Síða 1 af 2
Besta vatnskælingin
Sent: Fim 09. Des 2004 11:38
af hahallur
Ég er að spá í að skella mér á WaterChill vatnskælingu sem fæst í task.
http://www.task.is/?webID=1&p=153&sp=156&item=1339
Er þetta ekki annars besta vatnskælingin.
Þessi er með stórum radiator sem tekur 4 viftur, en 2 fylgja með.
Er ekki líka hægt að gera eitthvað meira til að kæla vatnið, með einhverju heimatilbúnu þá ?
Sent: Fim 09. Des 2004 12:12
af gumol
Það fer eftir því hverju þú ert að leita að. Þetta er ekki besta vatnskælingin ef þú villt silent tölvu, þá myndi ég frekar fá mér zalman settið frá Start.is.
Ég veit ekkert hvort þetta er gott fyrir overclock en það eru amk. nokkrir hérna á spjallinu með svona sem ættu að geta svarað því.
Sent: Fim 09. Des 2004 12:30
af hahallur
Nei ég mindi alldrei mér zalman í start, hún er í 63°C á 3.0 ghz @ 3.8 ghz
Svo segja allir að þessi sé allveg hljóðlát þó að mér sé nokk sama þó það heyrist smá í henni.
Ég held sammt að þetta sé besta kælingin miðað við verð.
Sent: Fös 10. Des 2004 19:30
af hahallur
ehh veit enginn neytt um þetta
Sent: Fös 10. Des 2004 19:44
af Birkir
Ég held að Vapochill sé besta vatnskælingin þó ég sé ekki með það alveg á hreinu.
Sent: Fös 10. Des 2004 20:02
af hallihg
Það er eitt mjög cheap en gott trick til að verða sér útum vatnskælingu, þó hentar þetta ekki mjög stórum turnum, svo notið þetta frekar á server vélarnar eða fyrir ykkar aðal tölvu ef þið kjósið. Fyrst er að redda sér vatnsþéttum poka. Svo er að bora lítið gat aftan á turnin, tengja þar slöngvu inní hann, taka pokann, fylla hann vel af klökum, helst svona klakavéls klökum, láta hann inní turninn og teypa opið á honum við enda slöngvunnar, helst með einangrunarteypi svo það haldist. Pokinn þarf að vera það stór að hann nái að þétta vel að móðurborðinu, örranum og við harðadiskana svo kælingin virki nú örugglega. Svo er bara að tengja slöngvuna sem að liggur úr pokanum og útúr turninum við krana eða vatnslögn, til að fylla klakapokann í turninum af vatni, og loka svo fyrir turnslöngvuna. Fínt er að nota einhvers konar lok og teypa vel fyrir. Þá ertu kominn með klakapoka fullan af vatni innan um vélbúnaðinn í turninum, en fyrstu dagana eftir að þú tókst kælinguna í gagnið gætiru þurft að skipta nokkrum sinnum um vatn og klaka því það tekur tíma að ná upp þeim hita sem að viðhelst svo að klakarnir bráðni ekki. Þá hefur kælingin náð fullu afli og vélbúnaðurinn þinn ætti ekki að ofhitna á næstunni!
Sent: Fös 10. Des 2004 20:18
af einarsig
aldrei í lífinu myndi ég nota svona skítamix á vélinni minni
Sent: Fös 10. Des 2004 20:19
af hahallur
Birkir skrifaði:Ég held að Vapochill sé besta vatnskælingin þó ég sé ekki með það alveg á hreinu.
Ég hef að vapochill sé ekki vatnskæling, heldur kælipressa.
Sent: Fös 10. Des 2004 21:13
af gumol
hallihg skrifaði:Það er eitt mjög cheap en gott trick til að verða sér útum vatnskælingu, þó hentar þetta ekki mjög stórum turnum, svo notið þetta frekar á server vélarnar eða fyrir ykkar aðal tölvu ef þið kjósið. Fyrst er að redda sér vatnsþéttum poka. Svo er að bora lítið gat aftan á turnin, tengja þar slöngvu inní hann, taka pokann, fylla hann vel af klökum, helst svona klakavéls klökum, láta hann inní turninn og teypa opið á honum við enda slöngvunnar, helst með einangrunarteypi svo það haldist. Pokinn þarf að vera það stór að hann nái að þétta vel að móðurborðinu, örranum og við harðadiskana svo kælingin virki nú örugglega. Svo er bara að tengja slöngvuna sem að liggur úr pokanum og útúr turninum við krana eða vatnslögn, til að fylla klakapokann í turninum af vatni, og loka svo fyrir turnslöngvuna. Fínt er að nota einhvers konar lok og teypa vel fyrir. Þá ertu kominn með klakapoka fullan af vatni innan um vélbúnaðinn í turninum, en fyrstu dagana eftir að þú tókst kælinguna í gagnið gætiru þurft að skipta nokkrum sinnum um vatn og klaka því það tekur tíma að ná upp þeim hita sem að viðhelst svo að klakarnir bráðni ekki. Þá hefur kælingin náð fullu afli og vélbúnaðurinn þinn ætti ekki að ofhitna á næstunni!
right
Sent: Lau 11. Des 2004 01:38
af MezzUp
lol, heavy gettó fílingur
Sent: Lau 11. Des 2004 02:13
af ParaNoiD
Sent: Lau 11. Des 2004 16:49
af hahallur
ég huggsa að ég skelli mér bara á sett 1/2" sett fyrir örann með stórum radiator og stórri pummpu.
