Síða 1 af 1
Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 15:25
af arons4
Er það raunhæft að vera með CPU og GPU á einni loopu með 360mm vatnskassa og 6 viftum?
i7 2600k
GTX 770
Hugmyndin var að tengja allar vifturnar á vatnskassanum við svona unit:
http://www.frozencpu.com/products/20988 ... PL-ST.htmlSvo ætlaði ég að nota speedfan eða annað álíka til þess að hægja á viftunum eftir hitastigi (öllum í einu). Þannig myndi tölvan verða hér um bil hljóðlaus þegar hún væri idle(þaes ef að 6 viftur á 360mm rad héldi öllu nógu köldu idle).
Re: CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 15:31
af vikingbay
Ef þú ætlar að yfirklukka að einhverju viti þá myndi ég nú vera með annan..
Re: CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 15:42
af arons4
Þetta yrði ekkert yfirklukkað ef ég myndi gera þetta.
Re: CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 15:54
af siggi83
Alveg nóg að hafa eitt loop.
Re: CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 16:51
af worghal
svosem nóg að hafa svona litla loopu, en hitinn gæti ekkert skánað frá venjulegri loftkælingu.
kanski bæta við einum 240mm.
Re: CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 16:58
af arons4
worghal skrifaði:svosem nóg að hafa svona litla loopu, en hitinn gæti ekkert skánað frá venjulegri loftkælingu.
kanski bæta við einum 240mm.
Það er hávaðinn sem ég hef áhyggjur af en ekki hitinn. Er atm með loftkældann örrann og er alveg ánægður með hitatölurnar og hávaðann en þegar skjákortið fer að væla verður það óþolandi.
Re: Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 17:59
af Fletch
Fer eftir kæligetu radiators og staðsetningu líka. Hvaða radiator/kassa ertu með og hvar ætlaru að staðsetja radiatorinn?
Ég er t.d. með þennan
http://www.frozencpu.com/products/8523/ ... &mv_pc=228og er að kæla i7-3930k sem hitnar töluvert meira en 2600k og GTX680 með 3 viftum á mjög lágum snúning, bæðið yfirklukkað. Radiatorin höndlar það léttlilega og hitnar lítið sem ekkert yfir umhverfishita.
Hef líka keyrt tölvuna með enga viftur í gangi á radiatornum, loftflæðið í kassanum (HAF 932) var plenty til að halda hitanum niðri (auðvita heitara en með viftum en keyrði stable)
Re: Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 18:47
af arons4
Fletch skrifaði:Fer eftir kæligetu radiators og staðsetningu líka. Hvaða radiator/kassa ertu með og hvar ætlaru að staðsetja radiatorinn?
Ég er t.d. með þennan
http://www.frozencpu.com/products/8523/ ... &mv_pc=228og er að kæla i7-3930k sem hitnar töluvert meira en 2600k og GTX680 með 3 viftum á mjög lágum snúning, bæðið yfirklukkað. Radiatorin höndlar það léttlilega og hitnar lítið sem ekkert yfir umhverfishita.
Hef líka keyrt tölvuna með enga viftur í gangi á radiatornum, loftflæðið í kassanum (HAF 932) var plenty til að halda hitanum niðri (auðvita heitara en með viftum en keyrði stable)
Held ég sé með alveg eins rad, mögulega þynnri en þetta er xspc.
Re: Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Mið 04. Sep 2013 19:31
af Templar
Alveg nóg og meira segja fyrir OC - er með 4x 120mm hjá mér, CPU er í kringum 40c og sömuleiðis GPU þegar allt í botni, hellingur inni.
Re: Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Sun 08. Sep 2013 03:26
af jojoharalds
Ef þú sétur GPU og cpu á eina loopu þá verðuru að hugsa um það að hítinn sem skjákortinn framleiðir er allavega í kringum 60 í leikjum,og sú híti fér beint í örgjafan (ef þetta er í sömu loopu)
svo ég myndi mæla með,2 radatorum,einn kemur áður vökvan fér ínn í cpu til að kæla vökvan (eftir dælan er búin að koma einhvern híta á þetta)og sá næsti eftir cpu til að gera vökvan reddy fyrir gpu kæling.
svo ég myndi segja þetta væri vél solid með 2 240 radiatorum.
Re: Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Sun 08. Sep 2013 10:49
af Fletch
Svo lengi sem dælin sé ekki þeim mun lélegri skiptir þetta ekki svo miklu máli. Vatnið fer einfaldlega það hratt í gegnum kerfið að allt kerfið hitnar, ekki eins og vatn fari 30°C inná blokk og komi 60°C heitt út.
Einfalt að mæla hitann á radiator til að fylgjast með þessu, mæli muninn á inn- og úttaki, ætti ekki að vera nema 1-3°C munur. Annars er eitthvað óeðlilegt í gangi.
Re: Vatnskældur CPU og GPU á einni loopu
Sent: Lau 14. Sep 2013 18:11
af Lunesta
það sem fletch sagði og ef þú ert að spá í hávað þá er bara mikilvægast að skoða hvaða viftur þú velur þér. Einn 240mm rad geetur dugað til að hafa bæði cpu og gpu ef þú yfirklukkar ekki en með 360 gætur alveg yfirklukkað e-ð. Eins og að vera með 240 fyrir cpu (sem er nóg til að yfirklukka alveg ágætlega) og svo 120mm fyrir skjákortið. Þá ertu ekkert að fara í neitt ofur yfirklukkanir en nóg til að þjóna avarage gamer/micro enthusiast. En ef þú ert að spá í hljóðið og ekki yfirklukkun myndi ég meira að segja hugleiða það að velja þér viftur sem er auðveldlega hægt að breyta hraðanum á, eða bara fá þér fan controller eins og þú varst að spá. Þá geturu bara runnað prime95 eða álíka og stillt vifturnar svolítið eftir því. Þ.e. finna kæling/hljóð hlutfall
.