http://start.is/product_info.php?cPath= ... cts_id=734
- Hefur einhver reynslu af þessari skjákortsviftu?
- Heyrist eitthvað í henni?
- Kælir hún vel?
- Er hún svo þung að hún þarf undirstöðu?
Breytti: Biðst forláts á öllum þessum póstum sem ég er að gera þráðstjórar
Zalman skjákortsvifta
Re: Zalman skjákortsvifta
Sveinn skrifaði:http://start.is/product_info.php?cPath=76_46&products_id=734
- Hefur einhver reynslu af þessari skjákortsviftu?
- Heyrist eitthvað í henni?
- Kælir hún vel?
- Er hún svo þung að hún þarf undirstöðu?
Breytti: Biðst forláts á öllum þessum póstum sem ég er að gera þráðstjórar
- Ekki ég, en einhverjir hérna
- Nei, engir hreyfanlegir partar = ekkert hljóð
- Nei
- Nei
En sumir hérna hafa fengið sér svona til þess að lækka hljóðið, en sett um leið 2 kassaviftur til að auka loftflæðið.............. (jamm, skil ekki heldur )
Ég held líka að þetta taki yfir eitt PCI slot
Mátt endilega spyrja ef að þú setur póstana vel upp, og það er ekki búið að spyrja oft áður
-
- Staða: Ótengdur
Ég Setti Heatpipe cooler og Zalman viftuna á Softmoddað x800 pro kort hjá mér og hitinn lækkaði um sirka 8°C í load og er algjörlega hljóðlaus í þokkabót, þannig að ég hef mjög góða reynslu af þessu setti
ég á hinsegar eftir að mounta 120mm viftu við endann á kortinu þannig að hún blási inn undir kæliplöturnar en Zalman viftan frá kæliplötunum, það á að gefa manni einhverja auka gráður í kælingu
Muna bara að fara MJÖG varlega þegar þú setur settið á kortið! það er pínu þjált að koma því á en er alveg þess virði þegar maður er búinn.
Getur líka beðið gaurana í task um að gera það fyrir þig
ég á hinsegar eftir að mounta 120mm viftu við endann á kortinu þannig að hún blási inn undir kæliplöturnar en Zalman viftan frá kæliplötunum, það á að gefa manni einhverja auka gráður í kælingu
Muna bara að fara MJÖG varlega þegar þú setur settið á kortið! það er pínu þjált að koma því á en er alveg þess virði þegar maður er búinn.
Getur líka beðið gaurana í task um að gera það fyrir þig
-
- Of mikill frítími
- Póstar: 1702
- Skráði sig: Þri 27. Apr 2004 14:03
- Reputation: 38
- Staða: Ótengdur
Re: Zalman skjákortsvifta
Sveinn skrifaði:- Hefur einhver reynslu af þessari skjákortsviftu?
- Heyrist eitthvað í henni?
- Kælir hún vel?
- Er hún svo þung að hún þarf undirstöðu?
Rakst á svona þegar ég var í Danmörk í sumar og skellti mér á það, (enda helmingi ódýrara heldur en hérna heima) og búinn að nota þetta í svona mánuð
Heyrist náttúrulega ekkert í þessu einu saman því það er ekkert sem hreyfist.
Ég var með tvær 80mm bakviftur (útblástur) og eina 80 viftu að framan(innblástur) en það var ekki að virka nógu vel. Áður en ég setti þetta á var hitinn á ati 9800 se SoftModdaða kortinu mínu (mælt á bakhlið) svona 42°C idle til 60° load. Þegar ég setti kæliplöturnar á setti ég hita-probe undir þannig að það snertir GPUið og þá mælist hitinn 54°C idle og upp í 65°C load, hætti reyndar því sem ég var að gera þegar hitinn var orðinn svona mikill þannig að hugsanlega verður þetta en þá heitara. Fór núna um helgina og keypti mér 92mm SilenX viftu og svo í Byko og keypti mér skrúfur og bolta og setti viftuna ofan á kæliplöturnar þannig að hún blæs niður á milli. Viftan var reyndar svona í stærra lagi, rétt kom henni fyrir á ská þannig að hún blási niður á milli og bæði yfir og undir en hún er næstum hljóðlaus (amk. yfirgnæfir stock Intel viftan allt hljóð í kassanun núna). Núna mælist hitinn 44°C idle og hef ekki náð hærra en 55°C eftir að hafa látið NWN ganga í 3 klst í hæstu gæðum og ágætis upplausn.
Þyngslin sveigja kortið aðeins niður, en ekki þannig að það sé hætta á að það brotni Meira vandamál þegar þú setur kortið í eða tekur það úr að þú mátt voðalítið koma við kæliplöturnar.
Það er ekkert svakamál að koma þessu saman, fylgja með leiðbeiningar upp á nokkrar blaðsíður og svo á heimasíðu Zalman. En náttúrulega ef þú treystir þér ekki til þess hugsa ég að flestar búðirnar séu tilbúnar að gera þetta fyrir þig.. en kostar örugglega smá