Svo kaupi ég bara VGA block sér.
Sent: Lau 11. Des 2004 21:04
af Fletch
Asetek Waterchill er með betri tilbúnu vatnskælingum sem þú getur keypt, mæli með þeim
Vapochill er ekki vatnskæling heldur phase change kæling, sama og er í ískápum
Fletch
ég er heavy glaður med mitt
Sent: Lau 25. Des 2004 01:24
af SIKO
ég á svona nákvæmleiga eins water chill kælingu og hun hefur ekki hátt kælir vel og heldur hitastöðu innan minni marka.
min fer í 42°c í load..... amd64 3200. 2 ghz@ 2.5ghz mæli eindreigið með þessari
Sent: Lau 25. Des 2004 14:23
af hahallur
K cool
Er radiatorinn efst ?
En annars er mín pæling að fá sér WaterChill en það er bara svo fáránlega dýrt miðað við hvað er í pakkanum.
Þú getur keypt mikið stærri týpur af öllu þessu í pakkanum og það kostar jafn mikið.
jamz
Sent: Lau 25. Des 2004 15:51
af SIKO
ja hann er efst
Sent: Lau 25. Des 2004 16:22
af CendenZ
Fletch skrifaði:Asetek Waterchill er með betri tilbúnu vatnskælingum sem þú getur keypt, mæli með þeim
Vapochill er ekki vatnskæling heldur phase change kæling, sama og er í ískápum
Fletch
eh... Vatnskæling = búnaður sem kælir vatnið.
he, orðaleikur!
veit samt hvað þú meinar, hihihi
Sent: Fim 30. Des 2004 17:41
af W.Dafoe
hvað erum við að tala um að vél með vatnskælingu sé að gefa frá sér mörg dB ?
Sent: Fös 31. Des 2004 21:22
af hahallur
Er Vapochill ekki kælipressa, frekar dýr miðað við stærð.
Annars var ég að skoða svona WaterChill kit í task og 35000 kr fyrir þetta er rán.
Þetta eru nokkur stikki, alvöru kælitæki sem td pabbi er að nota kosta mun minna og eru margfallt stærri.
Ætli ég neyðist sammt ekki að kaupa þetta.
Veit einhver um góða treystandi netverzlun sem væri hægt að kaupa þetta hjá.
Sent: Lau 01. Jan 2005 02:02
af Fletch
hahallur skrifaði:Vapochill er bara kælipressa, frekar dýr miðað við stærð.
Það er nú ekki rétt, þú ert að fá t.d. kassan með minni kitunum, CPU kit, controller card sem sér um að ræsa ekki tölvuna fyrr en örgjörvinn er við ákveðið hitastig og slekkur á henni ef hann hitnar of mikið etc..
ég skoðaði að smíða sjálfur áður en ég keypti LS'in og það hefði verið eitthvað ódýrara en ekki mikið, cpu kitið hefði verið eitthvað mix og ekkert control spjald
Fletch
Sent: Lau 01. Jan 2005 02:41
af hahallur
Hefuru séð huge kælipressur sem traðka á þessari og eru mikið ódýrari.
Auðvitað er þetta mjög gott kerfi, en allt voða overprized.
Bara mitt álit, btw vann við að smíða velar sem að kæla fisk
Sent: Lau 01. Jan 2005 02:51
af Cascade
Hvaða pressur ertu að tala um?
Þessar pressur eru dýrar á íslandi sem eru notaðar í Vapochill.
BTW. Þú að smíða frystikerfi, ekki taka þessu illa,
En mannstu eftir hugmyndinni þinni um að láta pressu kæla loft og blása því inn í pc kassann þinn? Og smíða kassa utan um pressuna til að minnka hávaða.
Hljómar ekki "pro"
Sent: Lau 01. Jan 2005 03:11
af hahallur
Cascade skrifaði:Hvaða pressur ertu að tala um?
Þessar pressur eru dýrar á íslandi sem eru notaðar í Vapochill.
BTW. Þú að smíða frystikerfi, ekki taka þessu illa,
En mannstu eftir hugmyndinni þinni um að láta pressu kæla loft og blása því inn í pc kassann þinn? Og smíða kassa utan um pressuna til að minnka hávaða.
Hljómar ekki "pro"
hehe ég smíða hluti í velarnar
auðvitað teikna ég þær ekki, en ég fylgist vel með.
Sent: Lau 01. Jan 2005 22:26
af Birkir
Er þetta nokkuð eins og þegar þú "gerðir" myndbandið fyrir Í Svörtum Fötum?
Sent: Lau 01. Jan 2005 22:36
af Fletch
hahallur skrifaði:Bara mitt álit, btw vann við að smíða velar sem að kæla fisk
Haltu þig bara við að kæla fiska
Fletch