Síða 1 af 1
Kæling für das P4 Prescott 3.0
Sent: Fim 10. Feb 2005 17:55
af Gestir
Já.. ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skila viftunni sem ég fékk í ATT.is þar sem að hún er ekki að kæla þennan örgjörva frekar en dauður hamstur myndi gera ...
þá er það spurningin... á ég að splæsa í betri kassa... ( er með álkassa fyrir ) sem er betra loftflæði eða fá mér Zalmann viftu sem á víst að kæla örran niður drasl ..
var að spá amk með viftu... 6000 kall ... fær maður góða .. þá meina ég Góða viftu fyrir það ?
Sent: Fim 10. Feb 2005 18:59
af everdark
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... ALMAN_KOPA
Zalman blómið hið fræga...
Langbesta örgjörvaviftan á markaðnum.
Sent: Fim 10. Feb 2005 20:25
af DaRKSTaR
ekki spurning.
hendi einni svona á hjá mér um helgina, sé enga aðra viftu sem gæti verið góð á prescott örgjörva satt að segja ekki nema þá zalman 7700 hún er bara svo massive stór að hún passar ekki á hvaða borð sem er.
Sent: Fös 11. Feb 2005 12:37
af Gestir
En segið mér þá ..
hver er eðlilegur Hiti á Intel P4 Prescott 3.0 ... ??????
ég á eftir að skoða þetta til hins ítrasta og ég held ennþá að þetta Sandra 2005 hafi verið bölvað rugl... það er alveg sama hvenæar ég ræsi það.. hún segir alltaf " Control temp 66° C og 150.8 F "
sama hvort hún sé ný störtuð.. eða búin að vera í vinnslu ..
eða eru einhver betri forrit til að fylgjast með Voltum og Hita ??
Sent: Fös 11. Feb 2005 12:46
af kristjanm
Ég held að forrit eins og Motherboard Monitor sé það sem þú ert að leita að.
Sent: Fös 11. Feb 2005 17:37
af Gestir
og finn ég það ,.... ??
bara google ?
Sent: Fös 11. Feb 2005 18:06
af Snorrmund
google hefur svör við öllu
eða flestu allavega
Sent: Fös 11. Feb 2005 18:21
af kristjanm
Já þú finnur það á google. Endilega láttu vita hvað forritið segir.
Sent: Fös 11. Feb 2005 19:43
af Gestir
ég náði í þetta forrit en Móbóið mitt var ekki á listanum :S
þetat er Chaintech 9pJL3 en ég valdi bara í staðinn eitthvað sem var 9XJL
veit ekki hvort það skemmi allt...
en ég fæ engar mælingar held ég ..
case -1 cpu -1
??????????????
help plz
Re: Kæling für das P4 Prescott 3.0
Sent: Fös 11. Feb 2005 19:49
af Daz
GimliGamli skrifaði:Já.. ég var að velta því fyrir mér hvort ég ætti að skila viftunni sem ég fékk í ATT.is þar sem að hún er ekki að kæla þennan örgjörva frekar en dauður hamstur myndi gera ...
þá er það spurningin... á ég að splæsa í betri kassa... ( er með álkassa fyrir ) sem er betra loftflæði eða fá mér Zalmann viftu sem á víst að kæla örran niður drasl ..
var að spá amk með viftu... 6000 kall ... fær maður góða .. þá meina ég Góða viftu fyrir það ?
Það er mjög ólíklegt að þú getir skilað viftunni á þeim forsendum að hún kæli ekki jafn vel og þú bjóst við, nema þú hafir fengið samþykkt þau skilyrði áður en þú keyptir viftuna.
En varðandi kaup á Zalmann viftum þá hef ég einhvernvegin alltaf skilið það sem svo að Zalmann viftur séu góðar í því að kæla sæmilega með mjög litlum hávaðan en henti ekki jafn vel sem ísskápakæling.
Sent: Fös 11. Feb 2005 19:51
af Gestir
gaurinn í ATT sagði að þetta væri feikinóg en ég held að þetta sé hrossaTað í honum
og Annað .. ef þú veist hvenrig ég get náð í rétt forrit tilað lesa þennan blessaða örgjörva hita og kassa hita .. sem og voltin
þá plz speak now. ..
Sent: Fös 11. Feb 2005 20:54
af kristjanm
Motherboard Monitor. Einfalt forrit til að sjá hitastigin í tölvunni.
Sent: Fös 11. Feb 2005 22:02
af Gestir
i just said..! að motherboard monitor supportar ekki Chaintech 9pJL3 móðurborð :S
þannig að það virkar ekki ... það kemur bara -1 case -1 cpu
Sent: Lau 12. Feb 2005 11:56
af Andri Fannar
Speedfan
Sent: Lau 12. Feb 2005 13:07
af kristjanm
Finndu forrit á Chaintech heimasíðunni.
