Síða 1 af 1

Er að leita mér að turnkassa fyrir max 15.000

Sent: Þri 08. Feb 2005 16:22
af MuGGz
ég er að selja núna chieftech kassann minn með vatnskælingunni þannig mig vantar annann turnkassa!

hámark er 15.000 og þá með psu!

Antec sonata er sá kassi sem mér lýst best á fyrir þessa upphæð.

einhver hérna sem getur sagt mér reynslu sína af þeim kössum ?

og er einhver með betri uppástungu að kassa ?

öll hjálp vel þegin :wink:

Sent: Þri 08. Feb 2005 16:40
af ponzer

Sent: Þri 08. Feb 2005 17:45
af CendenZ
Sonata er geeeeðveikur kassi

shit, hann er svo töff og stílhreinn :D

Sent: Þri 08. Feb 2005 17:46
af DaRKSTaR
thermaltake shark. kostar að vísu 17þús an psu en helv flottur
http://www.task.is/?webID=1&p=288&sp=264&item=1408

svo er það nýji thermaltake kassinn
http://www.thermaltake.com/xaserCase/ar ... ormenu.htm

finnst shark kassinn flottur, flottasta lookið hingað til á thermaltake kassa að mér finnst.

Sent: Þri 08. Feb 2005 17:51
af MuGGz
já ég geri mjög fastlega ráð fyrir því að ég skelli mér á sonata kassa

eins og ég sagði þá má hann kosta að hámarki 15 þús með psu!

ekki 17 þús án psu :P takk samt fyrir tillögurnar :wink:

Sent: Þri 08. Feb 2005 21:52
af Ice master
Rodney sagdi að shark kassin væri bilaður en þegar þeir gera nýjar sendingar þá lagast þetta vonandi :? .

Sent: Mið 09. Feb 2005 08:03
af Áki
Ég elska Thermeltake kassa...me want one!

Sent: Mið 09. Feb 2005 20:45
af sprayer
ég mæli með guardian, er með einn svoleiðis (bláann,http://nzxt.com/Guardian.php ), þeir eru flottir mikið pláss í þeim en að vísu þá er hann pre-mod :?

en svo er það líka nemesis sem er alveg brjálæðislega flottur og plássmikill inni í sér, :D http://nzxt.com/NemesisPreview.php þessir kassar eru vandaðir og eru að fá mjög góða dóma í öllu

þessir kassar eru ekkert nema......
SNILLD

Sent: Mið 09. Feb 2005 21:08
af SolidFeather
sprayer skrifaði:ég mæli með guardian, er með einn svoleiðis (bláann,http://nzxt.com/Guardian.php ), þeir eru flottir mikið pláss í þeim en að vísu þá er hann pre-mod :?

en svo er það líka nemesis sem er alveg brjálæðislega flottur og plássmikill inni í sér, :D http://nzxt.com/NemesisPreview.php þessir kassar eru vandaðir og eru að fá mjög góða dóma í öllu

þessir kassar eru ekkert nema......
SNILLD


Sjitt, þetta eru líklega ljótustu kassar sem ég hef séð.

Sent: Mið 09. Feb 2005 22:59
af ponzer
Ég er á sama máli og SolidFeather.. Ekki flottir kassar :?

Sent: Mið 09. Feb 2005 23:06
af Snorrmund
Sammála Ponzer og Solidfeather

Sent: Mið 09. Feb 2005 23:15
af Zkari
Sammála SolidFeather, Ponzer og Snorrmund :P

Sent: Mið 09. Feb 2005 23:54
af Pandemic
Ef þú ert mikið fyrir lön þá mæli ég með Super lanboy :D

Sent: Fim 10. Feb 2005 00:14
af MuGGz
ég væri alveg til í lanboy enn hann er of dýr þar sem það fylgir engin aflgjafi með honum :?

Sent: Fös 11. Feb 2005 19:23
af Ice master
:8)

Sent: Fös 11. Feb 2005 20:04
af Pandemic
Ice master skrifaði::8)


Kóði: Velja allt

4. gr.
Ekki senda inn óþarfa bréf
Ekki senda inn bréf nema þú hafir eitthvað að segja eða spyrja um. Ekki senda inn
2 bréf í röð á sama þráðinn, þú getur notað breyta takkan til að bæta við eldri bréf.


Hvað ætlaru eiginlega að brjóta reglurnar oft?

Sent: Fös 11. Feb 2005 20:27
af Ice master
'eg á eftir að lesa reglurnar :x nenni þvi ekki altof mikið að gera hjá mér.

Sent: Fös 11. Feb 2005 21:23
af Pandemic
hættu þá að svara og byrjaðu að lesa.

Sent: Fös 11. Feb 2005 21:41
af Ice master
Já já hættu þessu væli þá. :8)

Sent: Fös 11. Feb 2005 22:33
af urban
Ice master skrifaði:'eg á eftir að lesa reglurnar :x nenni þvi ekki altof mikið að gera hjá mér.
bara það að hann skrifaði þetta finnst mér að ætti að vera nóg til að banna þennan gutta

Sent: Fös 11. Feb 2005 23:41
af Ice master
hvada fórdómar eru i þér og ég er búna lesa þær núna..

Sent: Lau 12. Feb 2005 02:28
af Takai
Ég á eitt stykki antec sonata og hann er mjög pretty og góður en bara að vara þig við ... ekki leggja hann upp við neitt sem að gæti nuddast við hann og rispað.

Þegar að ég var að setja allt dótið upp í minn kassa (ok eða vinur minn og ég hjálpaði til) þá settum við þetta á eldhúsborðið hjá honum og það hefur verið eitthvað eitt korn á borðinu eða eitthvað og það kom smá rispa af því (kannski svona 4 cm).