Síða 1 af 3

Ofhitnun eða hvað ?

Sent: Þri 04. Jan 2005 00:22
af joihei
Jæja kæru vaktarar.

Málið er að tölvan drepst (slekkur á sér eða restartar sér) bara eftir ákveðinn tíma, bíður í nokkrar sek og kveikir svo aftur á sér.:(
T.d. þegar ég kveikti á tölvunni fór svo strax í Lord of the rings battle for middle earth (Tölvuleik) og eftir u.þ.b 12 min þá drapst tölvan og kveikti svo aftur á sér.
Þetta hefur skeð nokkuð oft núna eftir jól og skeður alltaf oftar og oftar.
Ég fékk harðan disk í jólagjöf og mér dettur helst í hug að eitthvað sé að ofhitna.
Ég er núna með 2stk 200GB WD harða diska báðir SATA, 7200rpm og með 8mb buffer.:8)

Hvað er að :?: :?:

Sent: Þri 04. Jan 2005 00:34
af MezzUp
Ég tel mjög miklar líkur á því að aflgjafinn(PSU) þinn ráði ekki við það að skaffa rafmagn í alla þessa hluti. Prófaðu að taka nýja HDinn úr sambandi og athugaðu hvort að þetta lagist ekki. Ef að hún hættir að drepa á sér við það þarftu annaðhvort að fá þér nýjan aflgjafa eða aftengja einhverja hluti

Sent: Þri 04. Jan 2005 11:21
af joihei
Ég prufaði að aftengja nýja harða diskinnn og fara aftur í Lotr Bfme(Tölvuleikinn) og ég var búinn að spila hann í rúmann klukkutíma og eitt korter þegar ég hætti og fór að skrifa þetta.

Ég er með dragon kassa sem er með upprunalega aflgjafanum sem er 360W sem ég héllt að væri alveg nó.
:oops:

Sent: Þri 04. Jan 2005 12:18
af joihei
:evil: Tölvan drap aftur á sér þegar hún var búin að vera í gangi í 2tíma og eitt korter.:evil:

sammt var annar harði diskurinn ekki tengdur :cry:

þá er þetta líklega ekki aflgjafinn er það :?: :?:

Sent: Þri 04. Jan 2005 13:31
af hahallur
Hvað stendur að tölvan sé heit ?

Sent: Þri 04. Jan 2005 13:35
af skipio
Aflgjafinn í Dragon kassanum á alveg að þola þetta og talsvert meira.

En það gæti auðvitað verið að hann sé bilaður. (Held samt ekki.)

Byrjaði þetta semsagt um jólin eða fór þetta bara að aukast þá?

Sent: Þri 04. Jan 2005 13:54
af joihei
Ég held að þetta hafi byrjað núna eftir jól (En tölvan hefur nú restartað sér áður).

Og hvaða forrit á ég að nota til þess að sjá hitann :?: :?:

Sent: Þri 04. Jan 2005 13:55
af skipio
Motherboard monitor, mbm.

Settir þú tölvuna saman sjálfur eða keyptir þú hana samansetta?

Hvernig móðurborð ertu með?

Sent: Þri 04. Jan 2005 13:58
af joihei
hitinn

Sent: Þri 04. Jan 2005 14:02
af joihei
Hvar fæ ég þetta forrit ?

móðurborðið mitt mun vera MSI 865PE NEO2 (eins og stendur í undirskriftinni).

og einhver vinur pabba míns setti saman tölvuna og hún hefur nú virkað fínt hingað til en ég setti nýja diskinn í sjálfur.

Sent: Þri 04. Jan 2005 14:11
af skipio
http://mbm.livewiredev.com/

Sýnist þetta vera hitavandamál hjá þér. 50° á örranum í idle er frekar mikið.

Settir þú kælisökkulinn sjálfur á örgjörvann eða ertu að nota Intel-sökkulinn sem fylgdi með?

Sent: Þri 04. Jan 2005 14:25
af joihei
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... cts_id=818[url]

ég er með svona zalman kælingu sem ég setti sjálfur í.[/url]

Sent: Þri 04. Jan 2005 14:37
af skipio
Ef þú ert að keyra örgjörvaviftuna á 5V eða álíka prófaðu þá að auka spennuna upp í 12V og sjáðu hvort það tölvan virkar betur. Ef það virkar, þá veistu allavega hvar vandinn liggur.

