro
BréfSkrifað: Mið 30. Mar 2005 23:46 Bréfsheiti:
Mér persónlulega finnst stacker kassinn GEÐVEIKUR, slefa bókstaflega yfir þessum grip. Twisted Evil

Það sem mig langar hinsvega að vita er: í hvað er þessi kassi, eða utanum öllu heldur, leikjavél, mediacenter, server o.s.frv.

Sonan góð byrjun að vita til hvers kassin er, hvort þú þurfir mikið pláss eða lítið, þarftu pláss fyrir vatnskælingu og sollis dutli?


Keypti hann í task áður enn að Start fengu hann og þeir sögðu mér að hann væri oft notaður sem serverkassi í fyrirtækjum en auðvitað er hægt að nota hann líka í venjulegar (atx) tölvur.

svar

Sent: Fim 31. Mar 2005 16:04
af galileo
Ragnar ef þú ert að spá í að fá þér annaðhvort 11 eða 14db held ég að þú ættir að fá þér 14db af því að ég lærði það einhvertíman að mannkynið heyri ekki minna en 20db (er ekki alveg 100% á því) svo að það ætti ekki að skipta máli er með silenX aflgjafa með 14db viftu heyrist ekkert í henni sko.

Sent: Fim 31. Mar 2005 16:08
af galileo
sorry að ég sé að flooda þennan þráð en annar vinur minn var bara að kaupa sér tsunami kassa og hann var búinn að hafa hann í gangi í nokkrar sek. þá var einhver vír búinn að rekast í kassaviftuna (sem er ekki með grind, sem sukz)og allir spaðarnir duttu af kassaviftunni frekar furðulegt :? en satt.

Svo ef ég væri þú þá myndi ég kaupa mér grind á kassaviftuna og setja hana á strax ef hægt er, eða bara ganga mjöööög vel frá vírunum :lol: .

Re: Hjálp með val á kassa :).

Sent: Fim 31. Mar 2005 17:18
af start
Ragnar skrifaði:[..]Er einhver umboðsaðili fyrir Silverstone?.


Start er umboðsaðili SilverStone á Íslandi og þessi kassi er til á lager hjá okkur.

Kv

Sent: Fim 31. Mar 2005 18:14
af galileo
úff Ekki verra að fá svar frá versluninni sjálfri. :lol:

Sent: Fim 31. Mar 2005 20:02
af gnarr
Reglur skrifaði:4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=6900


galileo skrifaði:Ragnar ef þú ert að spá í að fá þér annaðhvort 11 eða 14db held ég að þú ættir að fá þér 14db af því að ég lærði það einhvertíman að mannkynið heyri ekki minna en 20db (er ekki alveg 100% á því) svo að það ætti ekki að skipta máli er með silenX aflgjafa með 14db viftu heyrist ekkert í henni sko.


við heyrum alveg niður í 1db. db er miðað við "threashold oh hearing", og þessvegna nær skalinn bara yfir það sem við getum heyrt.

Það breytir líka miklu hvernig þetta er mælt. ef þetta er mælt 1cm frá viftunni, þá er hún MJÖÖÖG hljóðlát. ef þetta er mælt í næsta herbergi, þá er hún MJÖÖG hávær. Oftast er þetta hinsvegar mælt á 1m færi. hljóð virkar þannig að við tvöföldun á fjarlægð lækkar hljóðið um 3db (sem að er helmingurinn að hljóðinu við upprunalega fjarlægð).

þannig að ef þetta er mælt í 1m fjarlægð, þá getum við notað þessa formúlu:

11 - 3 - 3 - 3 - 3 = -1.

sem þýðir að þú ættir að geta heyrt í viftunni úr umþaðbil 15m fjarlægð á tilraunastofu sem er með "ekkert" hljóð.

Hinsvegar verðuru að spá í því að það er hávaði allstaðar í kringum okkur, hávaði frá bílaumferðinni úti, vindinum, tónlistinni í næsta húsi, fólkinu að tala í næstu íbúð. svo að í rauninni er um 25-30db "noisefloor" heima hjá þér á daginn og um 15-20db á nóttunni.

þetta þýðir að ef viftan er 11db við 1 metra, þá áttu ekki séns á að heyra í henni úr þeirri fjarlægð, hvorki á daginn né kvöldin.

Oft er vifturnar mældar þannig að þeim er haldið uppi a teygjum eða þær standa á bómull, það þýðir að inní þessari tölu er ekki með hávaði vegna titrings sem þær gefa frá sér. Þannig að það er oftast hærra hljóð í þeim í alvörunni heldur en í svona prófum.

mundu líka að 11db + 11db = 14db og 11db + 11db + 11db + 11db = 17db.

:)

misskilningur

Sent: Fim 31. Mar 2005 20:33
af galileo
Humans can hear sounds at frequencies from about 20Hz to 20,000Hz.

Þetta rók ég afsíðunni: http://www.dosits.org/science/measurng/3.htm

Ég fór með rangt mál með þessi db. Það rétta var 20 hz ekki 20 dbþ :(



Reglur skrifaði:
4. gr.

Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


Afsaka það innilega að ég hafi brotið reglu á þessari síðu :cry: , harma það mjög :( skal reyna allt sem ég sem ég get til þess að þetta skéi ekki aftur.[/code][/list][/list][/quote]

Sent: Fim 31. Mar 2005 20:59
af gnarr
enginn er fullkominn ;) ég var bara að benda þér á þetta. þaðer ekkert alverlegt að gera þetta óvart. Ég hef nú bortið einhverjar reglur hérna í gegnum tíðina án þess að vita/fatta það sjálfur.

"batnandi manni er best að lifa"

Sent: Fös 01. Apr 2005 00:01
af Gandalf
þessi kattarmynd lætur þig gnarr líta út eins og úrillasta yfirmann í heimi. Ekki skrítið að maðurinn hafi orðið smá skelkaður og beðist afsökunar í gríð og erg
:lol: :lol: :lol:

Sent: Fös 01. Apr 2005 00:59
af gnarr
hehe :) þessi mynd er best. lýsir mér vel *hóst* :)

Sent: Fös 01. Apr 2005 02:19
af Mr.Jinx
Þegar ég reyni að setja mynd þá kemur myndir verður að vera 100 pixela hár bla bla. :roll:

Sent: Fös 01. Apr 2005 02:27
af gnarr
það er vegna þess að myndin verður að hafa hár.. :lol:

þú verður bara að passa að myndin má ekki vera MEIRA en 100x100 og 20kb

mr. jinx

Sent: Fös 01. Apr 2005 09:07
af galileo
mr. jinx ef til dæmis tekur mynd af google.com inna tölvuna þína gerðu þá open with og veldu einhvað svona forrit eins og microsoft office picture manager eða photoshop ( ef þú ert með.)og gerðu þar crop þangað til að þú ert kominn niðri 100x100 pixla.