Síða 1 af 1
Er ég öruggur að ná oc með nýrri viftu?
Sent: Mið 03. Nóv 2004 01:50
af Takai
Er nýlega búinn að stækka tölvuna mína og tímdi að stækka minnið, móðurborðið og hdd (plús nýjan kassa
).
Málið er bara að mér finnst gamli amd xp 1600+ örrinn minn (sem að ég tími ekki að stækka í augnablikinu) ekki vera að halda almennilega í við tölvuna. Ok hún vinnur miklu betur en myndi líklega vinna ennþá betur ef að örrinn fengi smá boost.
Ákvað að prófa hvað ég næði útúr honum með retail viftu. Fékk niðurstöður sem að hljómuðu upp á einhver +100mhz við default stable þó að ég hækkaði volt og svona á örranum. Endaði með að allt fraus og ég þurfti að fara að reseta cmos.
En ég er ekki 100% búinn að gefast upp. Þess vegna er ég að pæla, eru góðar líkur á því að ég nái að hamra aðeins á örranum ef að ég kaupi mér góða kælingu, t.d. zalman blómið?
Er ekki að spyrja eins og total nýliði "Mun ný vifta leysa öll mín vandamál og hugsanlega leiða mig inn í nýja öld þróunar" heldur bara hvort að ég eigi gott chance á því að ná kannski að koma fsb úr 133 og aðeins nær 200? (hefði ekkert á móti að minnka gapið á milli örrans og minnins sem að er að keyra á ddr400).
Sent: Mið 03. Nóv 2004 07:21
af gnarr
ertu með agp/pci lock? ef ekki, þá getur gleymt þessu.
Sent: Mið 03. Nóv 2004 08:13
af elv
gnarr skrifaði:ertu með agp/pci lock? ef ekki, þá getur gleymt þessu.
Ekki vera svona mikill kelling gnarr
Það er ekki eins og enginn hafi klukkað þangað til AGP/PCI lock kom
Screen af mínu á 190 FSB
Sent: Mið 03. Nóv 2004 08:15
af elv
elv skrifaði:gnarr skrifaði:ertu með agp/pci lock? ef ekki, þá getur gleymt þessu.
Ekki vera svona mikill kelling gnarr Það er ekki eins og enginn hafi klukkað þangað til AGP/PCI lock kom
Screen af mínu á 190 FSB
Takai viftan mun ekkert gera fyriri þig ef hitin er ekki svo hár, hvað er jann núna hjá þér,idle og load.
Er þetta nýlegur Duron með Barton kjarna
Sent: Mið 03. Nóv 2004 08:38
af gnarr
er þetta 190 yfir 100, 190 yfir 133 eða 190 yfir 166 ?
Sent: Mið 03. Nóv 2004 14:03
af elv
gnarr skrifaði:er þetta 190 yfir 100, 190 yfir 133 eða 190 yfir 166 ?
190 yfir 166
Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:19
af Takai
CPU-Z segir að þetta sé Palomino. Örinn er Amd Athlon XP 1600+ og keyrir á 10,5*133,1 (1.4ghz). Gamall örri en það er einmitt ástæðan að ég er að reyna að yfirklukka hann.
Held að hitinn fari frá 35 idle og uppí um 50 með prime95 í gangi. Annars er ég með Abit AN7 borð og já það er með agp/pci lock
En með hitann ... get víst minnir mig bara séð hitann með forritinu sem að fylgir með (ABIT EQ) og ég las einhvernsstaðar að það gæfi eitthvað lægri tölu en ég er samt ekki öruggur með það ... gæti verið rugl.
Sent: Mið 03. Nóv 2004 15:49
af gnarr
190 yfir 166 er sama og ekkert. einhver 15% :p ættir pottþétt að geta náð svona 30-40% minnst útúr þesusm örgjörfa með pci-lock
ég er að ná tildæmis 150% úr mínum á retail kælingu.
