Síða 1 af 1
Hvað er rusl og hvað frábært?
Sent: Þri 14. Sep 2004 20:10
af Bjaggi
Ég setti saman ágæta tölvu fyrir stuttu, keypti hana í öreindum á computer.is (3.0E P4, 1024 Mb RAM (2x512), GeForce Ti4800 128 Mb, SoundBlaster Platinum Pro + meira) og ætla mér að gera alvöru úr hardcore leikjaspilun -forritun.
En svo skringilega vill til að við það eitt að keyra einfaldan emulator (zelda classic) í öfáar mínútur hitar örgjörvan upp í 46° celsíus (jæks). Þegar hann hoppar yfir 35° sé ég strax muninn og það tekur dolluna að minnsta kosti 5 sekúndur að sýna start listann.
Ég hef ákveðið að fjárfesta í vatnskælingu en guð minn almáttugur hvað það er ómögulegt að finna slíkt hér á landi, eða jafnvel erlendis! Og hvað er þess virði að borga 20 - 30 þús. fyrir það?
Upplýsingar velkomnar...
Sent: Þri 14. Sep 2004 20:18
af ErectuZ
Hví svona dýrann og high-end örgjörva og minni, en svona gamalt skjákort?
Annars er þessi hiti sæmilegur. Það er örugglega ekki hitavandamál sem er að hjá þér....
Sent: Þri 14. Sep 2004 20:19
af Mysingur
46° er nú alls ekki mikið, þú þarft ekkert að fara að hafa áhyggjur fyrr en í svona 70°
og ef það tekur svona langan tíma að sýna start listann þá myndi ég prófa að vírusskanna, defragga eða jafnvel formata
Sent: Þri 14. Sep 2004 21:25
af Predator
Það er ekkert of mikill hiti á örranum þínum þú ert með prescott svo það er ekkert skrítið við þetta.
Sent: Þri 14. Sep 2004 22:15
af BlitZ3r
Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér en það eina sem ég hef sjéð að menn séu að græða á prescott er að hann klukkast aðeins meira en northwood annars hitnar hann miklu meira og er eitthvað hægvirkari
Sent: Þri 14. Sep 2004 23:04
af axyne
BlitZ3r skrifaði:Leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér en það eina sem ég hef sjéð að menn séu að græða á prescott er að hann klukkast aðeins meira en northwood annars hitnar hann miklu meira og er eitthvað hægvirkari
prescott er að gera betri hluti en northwood í t.d Doom3. getur verið voðalega mismunandi hvort er betri í hverju tilviki.
Ok
Sent: Fim 16. Sep 2004 15:04
af Bjaggi
Ég skal viðurkenna að ég veit ekki sérlega mikið um hardware, bara rétt nógu mikið til að þurfa yfirleitt ekki að setja tölvur í viðgerð, en ég veit að GeForce 4 er ekki ELDgamalt skjákort og vinur minn leikjaspilari (10 commercial leikir á viku) segir að ATI Radeon sé RUSL og 256 Mb er ennþá rándýrt.
Þessi tölva kostaði 234.000 kr. allt í allt og það er nógu andskoti mikið finnst mér. Ég valdi bara CPU sem mér líkaði við, valdi móðurborð sem passaði við það, ákvað að taka 1 Gíg af RAMi og leitaði að sæmilegu skjákorti sem myndi ekki kosta hönd og fót en höndlaði samt DOOM 3 (til dæmis).
Ég nota RAID til að hörðu diskarnir hægi ekki eins mikið á tölvunni en ég er að sverja fyrir það, ég sé mjög skýran mun á afköstum tölvunnar á mismunandi hitastigum, og ég hef lesið ófáar umfjallanir sem eru allar sammála um að því minni hiti, því betra á allan hátt (hraði OG ending). Flestir segja að örgjörvi myndi brillera á -150° c. Eruð þið að reyna að segja mér að hiti auki ekki rafeindaviðnám örgjörvans?
Sent: Fim 16. Sep 2004 15:32
af SolidFeather
Er ég sá eini sem finnst þetta frekar of dýrt og að vinur hans sé vitleysingur?
Sent: Fim 16. Sep 2004 16:00
af Daz
Það að þú sjáir mismun á því hvernig tölva "performar" á mismunandi hita er líklega af því að þegar hún er heit er hún að keyra eitthvað en á meðan hún er köld er hún ekki að keyra neitt. Minni hiti er betri já, uppá endingu og stöðugleika, en þú finnur engan mun á stöðugleika nema tölvan þín sé að keyra í kringum 60-80 °C og endingin er kannski 1 ár í viðbót fyrir hverjar 10°C sem þú lækkar hitann (hef engar fastar staðreyndir fyrir þessum tölum, en þætti þetta ekki óeðlilegt). Og þá erum við að tala um 1 á í viðbót við þau 10 sem við má búast, s.s. lengur en þú munt eiga þessa tölvu.
Og já vinur þinn er kjáni, ATI Radeon er alveg sambærilegt við GeForce á svipuðu verði, og afköst skjákorta snúast ekki eingöngu um stærra minni. Mörg önnur 128 mb kort sem eru betri en það sem þú ert með, þar sem þitt kort er ekki af "næst nýjustu" DX9 kynslóðinni. Ef kortið þitt kostaði ca 20 þúsund þá má fá fyrir sama pening t.d. Radeon 9800 pro 128 mb á 19 þúsund og geforce 5900 xt 128mb á 21 þúsund. Þau eru bæði MIKLU betri í Doom 3. En svona tal hjálpar lítið þar sem þú ert búinn að kaupa þetta kort sem þú ert með.