Þú hefur sett hæfilegt magn af kælikremi á milli kælisökkulsins og örgjörvans?

Sent: Þri 04. Jan 2005 15:02
af Stutturdreki
Harðidiskurinn sem sýndur er í speedfan er 46°C.. sem er frekar mikið held ég.

Er ekki bara alltof heitt í kassanum hjá þér?

Sent: Þri 04. Jan 2005 15:09
af joihei
Og hvernig breiti ég V á örraviftunni :?:

Ég hef aldrei lennt í vandræðum með hitann á örranum.

Ég held að ég hafi notað túpuna sem fylgdi með og dreift jafnt yfir örran.

Akkuru ætti hitinn í kassanum að verða meiri. vegna þess að núna er ég bara með annan harða diskinn tengdan (sá sem ég var með fyrir jól). :?:

Sent: Þri 04. Jan 2005 15:14
af joihei
Þetta kemur í mbm

Sent: Þri 04. Jan 2005 15:25
af Stutturdreki
Zalman kælingin á að vera með tveim rafmagns pluggum.. fyrir silent og normal. Normal snýst hraðar, meiri hávaði en kælir betur.

Og ef MBM er að sýna réttan hita fyrir Case Temp þá er alltof mikil hiti inn í tölvunni þinni. Case Temp hjá mér td. um 27-29°C og hitin á harðadisknum mínum nokkuð stöðugur í 32°C.

Miðað við að CPU og skjákortið mitt verða allt að 30°C heitari heldur en hitinn í kassanum í load, þá gæti verið að hitinn hjá þér sé að fara í og yfir 70°C .. sem er orðið svoldið vel heitt.

Btw.. fan 1 : 0 RPM ?

Sent: Þri 04. Jan 2005 15:34
af joihei
En tölvan á ekki að drepa á sér þegar ég er ekki að gera neitt annað en vera að skoða netið. Það ætti allavega ekki að nota svo mikið örran að hann hitni mikið.

Sent: Þri 04. Jan 2005 18:17
af kristjanm
Eitthvað í tölvunni er sennilega að hitna svo mikið að það slekkur á sér til að eyðileggjast ekki.

Til þess að prófa það geturðu tekið hliðina af kassanum. Það ætti að kæla hana soldið niður, en ef það virkar ekki og hún heldur áfram að slökkva á sér er vandamálið kannski eitthvað annað.

Athugaðu líka hvort að skjákortsviftan þín sé í gangi.

Sent: Þri 04. Jan 2005 18:31
af noizer
Ég er með eins örgjörva (2.8 ghz Prescott) og hann er 45-52°C í idle sem er frekar heitt og svo er Case Temp nokkuð stöðugt í 29°C (idle)
Ég er með einhverja Arctic Cooling CPU viftu

Sent: Þri 04. Jan 2005 18:44
af joihei
Þá er þetta líklega ekki í sambandi við örran.

Ég er búinn að taka hliðina úr kassanum og er búinn að vera með kveikt á henni í þó nokkurn tíma núna.

Hitinn í kassanum núna er í kringum 37 gráður.

Hvað er þetta þá sem er að ofhitna :?:

Og hvað þarf ég að gera til þess að þetta lagist :?:

Sent: Þri 04. Jan 2005 18:50
af CraZy
minnið kanski að faila :? ?

Sent: Þri 04. Jan 2005 19:08
af kristjanm
Athugaðu hvort að allar viftur séu í gangi.

Vifturnar á aflgjafanum, skjákortinu og norðurbrúnni.

Sent: Þri 04. Jan 2005 19:45
af joihei
Allaf viftur í gangi nema viftan á móðurborðinu vegna þess að ég þurfti að taka hana af til að koma örgjörva viftunni fyrir.

Og ef að minnið er að faila slekkur tölvan þá á sér og kveikir svo aftur á sér :?:

Sent: Þri 04. Jan 2005 19:53
af skipio
joihei skrifaði:Allaf viftur í gangi nema viftan á móðurborðinu vegna þess að ég þurfti að taka hana af til að koma örgjörva viftunni fyrir.

Ekki gott, ekki gott!