Síða 1 af 2
Vandamál með hitann á tölvunni
Sent: Mið 12. Jan 2005 19:23
af Pirate^
Núna er smá vandamál með tölvuna, það er að hún verður alltaf of heit og stundum á mjög stuttum tíma, fer semsagt uppi 70 °c og kemur svona sírenu hljóð og ég þori ekki að gera neitt annað en að slökkva á henni strax. Ég keypti mér 2 viftur fyrir rúmu ári síðan ein þeirra var noiseblocker og önnur þeirra er góð vifta sem ég veit ekki alveg hvað heitir
. Mér finnst nefnilega noiseblockerinn ekki vera að vinna nógu vel því ég finn ekkert loft koma frá henni bæði að innan og utan en hin vinnur alveg á fullu kemur alveg því líkt mikið loft út. Tekur því að fá sér aðra viftu í stað noiseblocker eða eru flestar viftur jafn góðar og hún ?
Sent: Mið 12. Jan 2005 20:53
af kristjanm
Þú verður að setja þetta skýrara fram ef þú ætlast til þess að einhver geti svarað þér.
Sent: Fim 13. Jan 2005 07:55
af gnarr
þetta er mjög skýrt hjá honum..
talaðu við kallana í task. þeir eru svoddan viftu sérfræðingar.
það gæti líka verið sniðugt fyrir þig að skoða 120mm eða 92mm viftr ef þú getur komið þeim fyrir.
ertu með viftur bæði framan og aftaná kassanum?
sættiru þig við hávaða eða viltu hafa tölvuna alveg hljóðlausa?
Sent: Fim 13. Jan 2005 16:43
af CendenZ
hávaði
Sent: Fim 13. Jan 2005 17:30
af kristjanm
Það hlýtur að vera eitthvað meira að en að kassavifturnar séu lélegar.
Heatsinkið hlýtur að vera laust eða án hitaleiðandi krems eða eitthvað álíka.
Sent: Fim 13. Jan 2005 18:21
af Pirate^
gnarr skrifaði:þetta er mjög skýrt hjá honum..
talaðu við kallana í task. þeir eru svoddan viftu sérfræðingar.
það gæti líka verið sniðugt fyrir þig að skoða 120mm eða 92mm viftr ef þú getur komið þeim fyrir.
ertu með viftur bæði framan og aftaná kassanum?
sættiru þig við hávaða eða viltu hafa tölvuna alveg hljóðlausa?
Það heyrist mjög hátt í henni núna þannig að ég held að það skiptir litlu máli held ég, bara ef það sé ekki einhver geðveikur hávaði, ég er bara með viftur aftan á.
Sent: Fim 13. Jan 2005 18:36
af Pirate^
ég var að lesa þennan þráð :
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=6933 þar sínir hann joihei screen shot af speedfan hjá sér þar er hann temp 1,2 og 3 einnig með hd0 temp r some á meðan ég er bara með temp1 og 2 :
og þeir eru að tala um að þetta sé ofhitnun á meðan ég er með 56 °c í temp 1 og 61 °c í temp 2 gætu þið sagt mér afhverju ég sé ekki með temp 3 og hd0 temp
Sent: Fim 13. Jan 2005 19:32
af kristjanm
Speedfan er ekki að finna fleiri hitanema í tölvunni.
Hvað er langt síðan að þetta byrjaði að gerast?
Sent: Fim 13. Jan 2005 21:36
af Stutturdreki
Pirate^ skrifaði:.. gætu þið sagt mér afhverju ég sé ekki með temp 3 og hd0 temp
Gætir þurft að enable S.M.A.R.T í BIOS..
Sent: Fös 14. Jan 2005 16:38
af Pirate^
kristjanm skrifaði:Speedfan er ekki að finna fleiri hitanema í tölvunni.
Hvað er langt síðan að þetta byrjaði að gerast?
það er mjög langt síðan en þetta er fyrst núna fara alveg uppi 70°c eftir að ég keypti þessar viftur, en hefur samt alltaf verið mjög heit !
Sent: Fös 14. Jan 2005 16:44
af Pirate^
gnarr skrifaði: ...það gæti líka verið sniðugt fyrir þig að skoða 120mm eða 92mm viftr ef þú getur komið þeim fyrir.
eru þá allar hliðar á viftuni 120 mm
ef svo er þá kem ég henni ekki fyrir er held ég bara með pláss fyrir sirka 80mm
afsakið fá visku mína
Sent: Fös 14. Jan 2005 17:19
af gnarr
hún er 120mm á báðar langhliðarnar og svo 25mm á þykkt.
Sent: Fös 14. Jan 2005 21:36
af Pirate^
getiði samt sagt mér hvaða vifta sé best sem er 80mm !
Sent: Lau 15. Jan 2005 01:26
af Stutturdreki
"Best" er afstætt hugtak..
Þarft að finna viftur með hátt CFM (blástur) og lágt Db (hávaði).. gallinn er að það er ekki oft að marka upplýsingarnar frá framleiðendunum..
Sent: Lau 15. Jan 2005 01:29
af CendenZ
pantaðu þér bara server viftur frá ebay
örugglega 40-50 dB en þær blása sko
Sent: Lau 15. Jan 2005 02:45
af Pirate^
Já ég er búinn að vera að spá í þessu og talað um þetta við vini mína einn af þeim sagði að tornato viftan væri mjög góð en bara mikill hávaði í henni er samt ekki alveg að finna hvar hún er seld
, er samt að spá í að fá mér þessa viftu hérna
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=499
hvernig lýst ykkur á það ?
Sent: Lau 15. Jan 2005 11:46
af ParaNoiD
ættir að fá hana í task
mundu bara að bolta tölvuna við gólfið
Sent: Lau 15. Jan 2005 13:00
af gumol
Sent: Lau 15. Jan 2005 13:09
af Ice master
tornado viftur eru ekki vifur sem maður getur haft hjá sér þegar mar er að gera eitthvað i tölvuna eða eitthvað;;ég á 1 myndband um tornado vifturnar og gaurin sagdi að madur getur misst heyrnina með þvi að hafa þessar viftur hjá sér allan dag tornado vifturnar eru meira ætladir vinnu vélar sagdi hann
Sent: Lau 15. Jan 2005 16:16
af Pirate^
já ég er ekkert að nenna að fá mér viftu sem er geðveikur hávaði í..en er ekki fínt að fá sér svona zalman viftu eða er coolermaster betri ?
Sent: Lau 15. Jan 2005 16:25
af CendenZ
Sent: Sun 16. Jan 2005 14:17
af gnarr
coolermaster er það versta sem þú færð hvað varðar hávaða. en þær kæla vel.
Sent: Þri 18. Jan 2005 13:07
af Pirate^
en vitiði hvað noiseblocker er með í Airflow(CFM) og Noise ?
Sent: Þri 18. Jan 2005 16:49
af kristjanm
Pirate^ skrifaði:en vitiði hvað noiseblocker er með í Airflow(CFM) og Noise ?
Ég er með Noiseblocker S4 og hún snýst á 3375rpm og er nokkuð hljóðlát miðað við það.
Sent: Þri 18. Jan 2005 19:48
af Pirate^
en zalman vifta er með Speed(RPM): 3000 þannig að noiseblocker gæti verið að kæla meira ?