Síða 1 af 2
heimasmíðaður flakkari, spurning um viftu...
Sent: Sun 10. Okt 2004 16:11
af FrankC
Sælir... Ég átti WD ext. disk sem dó í vikunni og ég ætla að nota stýringuna úr boxinu og smíða nýjan flakkara úr plexigleri eða einhverju. Ég ætla að hafa þennan
http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=733 á disknum sjálfum og eina viftu. Ég ætla að hafa viftuna efst á kassanum, beint fyrir ofan harða diskinn, og ég var að pæla hvort væri meira vit í að blása köldu lofti inn eða heitu lofti út? Eða væri kannski betra að hafa viftuna allt annars staðar?
Annað, haldiði að það sé ekki í lagi að splæsa viftutengi inn í molex tengið fyrir diskinn? Haldiði að diskurinn fái samt ekki alveg nógan straum?
Sent: Sun 10. Okt 2004 16:51
af Pandemic
ÉG myndi setja viftuna ofan á og blása út og göt á kassanum
Sent: Sun 10. Okt 2004 18:42
af Zkari
Sendu myndir þegar þú ert búinn að þessu
Sent: Sun 10. Okt 2004 20:35
af FrankC
ég geri það, er búinn að vera að mynda þetta núna, er ekki búinn að gera neitt nema lóða e-ð drasl fyrir viftuna. En getiði sagt mér hvar er hægt að láta sníða fyrir sig plexigler?
Ef e-r rafmagnskall les þetta væri gaman að fá svar við einu. Ég var að pæla í að setja on/off rofa á þetta, sem er ekki á stýringunni fyrir, væri sjens að klippa í sundur 5 og 12 volta vírana á molex tenginu og og setja DPDT rofa þar á milli? Eða er það kannski alveg út í hött?
p.s. það verða engin helvítis ljós í þessu...
Sent: Sun 10. Okt 2004 20:53
af Zkari
Getur látið sníða fyrir þig plexígler í Akron
Sent: Sun 10. Okt 2004 21:51
af FrankC
Hefur e-r látið sníða e-ð fyrir sig hjá akron? Ætli þetta sé dýrt?
Sent: Mán 11. Okt 2004 07:21
af mazo
öruglega ekki dýrt....
hringdu bara og athugaðu....
http://www.akron.is/ stendur þarna öruglega...
Sent: Mán 11. Okt 2004 10:47
af FrankC
já þeir ætla að gera þetta fyrir 3þús heyrist mér. Spurning hvort þetta borgi sig ennþá? Það skiptir samt ekki máli, það er kúlið sem skiptir máli...
Plexíglerkassi 3000
Zalman heatpipe 3500
Góð 80mm vifta 1500
viftugrill 500
40gb HDD 6900
að hafa smíðað sinn eigin flakkara... ómetanlegt
mastercard blablabla
það er samt alveg spurning hvort ég þurfi BÆÐI heatpipe-ið og viftuna... kannski myndi annað duga alveg nógu vel...
Sent: Mán 11. Okt 2004 11:02
af gnarr
sleppa þessu heatpipe rugli!. ég held að það væri heldur ekki slæm hugmydn að hafa kanski frekar 2 40mm viftur. eina ða aftan og eina að framan. og láta aðra blása inn og hina út. harðir diskar hitna nefnilega eiginlega ekkert að ofan og neðan, aðalega á hliðunum.
Sent: Mán 11. Okt 2004 11:20
af FrankC
gnarr skrifaði:sleppa þessu heatpipe rugli!. ég held að það væri heldur ekki slæm hugmydn að hafa kanski frekar 2 40mm viftur. eina ða aftan og eina að framan. og láta aðra blása inn og hina út. harðir diskar hitna nefnilega eiginlega ekkert að ofan og neðan, aðalega á hliðunum.
Stýringin er samt þannig að það væri ekki pláss fyrir viftu að aftan, nema ég myndi hafa þetta e-ð fáránlega breitt og hafa hana alveg til hliðar. En af hverju ertu á móti heatpæpinu? Það leiðir hitann frá hliðunum og upp, og síðan viftu til að blása köldu lofti á pípurnar eða heitu lofti frá þeim og út? Tvær viftur eru alveg off.
