Síða 1 af 1

OCZ ModStream

Sent: Mán 03. Jan 2005 21:28
af zaiLex
Hæ. Er eitthvað varið í þessa aflgjafa?

"Ertu leið(ur) á öllum kaplaflækjunum frá aflgjafanum þínum? Með OCZ ModStream aflgjafanum þá tengir þú eingöngu þau drif sem þú þarft að nota við aflgjafann og sleppur því við alla dauðu endana sem vanalega hefðu flækst fyrir í tölvukassanum"

Stendur á task.is og finnst mér alveg rosalega sniðugt því ég fæ alveg höfuðverk því ég veit ekki hvað snýr upp né niður í kassanum mínum, allt í flækju, og mér sýnist þetta vera fullkomin lausn. Einhver ástæða til að ég ætti EKKI að kaupa mér svona? (ég vil alls ekki sjá eftir neinu :x) Er þetta ekki nákvæmlega eins aflgjafi og ocz powerstream bara modable? jæja ok yfir til ykkar :D

Sent: Mán 03. Jan 2005 21:42
af kristjanm
Ég hef ekki kynnt mér þessa aflgjafa en fyrst að þetta er frá OCZ er þetta örugglega mjög gott.

Lestu samt umsögn um aflgjafann áður en þú kaupir hann.

Sent: Mán 03. Jan 2005 22:18
af MezzUp
Ég á aldrei í vandræðum með lausu endana. Hafið þið prófað að troða þeim bakvið járnplötuna sem að móðurborðið er fest á?

Sent: Mán 03. Jan 2005 23:50
af hahallur
MezzUp skrifaði:Ég á aldrei í vandræðum með lausu endana. Hafið þið prófað að troða þeim bakvið járnplötuna sem að móðurborðið er fest á?


Is it just me or does that not sound good :D

Sent: Mán 03. Jan 2005 23:52
af Stutturdreki
hahallur skrifaði:
MezzUp skrifaði:Ég á aldrei í vandræðum með lausu endana. Hafið þið prófað að troða þeim bakvið járnplötuna sem að móðurborðið er fest á?


Is it just me or does that not sound good :D


Just you..

Ég kom öllum mínum lausum endum upp fyrir PSU-ið.. of lítið pláss á bakvið þessa plötu

Sent: Mán 03. Jan 2005 23:59
af hahallur
Það er stór kassi utan um mitt PSU og fullt pláss inní honum, ætli ég komi því ekki snirtilega þar fyrir.

Sent: Mið 05. Jan 2005 18:07
af sveik
Ég las review um þessa típu aflgjafa og í því var hann sagður nokkuð góður.. man ekki hvar ég las þetta :?

Sent: Fös 07. Jan 2005 17:15
af DoRi-
ég notaði draghefti og festi við einvher göt þar sem cd drifið er..virkar fínt