Síða 1 af 1
Thermaltake Lanfire(Allveg að detta á hliðina)
Sent: Lau 04. Des 2004 20:13
af Pepsi
Sælir, ég er hérna með nýjann thermaltake Lanfire sem góður vinur minn á. Og við smá athugun þá sé ég að hann er allveg skakkur. Þar sem ég er nú smiður þá tók ég í hallamálið og athugaði þetta nú aðeins. Að framan þá hallar kassinn um 9mm en bara 2 að aftan. Það er algerlega óþolandi að horfa á þetta þar sem þetta er glænýtt. Hvað finnst ykkur ættum við vinirnir að skila þessum kassa, er það ekki ágætis rök fyrir því að kassinn sé skakkur og snúinn?????
Sent: Lau 04. Des 2004 22:51
af Drizzt
þaftu að vera smiður til þess að nota hallamál?
Sent: Lau 04. Des 2004 22:52
af Birkir
Drizzt skrifaði:þaftu að vera smiður til þess að nota hallamál?
Vani ?
Sent: Lau 04. Des 2004 23:27
af MezzUp
Jújú, ef að þetta er sjáanlegur galli þá bara beint í búðina með hann.
ps. þið eruð pottþéttir á því að borðið halli ekki neitt?
Sent: Lau 04. Des 2004 23:52
af OverClocker
MezzUp skrifaði:Jújú, ef að þetta er sjáanlegur galli þá bara beint í búðina með hann.
ps. þið eruð pottþéttir á því að borðið halli ekki neitt?
Ég held nú að smiður viti hvað hallar og hvað ekki..
Sent: Lau 04. Des 2004 23:54
af Pepsi
þaftu að vera smiður til þess að nota hallamál?
Já er það ekki????
En annars er þetta vel sjáanlegur galli, búinn að mæla þetta út og suður.
Sent: Sun 05. Des 2004 20:11
af BlitZ3r
ef borðið hallar þá er hallin jafn báðu meigin