Sent: Mán 11. Okt 2004 13:59
af FrankC
nei ok þetta er planað, ein 40mm að framan blæs inn og ein 40mm ofan á aftast blæs út. Nú er bara spurning hvort ég fái nógan straum frá stýringunni fyrir hdd, tvær viftur og activity leds
Sent: Mán 11. Okt 2004 15:05
af gnarr
40mm á 5000rpm er að nota undir 0.9w. svo að þessar viftur nota ekki nema í mestalagi um 1w ef þú ert með þær á 2500rpm. led ljós not líka sama og ekkert rafmagn. svona lítil ljós eru að taka kanski 0.1w. á meðan að harður diskur tekur um 15-20w
Sent: Mán 11. Okt 2004 15:22
af FrankC
þá hlýtur þetta að ganga, best að drífa sig niður í miðbæjarradíó og kaupa meira tin...
Sent: Mán 11. Okt 2004 15:24
af gnarr
spurðu þá líka í leiðinni um nákvæma wattatölu á viftunum. bara svona til öryggis.
Sent: Mán 11. Okt 2004 15:55
af FrankC
ætla reyndar að kaupa vifturnar hjá task, athuga hvort þeir viti það, en hvernig sé ég hvað ég get fengið mörg wött út á molextengið? Ég veit mjög lítið um rafmagnsdrasl, en ég kann þó á lóðbolta
Sent: Mán 11. Okt 2004 16:03
af FrankC
ekki vissu taskarar meira en að þær eru 0.09 amper, getur e-r sagt mér hvað það þýðir fyrir litla verkefnið mitt?
Sent: Mán 11. Okt 2004 16:22
af gnarr
1.08wött á 12voltum. hvað eru vifturnar gefnar upp fyrir mikinn hraða?
Sent: Mán 11. Okt 2004 17:06
af FrankC
spennubreytirinn fyrir stýrispjaldið gefur út 1,5 amper, sem mér reiknast til að séu þá 18w á 12 voltum, er það ekki rétt? Þá hefur harði diskurinn tæp 16w eftir að búið er að bæta 2 viftum við.
Sent: Mán 11. Okt 2004 17:08
af FrankC
gæti ég þá ekki líka tengt viftunar við 5v á molexinu í staðinn fyrir 12? Þá tekur hver vifta bara 0,45w
Sent: Mán 11. Okt 2004 18:30
af FrankC
kom í ljós að vifturnar eru 0.07a þannig að þær taka ekki nema 1.68w tvær saman, diskurinn keyrir fínt með vifturnar tvær í gangi, en ég veit samt ekki hvort það er í lagi að hafa þetta svona, anyone?
Sent: Mán 11. Okt 2004 21:23
af gnarr
jú, það er í fínasta lagi
hvað eru þær að snúast hratt umþaðbil? ég mæli með að hafa þær í umþaðbil 2500rpm. það ætti að vera meira en nóg loftflæði og mjög hljóðlátt.
Sent: Mán 11. Okt 2004 21:51
af FrankC
gnarr skrifaði:hvað eru þær að snúast hratt umþaðbil?
haha, hvernig á ég að vita það? Þær snúast bara helvíti hratt en eru ágætlega hljóðlátar samt þannig að ég þarf ekkert að tjúna þær niður, verð samt að öllum líkindum með stillitakka framan á kassanum fyrir þær. Núna þarf ég bara að fara og tala við akron, hef samt ekki hugmynd um hvernig ég á að lýsa þessu fyrir þeim! Hefur e-r dílað e-ð við þá? Eru þeir almennlegir með svona dæmi? Kannski ætti ég að fara með málmplötuna sem þetta liggur allt á til þeirra því götin fyrir rafmagn firewire og usb eru á henni auk gatanna sem hún er skrifuð niður í boxið í gegnum.
Hérna eru tvær myndir:
Sent: Mán 11. Okt 2004 23:09
af Pandemic
Svona viftur eru reyndar hrikalega háværar og endast stutt
Sent: Mán 11. Okt 2004 23:41
af FrankC
mér finnst einmitt alls ekki heyrast hátt í þeim
Sent: Mán 11. Okt 2004 23:49
af dabb
Búin að velja box?