Sent: Mið 03. Nóv 2004 16:53
af llMasterlBll
Ekki það að ég sé að svara spurningu þinni neit...en kannski eg geti gefið þér... skipt á fríu...1600xp gegn 1700xp..munar engu fyrir mig persónulega..ATH.. kannski..kemur í ljós eftir helgi!!
Sent: Mið 03. Nóv 2004 17:27
af elv
gnarr skrifaði:190 yfir 166 er sama og ekkert. einhver 15% :p ættir pottþétt að geta náð svona 30-40% minnst útúr þesusm örgjörfa með pci-lock
ég er að ná tildæmis 150% úr mínum á retail kælingu.
1700xp ?
Sent: Mið 03. Nóv 2004 17:31
af llMasterlBll
já...veistu...það er gallinn....er ekkert alveg 100% á þessu með xp...þessvegna sagði ég kannski!
Sent: Mið 03. Nóv 2004 19:55
af elv
gnarr skrifaði:190 yfir 166 er sama og ekkert. einhver 15% :p ættir pottþétt að geta náð svona 30-40% minnst útúr þesusm örgjörfa með pci-lock
ég er að ná tildæmis 150% úr mínum á retail kælingu.
hmmm er mikið að velta hvaða CPU þú ert með gnarr.....150% hljómar soldið ýkt......veit um gamla Celeron undir Ghz sem náðu um 80-90%....en 150%
1700xp t-bred b sem er með betri CPU sem hafa verið til klukkunar nær ekki 100%
Sent: Mið 03. Nóv 2004 22:20
af gnarr
ég er að keyra hann á 150%. semsagt 50% yfir
ég er með P4 Northwood 1.6@2.4
Sent: Mið 03. Nóv 2004 22:58
af elv
gnarr skrifaði:ég er að keyra hann á 150%. semsagt 50% yfir
ég er með P4 Northwood 1.6@2.4
hehe tvennt ólikt, 150%oc eða 50%oc
Sent: Mið 03. Nóv 2004 23:49
af Takai
Master B ... veit ekki alveg til hvers við ættum að skipta á örgjörvum ... virðist fyrir mér bara vera vesen að opna kassan ... losa ****** heatsinkið af sem að var vesen þegar að ég gerði það um daginn hittast til að skiptast á litu kubbunum og setja örgjörva sem að munar kannski 100mhz (er það ekki annars
) á í staðinn. Thnx but no thnx. (ef að mig vantar 100mhz svona sárlega þá get ég alltaf oc í það ... náði því stable en nennti bara ekki að standa í því fyrst að það var ekki það mikið og ég var búinn að reseta cmos vegna bios crash).
Anyway þá er þetta spjall einhvernveginn komið út í prósentuspjall í staðin fyrir að svara hvort að ég eigi nokkra oc von :/
Sent: Fim 04. Nóv 2004 00:01
af llMasterlBll
ok...þú ræður...sé svosem ekkert vesen í því..en ekki er ég að fara að tapa á því að gera þetta ekki...veist semt að ef þú notar betro örgjörfa...og oc hann líka... bara ennþá meiri plús!!:)
Sent: Fim 04. Nóv 2004 07:28
af gnarr
takai: ef þú ert ekki með agp/pci lock, þá er það mjög líklega það sem er ða stoppa þig, en ekki hitinn á örgjörfanum.
Sent: Fim 04. Nóv 2004 17:44
af Takai
gnarr .. ef að þú myndir lesa póstinn almennilega þá hefðiru séð það fyrir löngu að ég var búinn að segja að ég væri með AGP/PCI lock.
Sent: Fim 04. Nóv 2004 17:46
af gnarr
sjitt hvað ég þurfit að rína í þetta til að finna þetta
stendur líka alveg afast í setningunni í miðri málsgrein
ertu búinn að gefa örgjörfanum smá auka rafmagn?
Sent: Fim 04. Nóv 2004 23:59
af Takai
Amm .. var búinn að prófa að auki strauminn pínu ... did nothing :/