Síða 1 af 1
Mod Framundan
Sent: Þri 07. Des 2004 18:15
af iceolpack
Ég á Hörmulegan þá tala ég um "Hörmulegan" kassa og er að fara að gera hann flottari þusst svona Skull Kassa og ætla að gera litla hauskúpu framan á og saga gat í augun og munnin og þar fyrir innan verður blá Neon vifta, en hvort á hún að blása inn eða út??
og ætla kannski að gera glugga hlið en ég var að spá ef marrh er með svona sög hvernig byrjar maður þússt hvernig kemur maður henni inn í hliðina?
Sent: Þri 07. Des 2004 18:52
af MezzUp
Sæll og velkominn á spjall.vaktin.is
Endilega vandaðu skriftina þína, hérna gilda hærri staðlar heldur en á öðrum spjallborðum einsog hugi.is eða *hrollur* bt.is
„þússt“ og „marrh“ eru sérstaklega illa liðin orð.
Sent: Þri 07. Des 2004 19:52
af iceolpack
K, en hvort er betra inn eða út?
Sent: Þri 07. Des 2004 19:54
af Snorrmund
framan á = inn.. helst neðaná
Aftaná= út.. helst ofarlega
hliðin = Inn
toppur = útt..
Kalt loft leitar neðar.. heitt ofar.. þessvegna er best að taka loft inn neðarlega og blása út ofarlega