Ein spurning: Ertu með einhverja kassaviftu? Ef þú ert ekki með neina kassaviftu getur það verið ástæðan fyrir því að það er hiti inni í tölvunni.
Þú getur líka prófað að taka heatsinkið af og setja það aftur á með góðu hitaleiðandi kremi eins og Arctic Silver.
Hvernig kæling er þetta annars sem þú keyptir?
Sent: Lau 12. Feb 2005 13:24
af Ice master
ARtic silver 3
Sent: Lau 12. Feb 2005 19:41
af Gestir
Þa'ð virðist ekki vera neitt á þessu helv.. míoðurborði sem segir til um hitann
ég er búinn að prufa 4 mism forrit en ALDREI virkar hita stillingin
hvaða helv....... Einsi ... vhað varstu að selja mér hérna
...hehe
afsakið stafsetningu...... had too many beers ..
Sent: Lau 12. Feb 2005 20:15
af DaRKSTaR
hérna.
sérðu ekki hitann í biosinum?..
annars verðurðu að redda þér bara viftustýringu með hitamæli.
algjört must að sjá hitann.
allavega ég hendi zalman 7000 kopar á örrann hjá mér í kvöld.
hendi zalman 7700 á eina vél í kvöld.. verður þokkalega gaman að koma því kvikindi fyrir
tek myndir af þessu þegar ég er búinn að massa þetta í
Sent: Lau 12. Feb 2005 22:27
af Ice master
sko bara segja þetta en hitaleidandi krem getur lækkað um einhverjar gódar 5 6 grádur svo það er ekki eikkað sem þú (verður) að hafa, en mæli með þvi (Artic silver 3) færð ekki betri ..
Sent: Lau 12. Feb 2005 23:49
af Snorrmund
Ice master skrifaði:sko bara segja þetta en hitaleidandi krem getur lækkað um einhverjar gódar 5 6 grádur svo það er ekki eikkað sem þú (verður) að hafa, en mæli með þvi (Artic silver 3) færð ekki betri ..
Ef ég skildi þetta rétt þá varstu að segja að maður þyrfti ekki hitaleiðandi krem.. þetta er bullshit.. Maður Á að nota hitaleiðandi krem eða svona púða eins og fylgja sumum HS það kannski virkar alveg að sleppa því en það er mun hættulegra þeas uppá að steikja örgjörvann..
Sent: Sun 13. Feb 2005 13:57
af Gestir
ég nenni ekkert að vera alltaf að resetta tölvunna og fara inn í BIOS til að gá að Hitanum.. halló.. það er fáránlegt ...
vill geta séð þetat bara á desktoppinu takk fyrir
Sent: Mán 14. Feb 2005 18:26
af Gestir
Málið er Dautt
ég fór áðan í start.is og verslaði þar 400w PowerSupply og Zalman Kopar Viftuna ( 7000 útg. )
Ef það kælir ekki nógu vel og er Silent þá er ég hættur að nota PC
Andsk.... var samt næstum ´búinn að missa mig og enda í nýjum turni með úber vatnskælingu og læti... ég mæli eindregið með því að þið kíkið í Start upp í bæjarlind og sjáið stóra svarta Vatnskælda Álkassann.... þetta fer ekkert framhjá neinum þar sem að þetta stendur við hliðina á 32" Samsung monsterinu ... GOOOODD mig langar í þetta helv.....
takk og beeeLess
Sent: Mán 14. Feb 2005 20:52
af Dingo
Dauður hamstur er mjög góð kæling by the way......
En ég myndi frekar fá mér XP-120 frá Thermalright. Það er sko örgjörvakæling.
Sent: Mán 14. Feb 2005 21:14
af kristjanm
Já þú getur sett hljóðláta 120mm viftu á XP-120.
Sent: Mán 14. Feb 2005 21:16
af Gestir
Dauður hamstur já..
En Zalmann 7700 kvikindið er samt ekkert svo auð toppað .. líka miðað við verð og annað.... hávaðinn er líak ..hmmm NONE
ég var að klára að installa öllu draslinu .. reyndar í gamla kassanum( ekki ál ) og það er bara þétt sound í þessu.. heyrist ekki mikið og þetta er by the way SweeeX PSU 400w kostaði heilar 3990 í Start.. og það heyrist minna í því en gamla psu inu...
ég get ekki kvartað yfir þessu .... þetta er svona um 20-24db mesta lagi