Síða 1 af 2

má loka þessum þræði :)

Sent: Lau 05. Feb 2005 18:58
af MuGGz
:8)

Sent: Lau 05. Feb 2005 19:00
af MuGGz
og já, samkvæmt topic ætti þetta kannski að vera í skjákorts hlutanum enn þar sem þetta viðkemur vatnskælingunni meira þá ákvað ég að hafa þetta hérna :wink:

Sent: Lau 05. Feb 2005 21:27
af MuGGz
okey þetta er mjög skrítið...

ég ákvað að taka vatnskælinguna úr og setja orginal vifturnar á og svona til að prófa...

allar viftur fara í gang, chipset, cpu og vga enn ég virðist samt bara ekki fá signal út í skjáinn??

semsagt

vifta á skjákorti fer í gang, enn no signal í skjáinn, hann tekur 0 við sér!

help :cry:

Sent: Lau 05. Feb 2005 21:35
af Pandemic
Held að það sé alger þumalputta regla að láta Kitið runna í 24 klukkustundir áður en þú setur það í tölvuna til þess að vera viss um að engir lekar séu til staðar.
Annars fékk vinur minn þá útskýringu á því að ekkert kom á skjáinn hjá honum var að örrin hefði kramist undir Zalman bollanum þegar tölvan féll í gólfið.

Sent: Lau 05. Feb 2005 21:40
af kristjanm
Þetta hefur komið fyrir mig, að allar viftur fari í gang en ekkert signal á skjáinn.

Ég þurfti að kaupa nýtt móðurborð.

Sent: Lau 05. Feb 2005 23:16
af Pandemic
Spurning hvort að POST kort geti gefið þér einhverjar fleiri upplýsingar.

Sent: Lau 05. Feb 2005 23:22
af Ice master
gerdist einu sinni fyrir mig það var bara slökkt á henni og eftir 1 og hálfan dag þá virkaði alt aftur :) ég tók samt skjákortið og setti það i fastari i aftur

Sent: Lau 05. Feb 2005 23:46
af einarsig
heyrist svona blíbb stuttu eftir að þú ert búinn að kveikja á tölvunni ? ég lenti í svipuðu veseni um daginn.... ég þurfti að lyfta örrgjörva viftunni hjá mér til að geta sett minni í slott og við það hafði örrinn togast upp... svo kveikti ég á vélinni og ekkert skeði... allt í gang en vélin bootaði sér ekki... spurning hvort þú ættir að prófa að taka allt úr og plögga aftur í ?

Sent: Sun 06. Feb 2005 00:35
af MuGGz
jæja ég fór og prófaði skjákortið í annari vél, og það er í góðu lagi með það..

þannig ætli það sé ekki bara móðurborðið sem er vandamálið :cry:

Sent: Sun 06. Feb 2005 00:52
af einarsig
tjekkaðiru hvort cpu hafi kannski farið aðeins úr slottinum ? kannski verið að drífa þig að rífa blokkina af örgjörvanum þegar það fór að leka ?

Sent: Sun 06. Feb 2005 00:52
af Pandemic
Testar kannski líka að skipta um örgjörva og checka hvort hann sé nokkuð skemmdur. :wink:

Sent: Sun 06. Feb 2005 02:40
af TechHead
Eitt sem hefur verið að ske með waterchill CPU blockirnar sem ég passaði mig vel á.

Það er þannig að, af því að það er ekkert backplate undir örranum þá verðuru að fara gætilega þegar þú skrúfar HS´ið niður ofaná örgjörvann.

Það var tildæmis nóg hjá mér að skrúfa þumalskrúfurnar 3x hringi.

Því ef þú herðir of mikið þá bognar móðurborðið og þú getur skemmt socketið og/eða örrann

I hope that didn´t happen to you :shock:

Sent: Sun 06. Feb 2005 13:40
af hahallur
Mér finnst þú sjálfum þér um kennt ef þú testaðir ekki kerfið í 24 klst áður en þú settir það í, eins og á að gera :roll:

Sent: Sun 06. Feb 2005 13:58
af kristjanm
hahallur skrifaði:Mér finnst þú sjálfum þér um kennt ef þú testaðir ekki kerfið í 24 klst áður en þú settir það í, eins og á að gera :roll:


Hverjum öðrum ætti hann að kenna um þetta?

Sent: Sun 06. Feb 2005 14:06
af Dust
Ojj hvað þetta er einhvað súrt maður :?