En aftur að hitavandamálinu þínu, 46°C er alls ekki mikill hiti og ætti ekki að láta tölvuna þína hegða sér óeðlilega, líklega ertu með einhverskonar vírus eða spyware í gangi í bakgrunninum sem eru að hægja á tölvunni. Tölvan mín er núna í 53°C (reyndar AMD) og allt er bara mjög eðlilegt.
Sent: Fim 16. Sep 2004 16:01
af Stebbi_Johannsson
ekki einn um það.
Takk
Sent: Fös 17. Sep 2004 13:23
af Bjaggi
Þakka ykkur kærlega fyrir, kunningi minn hafði rétt fyrir sér: ef þú ert ekki viss, spyrðu vaktina. Ég get semsagt sparað mér mörg þúsund króna vesen og vatnshættu inni í tölvunni.
Fyrst ég er nú að þessu, hef ég spurningu:
Er slæmt að setja tvö stýrikerfi inn á eina tölvu(XP og 2000 á mismunandi partitions á sama disk (RAID tveir sem einn))? Ég hef heyrt fáránlega marga mismunandi hluti um þetta.
Sent: Fös 17. Sep 2004 13:35
af gnarr
það er minnsta mál í heimi. ég hef hinnsvegar alltaf haft xp og 2000 bara á sama partitioni. þá ertu með sömu programfiles möppu. þá þarftu bara að installa forritinu einusinni í hvoru stýrikefi og það tekur bara sama pláss og eins og þú hefðir installað því einusinni.
Sent: Fös 17. Sep 2004 16:04
af axyne
gnarr skrifaði:það er minnsta mál í heimi. ég hef hinnsvegar alltaf haft xp og 2000 bara á sama partitioni. þá ertu með sömu programfiles möppu. þá þarftu bara að installa forritinu einusinni í hvoru stýrikefi og það tekur bara sama pláss og eins og þú hefðir installað því einusinni.
hvað um registry skrár og shortcut og svona aukadæmi. fer það inná bæði win2k og winxp ?
Right
Sent: Sun 19. Sep 2004 19:19
af Bjaggi
Nú er ég kominn í smá vanda. Ég veit ekki alveg hvar mörkin eru í overclocking, en örgjörvinn minn er hannaður þannig að í fyrsta lagi verð ég að velja á milli normal, fast, turbo, ultra-turbo og svo er dynamic overclocking allt frá disabled upp í commander.
Ef ég lækka allt niður í rusl þá er tölvan í 3.0 Ghz og hoppar upp í 54° c við það eitt að fara í Icewind Dale og ef allt er í maxinu (3.4+ Ghz) þá hefur hún farið upp í 65 við það að starta sér (og svo dólar sér við ca. 57 í Icewind Dale). Er þetta vandamál eða gæti ég samviskusamlega haft hana í gangi 24/7 ef ég vildi (í Maxinu)?
P.S. allt OC gert í BIOS.
Sent: Sun 19. Sep 2004 21:38
af gnarr
axyne skrifaði:hvað um registry skrár og shortcut og svona aukadæmi. fer það inná bæði win2k og winxp ?
gnarr skrifaði:það er minnsta mál í heimi. ég hef hinnsvegar alltaf haft xp og 2000 bara á sama partitioni. þá ertu með sömu programfiles möppu. þá þarftu bara að installa forritinu einusinni í hvoru stýrikefi og það tekur bara sama pláss og eins og þú hefðir installað því einusinni.
Sent: Sun 19. Sep 2004 22:24
af axyne
gnarr skrifaði:axyne skrifaði:hvað um registry skrár og shortcut og svona aukadæmi. fer það inná bæði win2k og winxp ?
gnarr skrifaði:það er minnsta mál í heimi. ég hef hinnsvegar alltaf haft xp og 2000 bara á sama partitioni. þá ertu með sömu programfiles möppu. þá þarftu bara að installa forritinu einusinni í hvoru stýrikefi og það tekur bara sama pláss og eins og þú hefðir installað því einusinni.
þú meinar
Re: Right
Sent: Mið 22. Sep 2004 10:07
af Bendill
Bjaggi skrifaði:Nú er ég kominn í smá vanda. Ég veit ekki alveg hvar mörkin eru í overclocking, en örgjörvinn minn er hannaður þannig að í fyrsta lagi verð ég að velja á milli normal, fast, turbo, ultra-turbo og svo er dynamic overclocking allt frá disabled upp í commander.
Ef ég lækka allt niður í rusl þá er tölvan í 3.0 Ghz og hoppar upp í 54° c við það eitt að fara í Icewind Dale og ef allt er í maxinu (3.4+ Ghz) þá hefur hún farið upp í 65 við það að starta sér (og svo dólar sér við ca. 57 í Icewind Dale). Er þetta vandamál eða gæti ég samviskusamlega haft hana í gangi 24/7 ef ég vildi (í Maxinu)?
P.S. allt OC gert í BIOS.
Ef hitinn er ekki að fara mikið 57°C þá ættirðu að geta haft tölvuna svoleiðis. Prófaðu að keyra forrit eins og Prime95 og hafa í gangi í nokkra tíma og fylgjast með hitanum. Ef hann fer mikið yfir 60°C þá myndi ég telja að það borgaði sig ekki að halda henni á þessum hraða. Svo mikill hiti styttir líftíma vélbúnaðar, ekki endilega bara örgjörvans heldur einnig þeirra hluta sem eru næst honum, t.d. þéttar og minni...
Sent: Mið 22. Sep 2004 13:31
af goldfinger
Þetta er Bjaggi sem hefur farið á kostum á bt spjallinu