Síða 1 af 1

Besta viftan fyrir örgjörvakælingu ?

Sent: Sun 13. Okt 2013 08:59
af Hnykill
Keypti mér Thermaltake Water 3.0 Performer um daginn ..http://tolvutek.is/vara/thermaltake-wat ... -amd-intel .. og vifturnar sem fylgja eru vægast sagt vanskapaðar.. bara hávaði og titringur .

Voru þessar hérna ekki að fá góða dóma hjá ykkur ?

http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=8410

Ég er ekki með neina viftustýringu og kem til með að hafa þær báðar í botni bara. en eru þetta ekki tiltulega hljóðlátar viftur þó þær séu á fullu ?

Re: Besta viftan fyrir örgjörvakælingu ?

Sent: Sun 13. Okt 2013 11:34
af Tiger

Re: Besta viftan fyrir örgjörvakælingu ?

Sent: Sun 13. Okt 2013 11:47
af oskar9
ef þú tekur SP120, passaðu þá að taka Quiet útgáfuna, ég tók performance týpun og ég þurfti að setja viðnám á hana til að minnka lætin, en blés hinsvegar rosalega þannig, nú er hún mjög hljóðlát en kemur loftinu vel í gegnum vatnskassann, þarf ekkert að fikta í viftustýringunni nema í BF-4 þá hækka ég smá snúninginn, því þá er CPU load í 80-90%

Re: Besta viftan fyrir örgjörvakælingu ?

Sent: Sun 13. Okt 2013 11:48
af Hnykill
Tiger skrifaði:http://kisildalur.is/?p=2&id=2005

/Thread

Takk fyrir þetta.. þær fá víst rosalega góða dóma, og sérstaklega í push/pull fyrir rad .

:happy

Re: Besta viftan fyrir örgjörvakælingu ?

Sent: Sun 13. Okt 2013 11:50
af Hnykill
oskar9 skrifaði:ef þú tekur SP120, passaðu þá að taka Quiet útgáfuna, ég tók performance týpun og ég þurfti að setja viðnám á hana til að minnka lætin, en blés hinsvegar rosalega þannig, nú er hún mjög hljóðlát en kemur loftinu vel í gegnum vatnskassann, þarf ekkert að fikta í viftustýringunni nema í BF-4 þá hækka ég smá snúninginn, því þá er CPU load í 80-90%


Var einmitt að spá í SP120 Quiet því ég er ekki með viftustýringu. en eftir að hafa lesið nokkur review um Scythe GentleTyphoon hef ég ákveðið að láta reyna á þær frekar en SP120.