Sent: Sun 06. Feb 2005 15:44
af MuGGz
ég að sjálfsögðu get ekki kennt neinum um enn sjálfum mér, bara fljótfærni og ekkert annað sem gerir það að verkum að móðurborðið mitt er ónýtt, og vonandi ekki örgjörvinn líka ...

ég verð bara að bíta í það súra epli að þurfa að kaupa nýtt móðurborð og krossleggja fingurnar um það að örgjörvinn sé í lagi :(

Sent: Sun 06. Feb 2005 16:49
af hahallur
Ég var að kaupa svona sett, ælta að reyna að klúðra þessu ekki :)

Sent: Sun 06. Feb 2005 19:18
af zaiLex
samhryggist

Sent: Mán 07. Feb 2005 01:31
af DaRKSTaR
svona að hafa ekki aðra svipaða vél til staðar til að prófa t.d örrann og svona.. útiloka hitt og þetta.

Sent: Mán 07. Feb 2005 09:45
af Bendill
Ég myndi nú þurrka móðurborðið almennilega áður en þú ferð að kaupa nýtt, þú þurrkar ekki móðurborðið með þrýstilofti, þú ýtir því bara frá. Þú þarft að ganga úr skugga um að allt sé gjörsamlega þurrt áður en haldið er aftur af stað.

Ég lenti í þessu líka með mitt sett, chipset kubburinn var ekki nógu vel hertur saman þannig að hann lak (ég varð þokkalega reiður, sótbölvaði og ragnaði svo mikið að það lá við að málningin flagnaði af veggjunum), ég reif allt í sundur, blés á það með hárþurrku (heitt loft) í rúmlega fimm tíma og lét það síðan standa á ofninum það sem eftir var af nóttinni.
Næsta dag herti ég kubbinn saman og grandskoðaði móðurborðið og skjákortið, prófaði að blása með þrýstilofti undan AGP raufinni, þéttum og kubbum og viti menn, það var alveg þurrt. Skellti kvikindinu saman og lofttæmdi, lét dæluna ganga í tæpa 22 tíma og allt í lagi. Síðan kveikti ég á tölvunni og hún þaut í gang eins og hún væri að dreifa pósti... :D

Þegar maður er með svona dýra hluti í höndunum þá þarf maður að vera pottþéttur á því að allt sé með felldu.

Sent: Mán 07. Feb 2005 10:26
af DaRKSTaR
er það rétt skilið hjá mér að þú sért að selja þetta?

rak nefið í auglýsingu á partalistanum og eitthvað finnst mér þessi lýsing á dotinu passa við það sem þú hefur.

mistök eru mistök en shit ef þú þarft að selja allt stöffið til að fjármagna nýtt borð.. það er allsekki nóu gott.

málið fyrir þig að setja þetta bara í bið þar til þú hefur efni á nýju borði?
prófa ruslið á meðann.. láta þetta bara malla í einhverja daga og vera 100% vissum að þetta sé í góðu áður en þú ferð af stað aftur.

Sent: Mán 07. Feb 2005 12:22
af MuGGz
ég var að auglýsa kassann með kælingunni já.. :roll:

Annars tók ég allt úr kassanum í gær nema vatnskælinguna og hún er búin að vera rúlla núna í hálfan sólahring án nokkura vandræða :8)

ég var að kaupa mér Abit AV8 borð og fæ það vonandi á morgunn, þá verð ég búin að gera allt klárt þannig ég set þetta í kassann..

tek myndir af öllu og set hérna þegar þetta er ready, finnst kassinn nokkuð nettur að mínu mati :P

þannig ég ætla ekki að selja dótið mitt strax :wink:

Sent: Mán 07. Feb 2005 17:23
af Dust
Já endilega sendu mynd af honum inn :D

Sent: Mán 07. Feb 2005 23:59
af Sveinn
Shiiit! haha þar fóru öll stóru plönin MuGGz ;] ehhehe jæja þetta er samt ekkert til að hlæja af, þetta er frekar súrt .. jeij ég fæ aflgjafann minn á morgun og þá er tölvan mín töff :] 6600GT kort og 560w Thermaltake aflgjafi meeen

Sent: Þri 08. Feb 2005 09:32
af MuGGz
? ertu að segja að öll plönin mín fóru í vaskinn útaf því ég skemmdi móðurborðið ? :roll:

nei veistu aldeilis ekki, fæ x800xt PE í dag, og abit av8 og ætla svo að kaupa mér Sonata kassa í vikunni.. :8)

er btw að selja ati radeon 9800pro og turninn minn með vatnskælingunni ef einhver hefur áhuga (er í söludálknum) :wink: